Víkurfréttir - 31.08.2022, Síða 6
Nýtt fiskveiðiár gengur í garð
Þá er fiskveiðiárið 2021-2022 lokið
og framundan nýtt fiskveiðiár.
Reyndar er nú ekki aukning á
þorskkvóta sem er frekar furðuleg
ákvörðun því það virðist vera
þorskur um allan sjó og það hefur
sést mjög vel á undanförnum vetr-
arvertíðum. Annars þegar þessi
pistill er skrifaður þá eru ekki loka-
tölur komnar inn fyrir ágúst, enn
það sem komið er ber þess merki að
veiði bátanna frá Suðurnesjunum
hafi verið nokkuð góð.
Hjá dragnótabátunum var Sigur-
fari GK með 144 tonn í 10 róðrum
og mest 31 tonn. Siggi Bjarna GK
141 tonn í 13 og mest 35 tonn. Ísey
EA 99 tonn í 11 og mest 20 tonn og
Benni Sæm GK 72 tonn í 10 og mest
11 tonn. Aðalbjörg RE var með 26
tonn í 4 og mest 10 tonn. Allir bát-
arnir lönduðu í Sandgerði og Aðal-
björg RE hóf veiðar seinnipartinn
í ágúst, því að báturinn var í slipp
í Njarðvík.
Núna er enginn minni bátur að
róa á línu frá Suðurnesjunum því
þeir eru flestir farnir í burtu. Hóp-
snes GK er á Siglufirði og var með
19 tonn í 5 róðrum. Geirfugl GK með
30 tonn í 9 og líka á Siglufirði, enn
hann er bilaður á Siglufirði. Daðey
GK er á Skagaströnd og með 36
tonn í 6 róðrum. Margrét GK á
Neskaupstað og með 84 tonn í 13.
Dúddi Gísla GK á Skagaströnd og
með 30 tonn í 9.
Stóru línubátarnir hófu veiðar
um miðjan ágúst og reyndar voru
ekki komnir með margar landanir
þegar þetta er skrifað. Valdimar GK
með 37 tonn í 1, á Djúpavogi. Fjölnir
GK 54 tonn í 1. Sighvatur GK 81
tonn í 1 báðir að landa í heima-
höfn sinni, Grindavík. Í ágúst kom
nokkuð óvænt að makríll fannst í
smá veiðanlegu magni og voru alls
9 bátar sem voru á makríl veiðum.
Allir að landa í Keflavík nema Júlli
Páls SH sem var í Ólafsvík. Alls
var landað 117 tonnum af makríl
og af því voru 103 tonnum landað
í Keflavík.
Tjúlla GK sem var fyrsti báturinn
sem hóf veiðarnar var aflahæstur
með 32 tonn í 11 róðrum, Svala Dís
KE kom þar á eftir með rúm 19 tonn
í 10 róðrum.
Eftir að strandveiðunum lauk í
júlí þá fjölgaði nokkuð handfærabát-
unum sem fóru að eltast við ufsann
og flestir voru að landa í Sandgerði,
en ufsaveiðin núna í sumar á hand-
færin hefur verið mjög góð og ljóst
Lítum á nokkra færabáta. Arnar
ÁR með 12 tonn í 5 róðrum og
mest 4,2 tonn. Snorri GK 11 tonn í
4 róðrum og mest 3,2 tonn. Dímon
GK 6.5 tonn í 4 róðrum. Björn Krist-
jánsson SH 6 tonn í 3 róðrum. Tjúlla
GK 5 tonn í 2 róðrum. Guðrún
GK 98 22 tonn í aðeins 6 róðrum
og mest 6 tonn. Von GK 13 tonn
í 5 róðrum. Sindri GK 10 tonn í 4
róðrum.
Garpur RE 8 tonn í 5 rórðum,
Addi Afi GK 22,2 tonn í 5 og mest
7,3 tonn. Margrét SU 15 tonn í 5
róðrum, Sara ÍS 12 tonn í 4, Allur
þessi floti var að landa í Sandgerði.
Netaveiðarnar gengu nokkuð vel
og voru fjórir bátar á netum í ágúst,
Maron GK var í þorskinum og með
60 tonn í 21 róðrum og Halldór
Afi GK 42 tonn í 18 róðrum báðir
að veiðum í Faxaflóa og lönduðu
í Keflavík/Njarðvík. Erling KE og
Grímsnes GK voru báðir að eltast
við ufsann og voru báðir að landa í
Grindavík og Þorlákshöfn. Reyndar
þegar að þessi pistill var skrifaður
var Erling KE kominn í Sandgerði
og hafði þá lagt netin á slóðina
beint útaf Sandgerði, Grímsnes GK
kom til Njarðvíkur og er myndin
sem fylgir með tekin af honum frá
Vatnsnesi.
Aflinn er svo til sá sami hjá
báðum bátunum. Grímsnes GK með
156 tonn í 11 og Erling KE 155 tonn
í 10 róðrum.
aFlaFrÉttir á suðurNEsJuM
Gísli Reynisson
gisli@aflafrettir.is
Rétturinn
Ljúengur
heimilismatur
í hádeginu
Opið:
11-13:30
alla virka daga
Bílaviðgerðir
Smurþjónusta
Varahlutir
Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík
sími 421 7979
www.bilarogpartar.is
50% AFSLÁTTUR
AF ÖLLU Á
OPNUNARDEGI
Huppa opnar
2. september
á Hafnargötu
6 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM