Morgunblaðið - 25.11.2022, Page 32

Morgunblaðið - 25.11.2022, Page 32
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2022 ELTAK sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum SKEIFAN 11 108 RVK. SPORTÍS SPORTIS.IS S:520-1000 BLACK FRIDAY ALLT AÐ 50% AFSLÁTTUR! G I L D I R Ú T 2 8 . N Ó V . - E I N N I G Í V E R S L U N árum. „Við höfum ekkert fengið af þeim sparnaði.“ Þá vekur Valmundur einnig athygli á því að trygging lágmarkslauna hafi ekki hækkað frá árinu 2019. „Þar eig- um við inni rúmlega hundrað þúsund krónur. Áður höfum við alltaf samið um hækkun á kauptryggingu þó svo að við höfum verið samningslausir. Það er ekki í boði núna. Þannig virð- ist útgerðin vilja hafa þetta. Þetta hefur kannski ekki mikil áhrif á starfandi sjómenn í dag, en ef menn veikjast þá eru lágmarkslaunin þegar hlutnum sleppir það sem gildir, bæði hjá útgerðinni og það sem styrktar- sjóðir félaganna miða við.“ Sjómönnum fer fækkandi Þorskkvótinn hefur verið skertur um 24% eða 50 þúsund tonn frá fiskveiðiárinu 2019/2020, auk þess sem útgefinn kvóti í ufsa hefur verið skertur um 12%, um 42% í gullkarfa og 49% í djúpkarfa. Vegna þessa hef- ur skipum verið ýmist lagt eða verk- efnum þeirra fækkað svo ummunar. Spurður hvort þessi þróun hafi verið vaxandi áhuggjuefni meðal sjómanna svarar Valmundur því játandi. „Reynt hefur verið að finna önn- ur pláss á öðrum skipum fyrir þá sjómenn sem hafa verið á þessum skipum sem hefur verið lagt. Auð- vitað er minna eftir af kökunni þegar kvóti minnkar, en sem betur fer hefur afurðaverð komið á móti skerðingum. Gengið hefur lækkað svolítið sem kemur okkur til góða. En sjómönnum fer klárlega fækkandi. Samkvæmt staðgreiðsluskrá eru atvinnusjómenn nú innan við þrjú þúsund talsins. Þetta helst samt ekki svona að ei- lífu og það er ljóst að þegar afurða- verð lækkar væri gott að vera búinn að semja og verja þann samning. Við heyrum það núna að menn eru mjög ósáttir við að það sé ekki búið að semja í þrjú ár. Á síðastliðnum áratug erum við búnir að vera með samninga í gildi í þrjú ár. Þetta er óþolandi ástand.“ Aðalástæða þess að ekki hefur tek- ist að landa kjarasamningi milli sjó- manna og útgerða er krafa sjómanna um aukið mótframlag í lífeyrissjóð til jafns við aðra launþega. „Okk- ur finnst útgerðin hafa borð fyrir báru að klára þessi mál við okkur. Við höfum boðið þeim að taka þetta inn á einhverj- um árum,“ seg- ir Valmundur Valmundsson, formaður Sjó- mannasambands Íslands. K jarasamn- ingar sjómanna hafa verið laus- ir í um þrjú ár og viðurkennir Valmundur að viðræðurnar hafi strandað aðeins. „Við hittumst að vísu hjá ríkissátta- semjara þrisvar í haust og hittumst þar aftur á mánudag og er það venju- legur fundur. Maður veit ekki hvort það er eitthvað að þokast en það er léttara yfir þessu núna.“ Ólafur Helgi Marteinsson, formað- ur Samtaka fyrirtækja í sjávarút- vegi, sagði viðtali í Morgunblaðinu í ágúst síðastliðnum að málið væri „mjög snúið að leysa“. Sagði hann kröfur sjómanna hafa það í för með sér að stærri hlutur af því sem skipt væri milli þeirra og útgerðar færi til sjómanna án þess að útgerðir hefðu möguleika til hagræðingar á móti. Hafna skerðingu skiptaprósentu „Krafan frá útgerðinni er sú – eftir að við sigldum okkur niður á það að við vildum fá þessi lífeyris- sjóðsréttindi – að það eigi að koma á móti skerðing á skiptaprósentu til sjómanna. Það kemur ekki til greina í okkar huga. Við vitum að þetta hækkar launakostnað hjá útgerðinni en við teljum okkur eiga þetta inni. Við erum að bjóða að halda skipta- prósentunni í 70% til að hjálpa þeim við orkuskipti, en krafan okkar var upphaflega hækkun skiptaprósentu í 74% og ef þeir vilja ekki taka í mál að greiða þennan lífeyrissjóð þá höldum við þessari kröfu [um skiptaprósentuna] til streitu,“ segir Valmundur. Hann bendir á að skipta- prósentan hafi haldist óbreytt í 70% í mjög langan tíma, þrátt fyrir að olíu- notkun og olíuverð miðað við afurða- verð hafi hríðlækkað á undanförnum lSjómenn víkja ekki frá kröfu um aukið mótframlaglLækkuðu kröfu um aukna skiptaprósentu til að mæta orkuskiptumlFundað á ný á mánudaglLaunatrygging hefur ekki hækkað frá árinu 2019 Viðræður strandaámótframlagi Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Ljósmynd/Síldarvinnslan: Þorgeir Baldursson Samningar Sjómenn bíða eftir því að takist að semja en þeir hafa verið án kjarasamnings í þrjú ár. HAGSTÆÐ LAUN Viðmiðunar- verð hátt Viðmiðunarverð Verðlags- stofu skiptaverðs, sem er til grundvallar lágmarkslaunum sjómanna, hefur hækkað mikið undanfarin misseri. Bara frá nóvember 2021 til nóvember 2022 hefur viðmiðunarverð á slægðum þorski hækkað um 9,3%, en 15,6% í ýsu, 9% í ufsa og 3% í karfa. Hækkanirnar eru enn meiri sé miðað við júní 2021 til nóvember 2022. Á því tímabili nemur hækkun viðmiðunar- verðs þorsks 51%, ýsu 34%, ufsa 41% og karfa 7%. Valmundur Valmundsson Afurðaverð á markaði 23. nóvember,meðalverð, kr./kg Þorskur, óslægður 447,97 Þorskur, slægður 544,16 Ýsa, óslægð 365,86 Ýsa, slægð 349,27 Ufsi, óslægður 305,67 Ufsi, slægður 341,30 Djúpkarfi 248,00 Gullkarfi 313,72 Blálanga, slægð 338,94 Langa, óslægð 317,93 Langa, slægð 379,70 Keila, óslægð 159,12 Keila, slægð 258,32 Steinbítur, óslægður 221,57 Steinbítur, slægður 398,19 Skötuselur, slægður 665,48 Skarkoli, óslægður 10,00 Skarkoli, slægður 522,60 Þykkvalúra, slægð 852,03 Langlúra, óslægð 194,00 Langlúra, slægð 326,00 Sandkoli, óslægður 79,69 Sandkoli, slægður 118,45 Gellur 1.052,74 Hlýri, slægður 396,71 Hrogn/þorskur 10,00 Lúða, slægð 641,28 Lýsa, óslægð 129,73 Lýsa, slægð 161,00 Náskata, slægð 51,00 Skata, slægð 43,21 Undirmálsýsa, slægð 43,11 Undirmálsþorskur, óslægður 293,81 Undirmálsþorskur, slægður 298,89

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.