Morgunblaðið - 25.11.2022, Side 52

Morgunblaðið - 25.11.2022, Side 52
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2022 S K A N N A Ð U O G L ÍT T U V IÐ S K A N N A Ð U O G L ÍT T U V IÐ S V A R T U R N Ó V E M B E R B R A N D S O N . I S A F S L Á T T U R 25% - 80% Staðurinn var opnaður árið 2018 og fékk nokkrum mánuðum síðar Michelin-stjörnu. Áður en hann opnaði Hide átti hann Michel- in-stjörnuveitingastaðinn sem er nefndur eftir honum sjálfum, Dabbous. Þetta eru ekki einu staðirnir sem Ollie hefur starfað á sem skarta hinum eftirsóknarverðu stjörnum. Hann starfaði einnig sem matreiðslumeistari hjá Noma, The Fat Duck og Texture. Ollie hefur gefið út matreiðslubækur og var dómari í breska MasterChef. „Við Ollie kynntumst árið 2001 þegar við unnum báðir hjá Le Manoir hjá Raymond Blanc í Bretlandi. Hann er frábær matreiðslu- meistari með einstakan stíl og það er mikill heiður að fá að taka á móti honum hér hjá okkur,“ segir Agnar Sverrisson, yfirmat- reiðslumeistari Moss. Ollie mun elda sex rétta matseðil fyrir gesti Moss 2. og 3. desember ásamt Agnari. Á sama tíma mun hinn þekkti vínþjónn Clément Ro- bert sjá um vínpörun með matseðlinum. Hann lærði á Michelin-stjörnustað í Loire-dalnum í Frakklandi og var valinn vínþjónn ársins í Bretlandi árið 2013. Síðustu ár hefur hann starfað sem yfirvínþjónn hjá Caprice Holdings Ltd sem rekur þekkta veitingastaði sem eru mörgum Íslendingum kunnugir. Má þar nefna Scott´s, Sexy Fish og Balthazar. Agnar Sverrisson tók við sem yfirmat- reiðslumeistari á Moss árið 2020. Hann lærði hjá hinum fræga matreiðslumeistara Raymond Blanc á Le Manoir aux Quat'- Saisons í Bretlandi. Hann stofnaði síðar veitingastaðinn Texture í London sem fékk Michelin-stjörnu árið 2010 og hélt henni í 10 ár þangað til Agnar lokaði staðnum og flutti aftur heim á ný. Þetta er í annað sinn sem Michelin-stjörnu- matreiðslumeistari eldar fyrir gesti Moss á þessu ári en í febrúar kom til landsins fyrrnefndur Raymond Blanc. Veitingastaðurinn Moss tilheyrir Retreat- hóteli Bláa Lónsins. Moss, veitingastaður Bláa Lónsins,mun bjóða velkominn Michel- in-stjörnukokkinn Ollie Dabbous í desember. Hann stofnaði og er yfirmatreiðslumeistari á hinum þekkta veitingastað Hide í London. Michelin á Moss Bragðlaukaveisla Boðið verður upp á sex rétta matseðil sem á eftir að koma bragðlaukunum á óvart. MeistarakokkurMichelin- stjörnukokkurinn Ollie Dabbous verður með pop-up á Moss fyrstu helgina í desember.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.