Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 25.11.2022, Síða 22

Morgunblaðið - 25.11.2022, Síða 22
FRÉTTIR Innlent22 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2022 Er þér umhugað umstarfsmenn þína?HR Monitor rauntímastarfsánægjumælingar Ævintýraleg jepparferð á Toyota Landcruiser um Atlasfjöllinn, Sahara eyðimörkina og sveitir Marocco Þá kynnumst við einnig miðaldaborginni Riga í Lettlandi Þetta er ekki venjuleg túristaferð, við förum m.a. á staði sem meginhluti ferðamanna sér að jafnaði ekki. Við ferðumst í heimi sagna og ævintýra, í heimi Berbana sem ekki er sýnilegur hinum venjulega ferðamanni. Við erum hér til að skilja og vera hluti af þessu ævintýri sem heimur Berbana er. Marokko Berbana er hulin dulúð og ævintýrin frá 1001 nótt vakna þar til lífsins, litskrúðugur klæðnaður, hin marglitu teppi, tónlistin, hin stórkostlegu Atlasfjöll, þorpin, dýrin og heitir sandar töfrandi Sahara eyðimerkurinnar. Við munum kynnast einstakri menningu, náttúru og dýralífi sem lætur engan ósnortinn. Við förum langt aftur í tíma og rúmi. Þá stoppum við 3 nætur í hinni stórkostlegu miðaldaborg Riga, frá 12 öld á leið okkar til og frá Marokko. Síðumúli 29 - 108 Reykjavík | Sími 588 8900 | info@transatlantic.is | transatlantic.is Verð á mann í 2ja manna herbergi 399.750 kr. Innifalið • Flug með tösku og sköttum • Hótel með morgunmat í Marokko og Riga • Hálft fæði í Marokko • Öll keyrsla í Marokko með Toyota Landcruiser jeppum • Íslenskur fararstjóri • Fararstjóri frá Marokko Dularfulla ævintýralandið Marokko 12.-22. mars Í fótspor Berbana Stefnir mannkynið fram af hengiflugi í loftslagsmálum? Næst samstaða um aðgerðir? Er hægt að takmarka hnattræna hlýnun andrúmslofts við 1,5 gráður? Eru orkuskipti, minni kjötneysla, vistvænar samgöngur og fleira slíkt lausnir eða smáskammtalækningar? Hverju hafa Íslendingar að miðla, svo veröldin geti notið? Ekki lengur komið í veg alvarleg áhrif breytinganna „Það voru ákveðin vonbrigði að sjá umfjöllun þeirra sem voru á COP27 fundinum um hversu mikil vonbrigði fundurinn hefði verið. Einhverjir ljósir punktar eins og það var orðað en ekki nægar skuld- bindingar við aðgerðir til þess að mæta þeim markmiðum sem sett hafa verið. Það er ekki langt í 1,5 °C hlýnun á heimsvísu. Evrópa er komin í 1,2 °C hlýnun nú þegar,“ segir Páll Ágúst Þórarinsson, dokt- orsnemi í veðurfræði við Konunglega tækniháskólann í Stokkhólmi. Páll Ágúst segir að stærstan þátt í losun gróðurhúsalofttegunda eigi framleiðsla og notkun jarðefnaeldsneytis, stóriðnaður og land- notkun. „Lausnirnar eru þó til. Hlustum á sérfræðinga sem segja okkur að fjárfesta þurfi í grænum langtímalausnum, efla vistvænar almenn- ingssamgöngur, byggja grænni borgir og minnka óþarfa neyslu. Þetta dregur úr þörf á stór- iðnaði og spurn eftir jarðefnaeldsneyti. Ekkert miðjumoð dugar til. Tökum okkur taki. Þannig getum við á litla Íslandi verið fyrirmynd annarra sem eiga stærri þátt í heildarlosun mann- kynsins, sýnt þeim að þetta er hægt svona hratt. Það verður dýrt en alltaf betra en að takast á við afleiðingarnar af mikilli hlýnun síðar,“ segir Páll Ágúst og að síðustu: „Þetta eru ekki smáskammtalækningar ef losunarminni lausnir koma til að vera. Ef við sinnum þessu getum við komið í veg fyrir frekari hamfarir. Því við getum ekki lengur komið í veg fyrir loftslagsbreytingar eða alvarleg áhrif þeirra vegna. Þetta er spurning um skaðaminnkandi aðgerðir, hvað getum við gert til þess að þjást ekki óþarflega mikið meira.“ sbs@mbl.is Loftslagsvæn og vel rekin bú í sveitum hluti af lausninni „Loftslagsmálin eru eitt af stóru viðfangsefnum samtímans og mikilvægt að koma þar með lausnir sem geta að minnsta kosti haft áhrif á hraðfara hlýnun andrúmsloftsins. Stóru snertifletirnir í því sambandi eru fyrir mér loftslagsvæn og vel rekin bú í sveitum – þar sem leiðarljósið er að fá sem mestar afurðir fyrir sem minnst umhverfisáhrif. Einnig landnýting og landgræðsla og svo orkuskipti eins og nú er unnið að,“ segir Gústav Ásbjörnsson, sviðsstjóri verndar og endurheimtar vistkerfa hjá Land- græðslunni. „Þegar kemur að landgræðslu þá höfum við tækifæri til að draga mjög mikið úr losun með endurheimt votlendis. Þó fólk hafi misjafnar skoðanir á kolefnislosun svæðanna og hversu stór þau séu, þá er eftir sem áður klárt að þessi liður og þar með