Víkurfréttir - 31.08.2022, Page 50
Guðmundur Sigurðsson gerði margt skemmtilegt í sumar, hann
spilaði meðal annars golf og fór til útlanda. Hann ætlar að fara
á Heimatónleikana og ballið á Ljósanótt í ár en besta minning
hans frá hátíðinni er þegar félagi hans ældi í tívolí tæki.
Hvernig varðir þú fyrsta sumar-
fríinu án takmarkana?
„Heyrðu maður gerði nú allskonar
skemmtilegt.“
Hvað stóð upp úr?
„Vinnan (er að vinna sem smiður),
djamm, golf og útlönd, allt mega
næs.“
Hvað kom skemmtilega á óvart
í sumar?
„Það sem kom skemmtilega á
óvart er það að maður þarf ekki
að vera mikið í því að saga spýtur
í smíða vinnu, eða mjög lítið að
minnsta kosti.“
Áttu þér uppáhaldsstað til að
sækja heim innanlands?
„Nei ekkert sérstaklega, er ekki
bara best að vera heima?“
Hvað ætlar þú að gera í vetur?
„Ég verð vinnandi maður í vetur
svo tekur skóli við.“
Hvernig finnst þér Ljósanótt?
„Ljósanótt er geggjuð.“
Hvaða viðburði ætlar þú að
sækja á Ljósanótt?
„Maður fer á Heimatónleikana og
svo ballið það er svona eina sem
maður hefur planað.“
Hver er besta minningin þín frá
Ljósanótt?
„Mögulega þegar ég var yngri og
Egill Darri, vinur minn, ældi í einu
tækinu það var alvöru comedy.“
Hjördís Lilja Traustadóttir ferðaðist mikið í sumar en hún fór meðal annars til Tenerife „eins og flest
allir Íslendingar“. Hún er að hefja sitt annað ár í Hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands og ætlar að spila
körfubolta með Keflavík í vetur. Hún er spennt fyrir Ljósanótt eftir tveggja ára pásu vegna Covid en
hún ætlar að kíkja niður í bæ og á Ljósanæturballið.
Hvernig varðir þú fyrsta sumar-
fríinu án takmarkana?
„Ég skellti mér til Tenerife eins og
flest allir Íslendingar, ég fór í helgar-
ferð til Suður-Frakklands, fór mikið
upp í sumarbústað og svo í veiði í
Víðidalsá.“
Hvað stóð upp úr?
„Ferðin til Suður-Frakklands stóð
sérstaklega upp úr.“
Hvað kom skemmtilega á óvart í
sumar?
„Hvað ég náði að gera mikið í sumar
á stuttum tíma.“
Áttu þér uppáhaldsstað til að sækja
heim innanlands?
„Já, sumarbústaðurinn stendur alltaf
fyrir sínu.“
Hvað ætlar þú að gera í vetur?
„Ég ætla að byrja annað árið mitt í
Hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands
og spila körfubolta með Keflavík.“
Hvernig finnst þér Ljósanótt?
„Ljósanótt er skemmtileg og við-
burðarík hátíð og eftir tveggja ára
pásu vegna Covid er ég spennt að
taka þátt í hátíðinni.“
Hvaða viðburði ætlar þú að sækja
á Ljósanótt?
„Ekkert mikið planað eins og er en
ég ætla meðal annars að fara á Ljós-
anæturballið og kíkja niður í bæ.“
Hver er besta minningin þín frá
Ljósanótt?
„Það er örugglega þegar ég var í
grunnskóla og við fengum að sleppa
blöðrunum, það var alltaf rosa
skemmtilegt.“
Er ekki bara
best að vera
heima?
Thelma Hrund Hermannsdóttir
thelma@vf.is
Thelma Hrund Hermannsdóttir
thelma@vf.is
Spennt fyrir L jósanótt
eftir tveggja ára pásu
50 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM