Víkurfréttir - 31.08.2022, Blaðsíða 55
lendum ferðamönnum hjá okkur.
Í bústöðunum eru 95–99% af bók-
unum stílaðar á erlenda ferðamenn
en svo aftur á móti er Akureyri eins
og litla Tenerife fyrir Íslendinginn og
mun meira um bókanir frá þeim þar,“
segir Svanur.
Bað guð um eldgos
Það er trú margra að eldgosið í
Meradölum muni auka ferðalög er-
lendra ferðamanna til Íslands. Það
kom Svani mikið á óvart þegar bænir
hans virtust hafa skilað sér og það
byrjaði að gjósa. „Ég á vin sem á
heima í London og hann er búinn
að vera að spyrja mig síðustu vikur
hvort ég sé ekki búinn að vera fara
með bænirnar mínar, ég náttúrlega
bara spyr hann hvaða bænir? og
hann svarar: „Já, þú verður að biðja
fyrir því að það komi ferðamannagos
til að ýta undir reksturinn.“ Ég fór
bara að hans ráðum og fór með
bænirnar mínar og viti menn, daginn
eftir byrjaði að gjósa,“ segir Svanur
spenntur. Eyþór og Svanur halda í
vonina að gosið muni standa yfir
í smá tíma til að auka útleigur yfir
vetrartímann. „Við vonum auðvitað
að þetta gos verði í smá tíma núna.
Út af því að þegar síðasta gos var þá
voru takmarkanir á landamærunum
en við höldum í þá von að þetta
verði eitthvað lengur svo veturinn
verði extra góður hjá okkur,“ segir
Eyþór [aths. blm.: Viðtalið var tekið
fljótlega eftir að gosið hófst]. „Það
er samt, ef maður pælir í því, eins og
það sé einhver æðri máttur sem er
að bæta upp fyrir áhrifin sem Covid
hafði á ferðamannaiðnaðinn. Sá
máttur „splæsti“ bara í tvö eldgos
þannig að þessi stétt gæti rétt sig
svolítið af eftir skellinn sem heims-
faraldurinn olli,“ bætir Svanur við
flissandi.
Rétt að byrja
Framtíðarplön Eyþórs og Svans
eru opin og hafa þeir ekki ákveðið
nákvæmlega hvert þeir stefna.
„Kannski opnum við fleiri einingar í
öðrum landshlutum, það væri gaman
að geta boðið upp á hringferð. Þar
sem að einingarnar sem við erum
með núna eru í sitthvorum hlut-
anum á landinu þá væri flott að vera
með íbúðir í Reykjavík og á Egils-
stöðum, sem dæmi, þá gæti fólk farið
hringinn með gistingu hjá okkur,“
segir Eyþór. Þá hafa þeir einnig velt
fyrir sér að stofna til hótelreksturs
eða einfaldlega halda áfram upp-
byggingu á rekstrarfélaginu sama í
hvaða formi það verður. „Það er allt
opið og við getum í raun gert það
sem við viljum með þetta í fram-
haldinu,“ segir Svanur. Þrátt fyrir
að plönin liggi ekki fyrir eru þeir
spenntir fyrir framhaldinu og eru
stoltir af því hversu langt þeir eru
komnir á stuttum tíma. „Við erum
bara rétt að byrja,“ segir Eyþór að
lokum.
Ég fór bara að
hans ráðum og
fór með bænirnar mínar
og viti menn, daginn
eftir byrjaði að gjósa . . .
Umsóknir í auglýst störf skulu berast rafrænt gegnum vef
Reykjanesbæjar. Þar eru jafnframt nánari upplýsingar um auglýst
störf. Hægt er að notast við QR kóða til að fara beint inn á vefinn
Súlan - Verkefnastjóri á Bókasafn Reykjanesbæjar
Fræðslusvið - Leikskólakennari á leikskólann Holt
Fræðslusvið - Starfsmaður skóla
Fræðslusvið - Starfsmaður í Nýheima og frístund
Fræðslusvið - Sérkennari á leikskólann Holt
Starf við liðveislu
Velferðarsvið - Stuðningsfjölskyldur
Velferðarsvið - Tilsjónaraðilar í barnavernd
Velferðarsvið - Starfsmaður í Skjóli- frístundarstarfi
barna með stuðningsþarfir
Störf í boði
hjá Reykjanesbæ
Viðburðir í september
Listasafn Reykjanesbæjar opnar sýninguna
Ráð á fimmtudaginn 1. september,
klukkan 18:00. Sýninginn Ráð er
samansett af nýju listráði Listasafns
Reykjanesbæjar. Listráð skipaða þau;
Kristinn Már Pálmason, Andrea Maack
og Gunnhildur Þórðardóttir.
