Morgunblaðið - 25.11.2022, Blaðsíða 64
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2022
DÆGRADVÖL64
Afsláttur
af Möttu
Mattri innanhúss-
málningu
Afsláttur
af myndlistar-
vörumFríar
litaprufur
AFSLÁTTARHELG I
LÖNG
FÖSTUDAG T I L ÞR IÐJUDAGS
Opið:
8-18 virka daga
10-14 laugardaga
Sími 588 8000
slippfelagid.is
Kristín Ísleifsdóttir, keramiker og myndlistarkennari – 70 ára
Með hendurnar í leir ogmold
K
ristín Ísleifsdóttir
fæddist 25. nóvember
1952 í Reykjavík. Hún
ólst upp þar, sem og á
Hólmavík og Hvolsvelli.
Flest grunnskólaárin var Kristín
í Langholtsskóla. „Ég átti að taka
landspróf í Skógum undir Eyjafjöll-
um, en þá bjuggum við á Hvolsvelli
þegar faðir minn var héraðslæknir
Suðurlands. Ég vildi frekar vera í
Reykjavík hjá móðurforeldrummín
en að vera á heimavist og tók því
landsprófið í Reykjavík. Það sama
var með framhaldsskólaárin. Ég hafði
meiri áhuga á að vera í Reykjavík en
að fara á heimavist á Laugarvatni
og var áfram hjá ömmu og afa. En
ég var alla páska, jól og á sumrin hjá
foreldrummínum. Ég er elst af fimm
systkinum og það var nóg að gera við
að passa þau því við bjuggum fyrir
ofan læknastofurnar og mamma að-
stoðaði pabba mikið í hans störfum.“
Kristín útskrifaðist frá Mennta-
skólanum í Reykjavík árið 1972. „Þar
myndaðist góður vinkonuhópur sem
enn heldur nánu sambandi og fagnaði
t.d. sjötugsafmælunum saman.“
Á menntaskólaárunum kynntist
Kristín verkum japanska kvik-
myndagerðarmannsins Kurosawa
og heillaðist þá af Japan. Hún ákvað
að fara í háskólanám þangað og fór
með þáverandi eiginmanni sínum,
sem stundaði nám þar í veiðarfæra-
verkfræði. Þau voru fyrstu íslensku
námsmennirnir sem kláruðu BA- og
BS-gráður við japanska háskóla.
Kristín útskrifaðist frá Tokyo
Designers College í Japan árið 1979
sem vöruhönnuður. „Ég vildi læra
keramik í Japan, en ef maður fer til
meistara í keramik þar þá verður
maður að eyða fyrstu árunum í að
sópa gólf og hella upp á te. Það fannst
mér vera tímaeyðsla og þarafleiðandi
fór ég í háskólanám í vöruhönnun,
en þar var hægt að vinna með leir og
gler og ýmis önnur efni. Svo þegar
ég lauk náminu þá þurfti ég að bíða í
eitt ár eftir manninummínum og var
svo heppin að fá vinnu á postulíns-
verkstæði hjá einum kennaranum
mínum. Ég lærði ofboðslega mikið
hjá henni og lærði eiginlega mest á
verkstæðinu þar.“
Kristín lauk námi í kennslu-
réttindunum fyrir grunn- og fram-
haldsskólastig frá Listaháskóla Ís-
lands árið 2006. Hún hefur sótt ýmis
námskeið og vinnustofur í Bandaríkj-
unum, Japan og Ungverjalandi.
Eftir heimkomu frá Japan stofnaði
Kristín keramikverkstæðið Menju
ásamt Sóleyju Eiríksdóttur og Hildi
Sigurbjörnsdóttur, en verkstæðið var
á horni Lindargötu og Frakkastígs.
Meðfram vinnu sinni við keramikið
hefur Kristín kennt leirmótun og
hönnun á öllum skólastigum. Síðast-
liðin 15 ár hefur hún kennt við list- og
verkgreinadeild Menntavísindasviðs
Háskóla Íslands. Árið 2016 gaf hún
út tvær kennslubækur um leirmótun
fyrir grunnskólanemendur í sam-
vinnu við Menntamálastofnun.
Kristín var virk í sýningarhaldi á
árunum 1980-2010. Hún sýndi verk
sín bæði innanlands og utan og á
verk í eigu safna á Íslandi og í Japan.
„Ég kynntist mörgum skólafélögum
Sóleyjar í nýja málverkinu, eins og
það er kallað, og margir komu á verk-
stæðið til okkar. Verkin mín breyttust
þá úr fínu postulíni í frekjulegan
steinleir og stór verk. Þá var eins og
maður væri kominn í listina en á 9.
áratugnum hrundu allir múrar milli
handverks og listar.
Ég var svo heppin að á 9. áratugn-
um var mikið verið að selja af grafík
og keramik og ég gat lifað svolítið vel
af listinni.“ Kristín hlaut Hönnunar-
verðlaun DV árið 1990.
Árið 1981 stóð Kristín að stofnun
Íslensk-japanska félagsins ásamt
öðrum aðdáendum japanskrar menn-
ingar. Hún var formaður félagsins af
og til í samtals 12 ár. Í formennskutíð
sinni stóð hún að allt að 30 menn-
ingarviðburðum í Japan og á Íslandi.