tækifærið til að gera betur er gríðarstórt. Víða um land er verið að moka ofan í skurði eða gera aðrar sambærilegar ráðstafanir. Að öðru leyti má svo halda því til haga sem Sveinn Runólfsson, fv. landgræðslustjóri hefur bent á. Við Íslendingar erum rík af illa förnu landi. Með því að breyta ástandi þess úr illa förnu yfir í gróin og virk vistkerfi fáum við mjög mikinn ávinning, ekki bara út frá loftslagsmálum heldur einnig út frá nýtingarmöguleikum, vatnsbúskap, líffræðilegum fjölbreytileika, dýralífi og fleiru slíku,“ segir Gústav. „Annars eru margir sem sjá líkindi með viðhorfi fólks til endurheimtar votlendis nú og viðhorfi fólks til sandgræðslu fyrir öld síðan. Sjálfsagt er eitthvað til í því; að minnsta kosti er verkefni dagsins afar brýnt og miklar hugsjónir búa að baki hjá þeim sem vilja bæta úr.“ sbs@mbl.is Ísland er enn með eitt stærsta kolefnissporið í Evrópu „Stefnan er tvímælalaust fram af hengifluginu. Oft hefur verið sýnt hvaða afleiðingar hamfarahlýnun af mannavöldum hefur á lífið á jörðinni og að mannkynið á langt í land með að ná markmiðum um að forðast hættulegustu afleiðingarnar. Það þýðir samt ekki að það sé ekki hægt að forðast hengiflugið,“ segir Auður Önnu Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar. Aðgerðir í loftslagsmálum sem grípa þarf til nú eru margvíslegar, segir Auður. Stærstu orsakavaldarnir varðandi hlýnun séu notkun jarðefnaeldsneytis, óhófleg neysla og framleiðsla og slæm landnotkun, eins og skógareyðing og kjötframleiðsla. Hver og ein þjóð geti náð utan um þessa þætti með sínum hætti. Þó megi minna á að ekki hafi náðst samstaða um að hætta bruna á jarðefnaeldsneyti. Allar líkur eru á því að jörðin hlýni umfram þær 1.5°C á næstu 10 árum, sem menn hafa sett stefnu á. „Viljaleysi valdhafa, það er stjórnmálafólks, fjármagnseigenda og stjórnenda stórra fyrir- tækja til að taka á rótum vandans veldur áhyggjum. Það sem almenningur getur helst gert er að kalla þessa aðila til ábyrgðar. Orkuskipti, minni kjötneysla, vistvænar samgöngur og fleira slíkt eru raunhæfur hluti af lausninni,“ segir Auður. „Hins vegar hafa aðgerðir beinst allt of mikið að almenningi en ekki valdhöfum og framleiðendum sem verður að breytast. Og þrátt fyrir að nýta endurnýjanlega orkugjafa er Ísland með eitt stærsta kolefnisspor í Evrópu. Við getum miðlað af jákvæðum skrefum eins og hitaveituvæðingu og einnig af því sem á ekki að gera, svo sem eins og mjög slæmri landnotkun og óheftum vexti mengandi starfsemi eins og stóriðju og ferðaþjónustu.“ sbs@mbl.is Vandinn er viðurkenndur og rætt um lausnirnar „Staðan er alvarleg, en ég tel ofmælt að við séum á leið fram af hengifluginu,” segir Bryndís Haraldsdóttir, þingmaður Sjálfstæðis- flokksins. Hún var meðal fulltrúa Íslendinga á nýafstaðinni ráðstefnu um loftslagsmál í Sharm El Sheikh í Egyptalandi og segir að þar hafi margt áhugavert komið fram. Sérstaklega sé vert að gefa gaum þeirri yfirlýsingu Antonios Guterres, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, um að veröldin sé á hraðri leið til loftslagshelvítis, slíkar hamfarir hljótist af hlýnun andrúmsloftsins. Á sýningarbás Pakistans á ráðstefnunni ytra var brugðið upp svipmyndum af afleiðingum hamfarahlýnunar þar í landi, svo sem frá miklum flóðum þar í landi fyrr á þessu ári. Myndum þessum fylgdu þau skilaboð að afleiðingar hlýnunar gætu orðið með svipuðu móti annars staðar. Enginn væri eyland. Fleiri hefðu sýnt og sagt frá hinu sama. „Þurrkar, brunnið land, flóð og veðuröfgar svo mannvirki skolast í burtu. Þetta sást í kynn- ingarefni Sameinuðu þjóðanna og áhrifaríkum myndböndum þeirra. Hið jákvæða í stöðunni er hins vegar að fólk um allan heim viðurkennir vandann og ræðir saman um hann. Allir eru líka áfram um að finna lausnir; almenningur, atvinnulíf og stjórnvöld. Þá eru víða í þróun og fram- leiðslu tæknilausnir þar sem minni útblástur og kolefnisbinding eru stóru atriðin. Sjálfsagt verður ekki að öllu leyti hægt að sporna gegn hlýnun. Því þarf mannkynið að aðlagast nýjum veruleika. Til slíks þarf líka að horfa til uppbyggingar allra innviða; sem vegna veðuröfga þurfa að vera sterkbyggðari en áður. Þannig fléttast loftslagsbreytingar í rauninni inn í alla okkar tilveru og endurmats og alþjóðlegrar samvinnu er þörf.“ sbs@mbl.is Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.