LISTASAFNIÐ 1. SEPT
Ráð
ROKKSAFNIÐ Í SEPTEMBER
Úrklippubókasafn
Kela
Rokksafn Íslands opnaði í ágúst nýja
sýningu sem fjallar um Sævar Þorkel
Jensson, betur þekktur sem Keli, og
úrklippubókasafn hans en hann hefur
frá unga aldri safnað úrklippum og
eiginhandaráritunum tónlistarfólks.
Byggðasafn Reykjanesbæjar opnar nýja
sýningu fimmtudaginn 1. september kl.
18 í Duus safnahúsum. Byggðasafnið
varðveitir yfir 60 saumavélar, þar á
meðal saumavél sem framleidd var á
árunum 1860-1870. Líklega er um að
ræða eina af elstu saumavélum landsins.
DUUS SAFNAHÚS 1. SEPT
Hér sit ég
og sauma
BÓKASAFNIÐ 1. SEPT
Ofurhetjur fara
sínar eigin leiðir
Sýningin „Ofurhetjur fara sínar eigin leiðir“
verður opnuð í Bókasafni Reykjanesbæjar
fimmtudaginn 1. september kl. 17.00. Á
sýningunni verða munir, bækur og blöð er
tengjast ofurhetjuheiminum. Hvetjum alla
til þess að mæta í ofurhetjubúningi!
Kíktu Visit Reykjanesbær
til að sjá alla dagskrána
Á Visit Reykjanesbær má finna margvíslegar upplýsingar um Reykjanesbæ
og þá afþreyingu sem þar er í boði fyrir börn og fullorðna.
www.visitreykjanesbaer.is
Ljósanótt
Velkomin á Ljósanótt, menningar- og
fjölskylduhátíð Reykjanesbæjar. Viðamiklar
uppákomur frá fimmtudegi til sunnudags með
stórtónleikum á útisviði og flugeldasýningu á
laugardagskvöldi.
Allt um dagskrána á ljosanott.is
Listasafn Reykjanesbæjar, býður
upp á Rauðvínsyoga, klukkan 12:00
laugardaginn 3. september. Rauðvíns-
jóga er rólegt jóga sem hentar öllum 20
ára og eldri sem drekka rauðvín.
LISTASAFNIÐ 3. SEPT KL. 12:00
Rauðvínsjóga
„Kynslóðir“ er ný uppistandssýning þar
sem Bergur Ebbi skemmtir fólki í heila
kvöldstund með gamanefni sínu um
vesenið sem fylgir því að búa á Íslandi
og lifa á tímum stórkostlegra tækni- og
þjóðfélagsbreytinga.
HLJÓMAHÖLL 23. SEPT KL. 20:00
Bergur Ebbi-
„Kynslóðir“
Það er sannkölluð menningarveisla
framundan í september en þá verður
Ljósanótt loksins haldin með öllum sínum
fjölbreyttu viðburðum eftir þriggja ára hlé.
Á vefsíðu Ljósanætur er heildardagskrá
hátíðarinnar að finna og telur hún í kringum
150 viðburði. Menningarstofnanir bæjarins
taka að vanda virkan þátt í hátíðinni og
bjóða ókeypis aðgang yfir Ljósanæturhelgina
bæði í Duus Safnahús og Rokksafn Íslands.
Nýjar sýningar verða opnaðar og fjölbreytt
dagskrá verður í húsunum. Ljósanótt er frábær
innspýting inn í haustið og veturinn framundan og
markar upphafið að vonandi innihaldsríkum og
fjölbreyttum viðburðum vetrarins.
vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM // 55