Morgunblaðið - 25.11.2022, Síða 10

Morgunblaðið - 25.11.2022, Síða 10
FRÉTTIR Innlent10 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2022 LANDSBANKINN. IS Finnum réttar lausnir fyrir fyrirtækið þitt Komdu í hóp ánægðra viðskiptavina Miklar breytingar verða gerðar á meðhöndlun úrgangs þann 1. janúar 2023. Með þeim verða sköpuð skilyrði fyrir myndun hringrásarhagkerfis. Úrgangur verður flokkaður betur en áður og meira af honum endurnýtt. Sveitarfélögin gegna lykilhlutverki við að innleiða flokkun sorps hjá almenningi og fyrirtækjum. Einnig ætla þau að breyta innkaupum sínum með tilliti til úr- gangsstjórnunar og hringrásar- hagker f i s i n s . Á næsta ári á einnig að innleiða það sem kalllast Borgaðu þegar hent er en í því felst að sá sem hendir borgar fyrir meðhöndl- un úrgangsins. Allt á þetta að leiða til betri nýtingar þeirra verðmæta sem felast í rusli og draga úr myndun úrgangs sem kem- ur umhverfinu til góða. En hvernig gengur undirbúningur þessaramiklu breytinga? „Við verðum ekki vör við annað en mikinn kraft í sveitarfélögunum,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráð- herra. Hann segir breytingarnar eiga sér langan aðdraganda en lög um hringrásarhagkerfið voru sam- þykkt í júní 2021. „Við höfum verið í mjög virku samtali við sveitarfélögin og Úrvinnslusjóð. Einnig höfum við staðið fyrir verkefnum í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga og eftir atvikumUmhverfisstofnun til að kynna breytingarnar fyrir sveitar- félögunum.“ Handbók um framkvæmd úrgangs- stjórnunar var gefin út í júní sl. og hana má lesa á vefsíðu Umhverfis- stofnunar (ust.is). Einnig voru haldn- ar vinnustofur á fyrri hluta ársins undir yfirskriftinni Samtaka um hringrásarhagkerfi. Þar var lögð áhersla á svæðisáætlanir sveitarfé- laga, innkaup og úrgangsstjórnun og innheimtu á raunkostnaði við meðhöndlun úrgangs. Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hafði frumkvæði að gerð skýrslu um grein- ingu ámismunandi útfærslum á slíkri innheimtu. „Ég lít á þetta sem spennandi verk- efni,“ segir Guðlaugur Þór. Hann segir að sum sveitarfélög séu löngu byrjuð á þessari vegferð og nefnir t.d. Stykk- ishólmsbæ sem byrjaði fyrir fimmtán árum að safna flokkuðu sorpi. „Við finnum engan bilbug á sveitarfélögun- um, en þetta er stórt mál. Við eigum að geramiklu betur en við höfum gert varðandi hringrásarhagkerfið.“ En eru öll sveitarfélög í stakk búin til að takast á við þetta? Hvernig er til dæmis staðan hjá minni sveitar- félögunum? „Miðað við kannanir sem við höf- um gert er ekki hægt að segja að það sé reglan að stærri sveitarfélög séu betur undirbúin en þau minni,“ segir Guðlaugur Þór. „Við reynum að hjálpa til og liðka fyrir í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga. Þegar dagsetningin nálgast rennur alvaran upp og þeir sem eru komnir skemmra á veg þurfa að gera meira á styttri tíma. En ég heyri ekki annað en að allir hafi skilning á mikilvægi þessa verkefnis.“ Hann segir ljóst að breytingarnar muni taka einhvern tíma en það sé í eðli Íslendinga að geta gert hlutina hratt þegar á reynir. Guðlaugur Þór segir að áhersla sé lögð á að öll sú vinna sem lögð er í innleiðingu hringrásarhagkerfisins hjá sveitarfélögunum, fyrirtækjum og almenning skili sér. Hann setti á stofn starfshóp til að endurskoða lögin um Úrvinnslusjóð og er reiknað með að hann skili niðurstöðu á næstunni. „Úrvinnslusjóður er orðinn 20 ára gamall og lögin um hann hafa ekki verið endurskoðuð á þeim tíma þrátt fyrir þær miklu breytingar sem hafa orðið. Við reynum að vinna þetta eins hratt ogmögulegt er,“ segir Guðlaug- ur Þór. Hann segir að flestir sem dvelja einhvern tíma í þeim löndum sem við berum okkur helst saman við komist að þeirri niðurstöðu að við gætum gert betur þegar kemur að meðhöndlun úrgangs. „Ég tel mikil- vægt að allir nálgist þettameð opnum huga og lít á þetta sem tækifæri tli að gera betur. Rusl er verðmæti en til að nýta þau verðum við að flokka ruslið og koma því í réttan farveg. Við gerum þetta fyrst og fremst fyrir umhverfið og ef við nýtum ekki ruslið þá sóum við verðmætum. Mér finnst vitunarvakning vegna þessa aukast hratt.” Íslenska þjóðin er fámenn en landið stórt og 85% landsmanna búa á Suð- vesturhorninu. Þótt hér sé mikið rusl á hvern íbúa þá er heildarmagn- ið mjög lítið miðað við önnur lönd. Margar útlendar lausnir miðast við mun stærri samfélög ogmeiri úrgang. „Við þurfum að finna nýjar lausnir sem henta hér. Þær munu verða útflutningsvara til dreifbýlla svæða heimsins, meðal annars norðurslóðir þar sem búa fjórar milljónir manna á gríðarstóru landsvæði. Í þessu felast tækifæri fyrir okkur,” segir Guðlaug- ur Þór. Áfangi á langri leið Nýlega lauk loftslagsráðstefnunni COP27 í Egyptalandi. Hvaða þýðingu hafði hún fyrir Ísland? „Þetta var ekki endapunktur heldur áfangi. Margir urðu fyrir vonbrigð- um með að ekki voru sett metnað- arfyllri markmið. En mér finnst að þjóðir heims séu búnar að átta sig á verkefninu og það er mjög stórt,“ segir Guðlaugur Þór. Hann segir að menn hafi áhyggjur af þeim aðgerð- um sem grípa þarf til. „Okkur miðar áfram, en það er gríðarlega mikið verk framundan.“ Guðlaugur Þór segir að líkt og með hringrásarhagkerfið geti Ísland gert betur í loftslagsmálum. „Það á við um grænu orkuna og við höfum verið svo- lítið sofandi gagnvart henni. Í grænu orkunni eru mikil tækifæri fyrir okk- ur. Við sitjum á þekkingu og tækni við nýtingu jarðvarma sem hefur aðeins verið notuð á fáum stöðum í heimin- um. Nú er gríðarleg eftirspurn eftir þessari þekkingu og þetta er tækifæri fyrir íslensk fyrirtæki að selja þessar lausnir til annarra landa.“ Nýtumbetur verðmætin í ruslinu lHringrásarhagkerfið verður innleitt 1. janúar 2023lÞví fylgja miklar breytingar á meðhöndlun úr- gangslSveitarfélögin gegna lykilhlutverkilMikil tækifæri fyrir Ísland felast í nýtingu á grænni orku Guðni Einarsson gudni@mbl.s Morgunblaðið/Eggert Flokkun Sorp verður flokkað meira en áður og endurnýting aukin. Guðlaugur Þór Þórðarson
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.