Víkurfréttir


Víkurfréttir - 31.08.2022, Qupperneq 54

Víkurfréttir - 31.08.2022, Qupperneq 54
Eyþór Jónsson og Svanur Þór Mikaelsson fóru af stað með rekstur á Sula Guesthouse í október á síðasta ári, þá aðeins átján og tuttugu og eins árs. Nú, ári seinna, leigja þeir út fimm bústaði skammt frá Laugarvatni og hafa einnig opnað fyrir útleigu á tveimur íbúðum á Akureyri undir nafninu Sula Apartments. Þeir Eyþór og Svanur hafa þekkst frá unga aldri og má segja að segja að Sula sé afsprengi vináttu þeirra. „Við erum alveg búnir að þekkjast síðan ég var tíu ára eða eitthvað svoleiðis, við æfðum Taekwondo saman í mörg ár með Keflavík og landsliðinu, svo sneri ég mér annað og Eyþór líka. Við héldum alltaf sambandi sem þróaðist svo í nánari vináttu þegar ég var um átján ára og erum búnir að vera óaðskiljanlegir síðan þá. Upphafið á Sula er vináttan okkar, má segja,“ segir Svanur. Aðspurðir hvort reksturinn sé búinn að hafa áhrif á vinskap þeirra segir Eyþór: „Þetta tekur alveg á, ég held við séum báðir svolítið þrjóskir og því hefur alveg komið eitthvað upp á.“ Svanur tekur undir með honum og bætir við: „Við erum samt ótrú- lega seigir að aðskilja viðskipti og vináttu. Ég held við séum alveg á góðri leið með að „mastera það“. Þegar við vorum að byrja voru ein- mitt allir að spyrja okkur hvort við tímdum þessu því það er alltaf hætta á að eyðileggja vinskapinn – og við pældum alveg í því en ákváðum að taka sénsinn. Það eru náttúrlega miklir fjármunir bundnir við við- skiptahliðina á þessu en við höldum samt fastar í vináttuna.“ „Þetta hlýtur að reddast“ Eyþór og Svanur eru með ólíkan bakgrunn. Eyþór hefur mikinn áhuga á auglýsingagerð og markaðssetn- ingu og rekur meðal annars auglýs- ingastofuna Alpha Agency. Svanur er hins vegar menntaður húsa- smiður og hefur áhuga á viðskiptum. Hugmyndin að Sula kviknaði þegar Svanur sá auglýsta bústaði til sölu og taldi hann ólíkan bakgrunn þeirra vina vera góð undirstaða fyrir rekstur í ferðamannaiðnaðinum. „Ég hugsaði mér mér að við gætum verið gott teymi því Eyþór er með tölvu- og tæknihliðina en ég er húsa- smiður og með ágætis viðskiptavit. Þegar við skoðuðum bústaðina þá var einhver rödd innra með mér sem sagði „þetta hlýtur að reddast“,“ segir Svanur og Eyþór tekur undir með honum. Þeir félagar hófu reksturinn í október 2021 með útleigu á fjórum bústöðum skammt frá Laugarvatni, fljótlega bættist fimmti við og fyrr á þessu ári opnuðu þeir svo útleigu á tveimur íbúðum á Akureyri. „Ég datt inn á einhverja auglýsingu og það var akkúrat kominn tími til að stækka við okkur og gera meira,“ segir Svanur aðspurður hvers vegna þeir bættu við sig íbúðum á Akureyri. Íbúðirnar eru staðsettar á Eyrinni og eru með svokallaða „New York loft stemmningu“ að sögn Ey- þórs og Svans. „Hugmyndin hjá þeim sem byggðu þetta var í raun svona „ski resort“, íbúðirnar eru staðsettar á Eyrinni en það eru aðeins fimm mínútur upp í fjall,“ segir Svanur. En hvernig hefur gengið hingað til? „Bilað vel,“ segir Eyþór. „Við erum náttúrlega ennþá að læra en það er bara eitthvað sem gerist í ferlinu,“ bætir hann við. „Þetta er svo nýtt fyrir okkur, þetta er ekki einu sinni orðið eins árs. Það er samt gaman að sjá hlutföllin á íslenskum og er- Thelma Hrund Hermannsdóttir thelma@vf.is Það er samt gaman að sjá hlutföll in á íslenskum og erlendum ferðamönnum hjá okkur. Í bústöðunum eru 95–99% af bókunum stí laðar á erlenda ferðamenn en svo aftur á móti er Akureyri eins og l it la Tenerife fyrir Íslendinginn og mun meira um bókanir frá þeim þar  . . . Thelma Hrund Hermannsdóttir thelma@vf.is Vinskapur var upphafið á viðskiptahugmynd Eyþór og Svanur leigja út fimm bústaði skammt frá Laugarvatni. Vinirnir Eyþór og Svanur við einn af bústöðunum. 54 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.