Hún tók einnig á móti japönskum
vísinda- og listamönnum og aðstoðaði
þá við störf sín á Íslandi. Ótal margir
vísinda- og listamenn, stjórnmála-
menn og fólk í viðskiptaerindum slóg-
ust í för með henni til Japan í ólíkum
erindagjörðum. „Ein af eftirminni-
legustu ferðummínum til Japan var
með frú Vigdísi Finnbogadóttur.“
Árið 2011 veitti Japanskeisari Krist-
ínu heiðursorðu hinnar rísandi sólar
(The Order of the Rising Sun) fyrir
að stuðla að auknummenningarsam-
skiptum og vináttutengslum Íslands
og Japan.
Í gegnum kennslustörf sín hefur
áhugi Kristínar á börnummeð
sérþarfir aukist og hefur hún sl. 16 ár
unnið í hlutastarfi hjá velferðarsviði
Reykjavíkurborgar, nánar tiltekið á
Álfalandi.
Áhugamál Kristínar eru allt er
Við Kiyomizuhofið í Kýótó Frá vinstri: Þórólfur Jarl Þórólfsson, Yukari Takahashi (japönsk vinkona), Kristín,
Lára Jónasdóttir, Eva Dís Pálmadóttir (systurdóttir) og Jón Jónsson (eiginmaður Evu Dísar).
Listamaðurinn Kristín á safninu
TeamLab Borderless í Tókýó.
Varðmenn Verk Kristínar sem
samanstóð af 66 „varðmönnum“.
Til hamingju með daginn
Stjörnuspá
Gísli Arnar Guðmundsson
50 ÁRA Gísli er fæddur í Reykjavík, ólst
upp á Húsavík en býr á Akureyri. Hann
lauk vélskólanámi við Verkmenntaskólann
á Akureyri og er deildarstjóri ástandsgrein-
ingar hjá tækniþjónustufyrirtækinu HD
á Akureyri. Gísli er einnig atvinnukafari.
Áhugamálin eru Enduro-hjól og ljósmynd-
un. Hann gaf út ljósmyndabókina Undirdjúp
Íslands.
FJÖLSKYLDA Eiginkona Gísla er Fjóla
Ákadóttir, f. 1980, hjúkrunarfræðingur á
Sjúkrahúsinu á Akureyri. Börn þeirra eru
Birta, f. 2008, Kári, f. 2010, og Tinna, f. 2015.
Foreldrar Gísla eru Gerður Gísladóttir, f.
1955, leikskólakennari, búsett á Akureyri,
og Guðmundur Rúnar Lúðvíksson, f. 1954,
listamaður, búsettur á Spáni.
Nýr borgari
Reykjavík Axel Koa Lerrin fæddist
4. janúar 2022. Hann vó 4.048 g og
var 52 cm langur. Foreldrar hans
eru Guðrún Ösp Jónsdóttir og
Jesper Lerrin.
21. mars - 19. apríl A
Hrútur Frumleiki þinn færir þér gæfu og
ótal tækifæri. Láttu samt árangurinn ekki
stíga þér til höfuðs. Þú ættir að vera á
varðbergi í peningamálum.
20. apríl - 20. maí B
Naut Þeir erfiðleikar sem þér finnst þú
vera að glíma við eru meiri í huganum en
í raunveruleikanum.Taktu vel á móti vini
sem leitar til þín.
21. maí - 20. júní C
Tvíburar Þú munt komast að því að
hæfileikar þínir liggja á mörgum sviðum,
fleiri en þú áttar þig á. Haltu áfram að
sinna áhugamálunum.
21. júní - 22. júlí D
Krabbi Þar sem þér hefur verið falin aukin
ábyrgð þarftu að leggja aukna rækt við að
fá hvíld frá öllu inn á milli. Láttu það eftir
þér að dekra við þig.
23. júlí - 22. ágúst E
Ljón Þú kannt að njóta lífsins og það er
mikið að gera í félagslífinu. Þér hættir til
að gera of mikið úr hlutunum, andaðu
djúpt og teldu upp að tíu.
23. ágúst - 22. september F
Meyja Láttu óttann ekki hindra þig í að
ná takmarki þínu. Tilfinningar þínar eru
ruglingslegar, viltu vera í sambandi eða
ekki?
23. september - 22. október G
Vog Sannleikanum verður hver sárreið-
astur. Tíminn vinnur með þér í vissu máli.
Láttu ekki slá þig út af laginu og haltu þínu
striki, sama hvað á þér dynur.
23. október - 21. nóvember H
Sporðdreki Það er kominn tími til að
slaka á og hafðu engar áhyggjur því
heimurinn ferst ekki rétt á meðan. Einhver
spennandi daðrar við þig í dag.
22. nóvember - 21. desember I
Bogmaður Gættu þess að láta ímynd-
unaraflið ekki hlaupa með þig í gönur. Nú
verður þú að gera upp við þig hvort þú
ætlar að stækka við þig eða ekki.
22. desember - 19. janúar J
Steingeit Nú ertu komin/n með lausn á
vandamálinu sem hefur verið að naga þig
að undanförnu. Makinn kemur á óvart með
óvæntri gjöf.
20. janúar - 18. febrúar K
Vatnsberi Þú getur ekki hamið eftir-
væntingu þína og þitt góða skap smitar
út frá sér í allar áttir. Fólk leitar til þín með
alls konar vandamál.
19. febrúar - 20. mars L
Fiskar Sinntu þeimmálum, sem þú hefur
látið sitja á hakanum og láttu aðra um að
dansa í sviðsljósinu. Þú átt skilið að slaka
á og munt líklega fara til útlanda.