Morgunblaðið - 25.11.2022, Page 54

Morgunblaðið - 25.11.2022, Page 54
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2022 Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is stígur á hlaðvarps- vagninn en hann segir margt hafa breyst síðan hann stoppaði stutta stund á vagninum með hlaðvarpinu Öll trixin í bókinni fyrir þremur árum. „Ég gerði eiginlega þau mistök að vera of fókuseraður á eitt við- fangsefni,“ segir Einar en þar var hann meira að einblína á tónlist- arbransann en hlaðvarpið tengdist ævisögu Einars með sama nafni. Muna eftir honumúr fyrra lífi „Ég hef upplifað það að fólk man eftir mér úr mínu fyrra lífi sem ein- hverjum músíkkarli en í dag er ég bara að vinna í umhverfisvernd og í endurheimt votlendis og svo stend ég fyrir plokkdeginum, og svona. Ég hugsaði með mér: Væri nú ekki nær að tala við leiðandi öfl í umhverfis- vernd og svo þá sem eru að vinna í því að gera okkur kolefnishlut- lausari og fræðast um þetta og sjá hvort ég geti ekki frætt almenning um leið,“ segir hann. „Ég er líka oft að taka þessi sam- töl fyrir sjálfan mig,“ segir Einar og hlær. „Til dæmis talaði ég við Frey Eyjólfsson um breytingarnar á sorphirðu á höfuðborgarsvæðinu um áramótin. Svakalega ósexí um- ræða en ef einhverjir geta gert hana skemmtilega eru það við Freyr Eyjólfsson,“ segir hann. Um helgina er von á viðtali við Víði Reynisson, ekki um Covid held- ur um öryggismál á stórmótum eins og nú á sér stað á HM í Catar en Víðir hefur farið fyrir öryggisgæslu í kringum bæði karla- og kvenna- landsliðin. K100 fékk Einar Bárðarson til að mæla með fimm áhugaverðum hlað- vörpum sem hann hlustar á en hann hefur nokkuð fjölbreyttan smekk. Heimskviður „Stundum langar mann að vita aðeins meira um það sem er að gerast í kringum okkur úti í hinum stóra heimi. Þau Birta, Bjarni og Sunna gera efninu sínu alltaf mjög góð skil.“ Þjóðmál „Ég hlusta á Gísla Frey Valdórsson til að halda mér upplýstum. Áhugaverð samtöl um samtímaviðfangsefni. Hlusta ekki á hvern einasta en marga og hef gagn af. Jákastið „Kristján Hafþórsson er með fallega og einlæga nálgun á viðfangsefnið sem er bara jákvæðni. Það er alltaf eftirspurn og nánast vöntun á jákvæðni.“ The Move „Lance Armstrong er orðinn ágætiskunningi minn eftir nokkrar heimsóknir hingað til lands. Hann er mjög áhugaverður einstak- lingur á svo margan hátt að það er of langt að þylja það allt upp en þegar maður þekkir til þá er oft skemmti- legra að hlusta Skoðanabræður „Beggi og Snorri Más eru snillingar. Það er gaman að fá að kíkja inn í hausinn á þeim og viðmælendum þeirra. Einar Bárðarson er mættur með látum á hlaðvarpslestina með nýja hlaðvarpið Einmitt en þar ræðir Ein- ar við áhugavert fólk úr ýmsum átt- um um umhverfismál, samfélagsmál og markaðsmál. Hlaðvarpið, sem fór í loftið um síðustu helgi, stökk beint á Topp 10-listann hjá íslenskum hlaðvarpshlustendum. Hefur Einar meðal annars talað við pólfarann Vilborgu Örnu Gissurardóttur, Mar- gréti Láru Viðarsdóttur sálfræðing og fyrrverandi knattspyrnukonu, Davíð Lúther, framkvæmdastjóra Sahara, og Frey Eyjólfsson, dag- skárgerðarmann og sérfræðing hjá Sorpu og því augljóst að umræðuefn- in eru fjölbreytt – alveg eins og Einar vill hafa það. „Ég hef svo mikinn áhuga á fólki almennt og áhuga á því sem fólk er að gera. Ég tala nú ekki um þegar mér finnst mikið til þess koma,“ segir Einar í samtali við Morgunblaðið og K100 en hann segir að hlaðvörp hafa lengið heillað hann. „Ég hef alltaf verið rosahrifinn af þessu samtalsformatti, semmaður getur bara sótt þegar maður hefur tíma og spyrillinn og viðmælandinn geta rætt hlutina aðeins betur en hægt er að gera í útvarpssamtölum – þó að aðalatriðunum sé nú oft gerð mjög vel skil í þeim,“ segir hann. „Ég kalla þetta hlaðvarp um um- hverfismál, samfélagsmál og aðeins ummarkaðsmál. Ég leyfi mér að valsa svona um áhugamálin mín. Þá getur fólk, ef það hefur enga trú á mér semmarkaðsmanni, bara hlustað á hlaðvörpin með viðtölum við fólk í umhverfisverndinni og „vice versa“. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Einar Athafnamaðurinn Einar Bárðarson valsar um áhugamálin sín í nýju hlaðvarpi sínu, Einmitt, en hlaðvarpsformið og eiginleikar þess hefur lengi heillað hann. Hann sagði frá hugsun sinni á bak við Einmitt og mælti með nokkrum áhugaverðum hlaðvörpum sem hann hlustar á. Valsar um áhugamálin sín Einmitt Einar talar við áhugavert fólk í nýju hlaðvarpi en sjálfur hlustar hannmikið á ýmiss konar hlaðvörp. Áhugaverð hlaðvörp frá Einari Bárðarsyni dlugjö fin er glæsileg o g góm sæt viðbót á sjálf ri aðven tunni, til handa heppn um hluste ndum K100 ön vinningshafar fáfrá samstarfsaðilum Á hverjum degi fram að jólum gefum við einum heppnum hlustanda Möndlugjöf K100, yfirfulla af glaðningum frá samstarfsaðilum K100 sem ætti að gleðja alla og koma sér vel yfir jólahátíðina

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.