Morgunblaðið - 25.11.2022, Blaðsíða 52
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2022
S
K
A
N
N
A
Ð
U
O
G
L
ÍT
T
U
V
IÐ
S
K
A
N
N
A
Ð
U
O
G
L
ÍT
T
U
V
IÐ
S V A R T U R N Ó V E M B E R
B R A N D S O N . I S
A F S L Á T T U R
25% - 80%
Staðurinn var opnaður árið 2018 og fékk
nokkrum mánuðum síðar Michelin-stjörnu.
Áður en hann opnaði Hide átti hann Michel-
in-stjörnuveitingastaðinn sem er nefndur
eftir honum sjálfum, Dabbous. Þetta eru ekki
einu staðirnir sem Ollie hefur starfað á sem
skarta hinum eftirsóknarverðu stjörnum.
Hann starfaði einnig sem matreiðslumeistari
hjá Noma, The Fat Duck og Texture. Ollie
hefur gefið út matreiðslubækur og var dómari
í breska MasterChef.
„Við Ollie kynntumst árið 2001 þegar við
unnum báðir hjá Le Manoir hjá Raymond
Blanc í Bretlandi. Hann er frábær matreiðslu-
meistari með einstakan stíl og það er mikill
heiður að fá að taka á móti honum hér hjá
okkur,“ segir Agnar Sverrisson, yfirmat-
reiðslumeistari Moss.
Ollie mun elda sex rétta matseðil fyrir gesti
Moss 2. og 3. desember ásamt Agnari. Á sama
tíma mun hinn þekkti vínþjónn Clément Ro-
bert sjá um vínpörun með matseðlinum. Hann
lærði á Michelin-stjörnustað í Loire-dalnum
í Frakklandi og var valinn vínþjónn ársins
í Bretlandi árið 2013. Síðustu ár hefur
hann starfað sem yfirvínþjónn hjá Caprice
Holdings Ltd sem rekur þekkta veitingastaði
sem eru mörgum Íslendingum kunnugir. Má
þar nefna Scott´s, Sexy Fish og Balthazar.
Agnar Sverrisson tók við sem yfirmat-
reiðslumeistari á Moss árið 2020. Hann
lærði hjá hinum fræga matreiðslumeistara
Raymond Blanc á Le Manoir aux Quat'-
Saisons í Bretlandi. Hann stofnaði síðar
veitingastaðinn Texture í London sem fékk
Michelin-stjörnu árið 2010 og hélt henni í 10
ár þangað til Agnar lokaði staðnum og flutti
aftur heim á ný.
Þetta er í annað sinn sem Michelin-stjörnu-
matreiðslumeistari eldar fyrir gesti Moss
á þessu ári en í febrúar kom til landsins
fyrrnefndur Raymond Blanc.
Veitingastaðurinn Moss tilheyrir Retreat-
hóteli Bláa Lónsins.
Moss, veitingastaður Bláa Lónsins,mun bjóða velkominn Michel-
in-stjörnukokkinn Ollie Dabbous í desember. Hann stofnaði og er
yfirmatreiðslumeistari á hinum þekkta veitingastað Hide í London.
Michelin á Moss
Bragðlaukaveisla Boðið verður upp
á sex rétta matseðil sem á eftir að
koma bragðlaukunum á óvart.
MeistarakokkurMichelin-
stjörnukokkurinn Ollie
Dabbous verður með pop-up á
Moss fyrstu helgina í desember.