Víkurfréttir - 31.08.2022, Page 21
Reykjanesbær 1.- 4. september
Loksins höldum við aftur upp á Ljósanótt
eftir tveggja ára bið. Lögð er áhersla á
fjölbreyttar uppákomur frá fimmtudegi
til sunnudags. Hámarki nær hátíðin á
laugardagskvöldið með stórtónleikum á
útisviði, lýsingu Bergsins og glæsilegri
flugeldasýningu.
Eins og alltaf fær Ljósanótt ómetanlegt
framlag frá bæjarbúum sem standa fyrir
heimatónleikum, myndlistarsýningum eða
öðrum viðburðum sem gerir hátíðina
svo sérstaka, bæði fyrir þátttakendur og
samfélagið í heild. Fyrir það ber að þakka.
Yfir sextíu fyrirtæki í Reykjanesbæ og víðar
styrkja hátíðina í ár með fjárhagslegum
stuðningi eða öðru framlagi. Án þeirra tækist
þetta ekki og viljum við þakka þeim kærlega
fyrir ómetanlegan stuðning. Helstu bakhjarlar
Ljósanætur eru Landsbankinn, Skólamatur,
Isavia, Lagardère og Nettó.
Verið öll hjartanlega velkomin á Ljósanótt og
ekki síst nýir íbúar sem hafa ekki verið með
okkur áður. Við hlökkum til að sjá ykkur og
kynnast ykkur betur á götum Reykjanesbæjar.
Höfum gaman saman á Ljósanótt, menningar-
og fjölskylduhátíð.
Velkomin á björtustu
fjölskylduhátíð landsins
Kynntu þér alla dagskrá Ljósanætur á www.ljosanott.is