Víkurfréttir


Víkurfréttir - 31.08.2022, Blaðsíða 24

Víkurfréttir - 31.08.2022, Blaðsíða 24
„Ég byrjaði nú eiginlega bara með tvær hendur og þurfti að nurla fyrir fyrstu hjólbörunum en þetta hefur vaxið og dafnað á hverju ári eftir að við fengum fyrsta stóra verkefnið í Grindavík fyrir sjö árum síðan,“ segir Hjalti Már Brynjarsson skrúðgarðyrkjufræðingur og stofnandi fyrirtækisins Grjót- garðar ehf. Það gerðist snemma árs 2012 eftir að Hjalti útskrifaðist úr Garðyrkjuskóla Íslands. Hjalti og Geirný Geirsdóttir, eigin- kona hans fögnuðu áratugs afmæli fyrirtækisins fyrr á þessu ári en það er stofnað í marsmánuði. Það var ekki hentugt að fagna síðasta vetur þegar heimsfaraldur var enn að trufla mannlífið en afmælisveislu var slegið upp í sumar. „Já, við buðum starfsfólki okkar og helstu sam- starfsaðilum og héldum upp á tíma- mótin. Það var gaman. Þetta hefur gengið glimrandi vel, sérstaklega eftir 2015. Þá varð ákveðinn vendi- punktur í rekstrinum. Þetta var eiginlega bara sumarfyrirtæki fyrstu 2-3 árin, við vorum ekki nema þrír starfsmenn yfir veturinn en eftir að við fengum stórt verkefni við nýtt íþróttamannvirki í Grindavík fóru hjólin að snúast,“ segir Hjalti þegar hann settist niður með fréttamanni Víkurfrétta í húsnæði Grjótgarða við Fitjabraut 4 í Njarðvík. Heppinn með starfsfólk Hjalti vann í tólf ár hjá Jóni Olsen í Nesprýði og lærði þar góðan grunn en menntaði sig svo í skrúðgarðyrkju fræðum. „Við byrjuðum í upphafi í garðvinnu og lóðafrágangi en því til viðbótar í dag sinnum við einnig almennri jarðvinnu, slætti og snjó- mokstri,“ segir Hjalti. Það þarf meira en hjólbörur í þessi verkefni og í dag er fyrirtækið mjög vel tækjum og tólum búið. „Og ótrúlega góðu starfsfólki. Við höfum verið mjög heppin og margir karlarnir hafa verið lengi hjá okkur, nokkrir alveg frá upphafi,“ segir Hjalti en flestir eru þeir „uppaldir“ í Grjótgörðum en nokkrir hafa farið í nám og í dag eru tveir nemar í vinnu hjá fyrirtækinu. En hverjir eru helstu viðskipta- vinirnir? „Við erum með nokkra mjög stóra viðskiptavini eins og sveitarfélögin, Bláa lónið, HS Orku og Isavia en vinnum einnig fyrir minni aðila og einstaklinga.“ Starfsmenn hafa verið að jafnaði þrjátíu og fimm hjá Grjótgörðum undan farin ár en það er eitt nokk- urra Suðurnesjafyrirtækja sem er með rammasamning við Isavia sem snýr að verkefnum við flugstöðina en þar er gríðarleg uppbygging í gangi. Stapaskólalóðin meistaraverk Þegar Hjalti er spurður út í sér- stök verkefni sem hann hefur tekið að sér nefnir hann skólalóðina við Stapaskóla í Innri Njarðvík. „Þessi framkvæmd var ótrúlega skemmti- legt og líklega er þetta ein flottasta skólalóð landsins. Algjört meistara- verk segi ég og frábært verkefni. Lóðin var teiknuð upp og við klár- uðum hana, fengum góða undir- verktaka með okkur og þetta gekk vel. Við leggjum mjög mikla áherslu á að skila verkum okkar vel frá okkur. Viljum vanda okkur og gera vel. Þú ert alltaf dæmdur af þínum verkum og það hefur verið kappsmál hjá okkur.“ En hvað með þróun í þessum málum, hefur lóðafrágangur og tengd vinna ekki breyst eitthvað á svæðinu? „Þróunin er sú að nú vilja allir klára umhverfið hjá sér, t.d. inn- keyrslur og lóðir. Þetta er reyndar svolítið staðbundið við Suður- nesin. Hér vill fólk ekki hafa malar- plan hjá sér en það er ekki sama uppi á teningnum í mörgum öðrum sveitarfélögum eins og t.d. á Sel- fossi og Akranesi. Þú sérð ekki nýjar malar innkeyrslur við hús á Suður- nesjum. Við viljum helst hafa tjörn og gosbrunn,“ segir Hjalti og hlær en viðurkennir að þróunin sé jákvæð og tengist líka mörgum góðum bygg- ingaverktökum á Suðurnesjum sem hafa metnað í þessum málum. Hjalti nefnir aðilar sem Grjótgarðar hafa unnið með eins og Sparra, Hugverk- taka og Bygg en Grjótgarðar sáu um garðvinnu og frágang í Hlíðahverfi í Reykjanesbæ. „Við höfum líka verið í miklu og góðu samstarfi við fleiri góða aðila eins og Ellert Skúlason,“ segir Hjalti. Samfélagsleg ábyrgð Hjalti segir að hann hafi alla tíð viljað sinna samfélagslegri ábyrgð í rekstri fyrirtækisins. „Já, við höfum Grjótgarðar efh. hafa vaxið og stækkað mikið á tíu árum en fyrirtækið fagnaði áratugs afmæli á árinu. „Já, ég er gallharður Njarðvíkingur. Við erum komnir upp um deild og stefnum hátt. Það var gaman þegar við unnum Keflavík í bikarkeppninni í sumar“Hjónin Hjalti Már Brynjarsson og Geirný Geirsdóttir á skristofu Grjótgarða. Þurfti að nurla fyrir fyrstu hjólbörunum 24 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.