Morgunblaðið - 25.11.2022, Blaðsíða 24
FRÉTTIR
Innlent24
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2022
Bláu húsin v/Faxafen • Sími 553 7355
Þægilegur aðhaldsfatnaður
með góðum stuðningi sem
klæðist vel undir allar flíkur.
Flatir saumar og engar
sjáanlega línur.
Black Friday Tilboð 25.11-28.11
20% afsláttur
af aðhaldsundirfatnaði og undirkjólum
Gildir í verslun og í vefverslun selena.is
„Við viljum taka þátt í því að byggja
upp vínkúltúr á Íslandi,“ segir Einar
Þór Ingólfsson, verkfræðingur í
Danmörku.
Einar og vinir hans stofnuðu
nýlega Vínklúbbinn sem hefur það
að markmiði að bjóða Íslendingum í
fyrsta sinn upp
á sérvalin há-
gæðavín í áskrift.
Um er að ræða
nokkur vinahjón
sem kynnst hafa
vínklúbbum
erlendis en þar
hefur víða lengi
tíðkast að fólk
gerist áskrifend-
ur að vínkössum
sem sendir eru heim til þess. Áskrif-
endur vita ekki hverju þeir eiga von á
en geta treyst því að um gæðavöru er
að ræða. Í ljósi þeirrar þróunar hér á
landi, að ekki er amast við netsölu og
heimsendingum á áfengi, er loks-
ins kominn grundvöllur fyrir slíkri
þjónustu.
Einar segir að í Vínklúbbnum geti
fólk átt von á því að kynnast vínum
sem það hefur ekki komist í tæri
við áður, bæði hversdagsvínum og
eðalvínum. Í kassanum fylgi svo
fróðleikur um uppruna þeirra og eig-
inleika. „Þetta er óvissuferð í hverjum
mánuði og fólk fær með fróðleik á
mannamáli um uppruna vínanna,
pörun með mat og fleira.“
Hann segir að margir selji vín á Ís-
landi og þar geti fólk valið vín sem því
finnist góð en það viti ekkert endilega
af hverju því finnist þau vín góð. Í Vín-
klúbbnum gefist tækifæri til að prófa
eitthvað nýtt og með fróðleiknum sé
hægt að setja vínin í rétt samhengi.
„Við erum ekki vínsérfræðingar en við
erummikið vínáhugafólk. Við erum
hins vegar í samstarfi við sérfræðinga
og sterka heildsala á Norðurlöndun-
um sem aðstoða okkur við að velja
vínin. Þá erum við einnig í sambandi
við nokkra framleiðendur sem við
flytjum beint inn frá. Markmiðið er að
vera með fjölbreytt vín frá mörgum
mismunandi aðilum.“
Fyrstu áskriftarkassarnir voru
afhentir í október og segir Einar að
viðtökur hafi verið góðar. Fólk getur
valið um að fá þrjár eða sex flöskur í
hverjummánuði og á hvaða verðbili
vínin eiga að vera. Þjónustan mun
halda áfram að þróast að hans sögn.
„Við erum eiginlega að smíða flug-
vélina meðan hún er á lofti og þetta
mun þróast með tímanum. Nú erum
við til dæmis komin með kassa með
jólavínum og hugmyndin er að vera
með kassa sem passa við ákveðin
tilefni. Við erum spennt að sjá hver
viðbrögðin verða í framhaldinu.“
lVínklúbburinn stofnaðurlÓvissuferð í hverjummánuði
Senda fólki sérvalin
vín heim í áskrift
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Sending Vínáhugafólk getur fengið kassa sendan heim í hverjummánuði.
Einar Þór
Ingólfsson
Þarftu að láta
gera við?
FINNA.is