Morgunblaðið - 25.11.2022, Síða 28

Morgunblaðið - 25.11.2022, Síða 28
FRÉTTIR Innlent28 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2022 1 Var, er og verður Birna Ingibjörg Hjartardóttir The 13 yule lads of Iceland Brian Pilkington Gættu þinna handa Yrsa Sigurðardóttir 1 3 7 9 8 10 6 4 Metsölulisti Vikuna 16. nóvember - 22. nóvember Húðbókin Lára G. Sigurðardóttir Sólveig Eiríksdóttir 5 Reykjavík glæpasaga Ragnar Jónasson Katrín Jakobsdóttir Játning Ólafur Jóhann Ólafsson Eden Auður Ava Ólafsdóttir Kyrrþey Arnaldur Indriðason Á sporbaug Anna S.Þráinsdóttir Elín E.Einarsdóttir Amma glæpon enn á ferð David Walliams BLACK FRIDAY 30% afsláttur af völdum vörumerkjum Kaupaukar fyrir fyrstu 20 sem versla í DÚKA Smáralind & Kringlunni duka.is Kringlan & Smáralind „Núna fer í hönd aðventan sem er skemmtilegur tími í kirkjustarfinu. Það er einhver helgi yfir þessum tíma þegar ljósin lýsa upp myrkrið og jólalögin fara að óma,“ segir sr. Guðrún Karls Helgudóttir, sóknarprestur í Grafarvogskirkju í Reykjavík. Þar verður nú næstkom- andi sunnudag haldin aðventuhátíð barnanna sem hefst kl. 11. Þar verður boðskapur jólanna kynntur börnunum, með tónlist, helgileik og gleði. Allir eru velkomnir en börn í Grafarvogi eru sérstaklega boðin velkomin með sínu fólki. Ágæturmillivegur „Við buðum skólunum að koma í heimsókn eins og venjulega á að- ventunni en ákváðum jafnframt að bjóða upp á okkar eigin dagskrá og segja skólunum frá henni. Skólarnir völdu að koma ekki og benda vænt- anlega foreldrum á þessa dagskrá en heimsóknir skóla í kirkjuna á aðventunni hafa undanfarin ár verið á forsendum skólanna en ekki kirkj- unnar. Við erum í góðum tengslum við alla skólana í Grafarvogi og það hefur ekkert breyst. Okkur í kirkj- unni þykir ekki gott að kirkjuheim- sóknir skapi togstreitu og jafnvel deilur. Skólastjórnendur eru settir í erfiða stöðu við að taka ákvörðun um hvort fara eigi í slíka heimsókn. Ég tel okkur þarna hafa fundið ágæt- an milliveg þegar kemur að börnum og aðventunni í kirkjunni. Ég held að fólk sé nokkuð sátt við þetta fyrir- komulag,“ segir sr. Guðrún. Sóttvarnir komu í veg fyrir samkomuhald í kirkjum lands- ins fyrir jólin 2020 og 2021. Gilti það jafnt um helgihald, athafnir, aðventusamkomur og heimsóknir skólabarna. „Veiran breytti svo mörgu í samfélaginu, eins og við fundum svo vel fyrir í kirkjunni. Það hafa því ekki verið kirkjuheim- sóknir frá skólunum síðan 2019,“ segir sr. Guðrún. „Við höldum áfram okkar góðu tengslum við skólana í hverfinu. Einhverjir þeirra halda sínar útskriftir í kirkjunni á vorin og það er ekkert að breytast. Kirkjan er í samstarfi við svo mörg félög og stofnanir í hverfinu eins og vera ber.“ Kirkjan ómar öll Óhætt er að segja að í Grafarvogs- kirkju verði líflegt starf nú um helgina. Fyrst er aðventustund barnanna fyrir hádegi sem fyrr er getið. Kl. 13 er Selmessa í Kirkjusel- inu í Spöng og í kirkjunni sjálfri er svo sænsk messa kl. 15. Um kvöldið er svo aðventuhátíð sem hefst kl. 20. Þar verður mikil tónlist og Ellen Kristjánsdóttir söngkona flytur hugleiðingu. Kirkjan ómar öll, eins og sungið er í sálminum góða. lGrafarvogur á sunnudaginnlHelgileikur, tónlist og gleði Aðventuhátíð fyrir börnin í kirkjunni Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Prestur Lýsa upp myrkrið og jólalögin óma,“ segir sr. Guðrún Karls Helgudóttir um kirkjustarfið á aðventu.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.