Víkurfréttir - 31.08.2022, Side 56
Jóhann Smári Sævarsson keypti lestarmiða í Þýskalandi í sumar
fyrir níu evrur og miðinn virkaði í allar lestarsamgöngur í landinu
í heilan máluð. Hann ferðaðist til Þýskalands og Austurríkis í
sumar en ætlar að kíkja í árgangagönguna og á laugardagstón-
leika í Duus safnahúsum á Ljósanótt.
Hvernig varðir þú fyrsta sumar-
fríinu án takmarkana?
„Við ferðuðumst til Þýskalands og
Austurríki og svolítið innanlands,
svo máluðum við húsið og notuðum
pallinn eins og hægt var.“
Hvað stóð upp úr?
„Að litli afastrákurinn minn hann
Yngvi Leó kom í heiminn og ég varð
afi í fyrsta sinn.“
Hvað kom skemmtilega á óvart í
sumar?
„9€ lestar miðinn í Þýskalandi sem
gekk í allar samgöngur út um allt
land í mánuð.“
Áttu þér uppáhaldsstað til að sækja
heim innanlands?
„Vík í Mýrdal.“
Hvað ætlar þú að gera í vetur?
„Vinna áfram í húsinu okkar. Eiga
frábært samstarf við samstarfsfólk
og nemendur, setja á svið eitthvað
glæsilegt verkefni og njóta að vera
með fjölskyldu og vinum.“
Hvernig finnst þér Ljósanótt?
„Skemmtileg tilbreyting í mann-
lífinu.“
Hvaða viðburði ætlar þú að sækja
á Ljósanótt?
„Árgangagönguna, laugardagstón-
leikana í Duus-húsum svo kíkjum
við alltaf á málverkasýningar og
flugeldasýninguna sem við reyndar
sjáum út um stofugluggan okkar ef
við erum löt.“
Hver er besta minningin þín frá
Ljósanótt?
„Þegar við hjá Norðuróp vorum með
sýningu í Dráttarbrautinni gömlu,
það var magnað! Og svo var árið sem
árgangurinn minn varð 50ára og svo
hittingur með fjölskyldu og vinum.“
„Get horft á
flugeldasýninguna
út um stofugluggann
ef ég er latur“
Hilmar Bragi Bárðarson
hilmar@vf.is
Á heitum sumardegi í München í Þýskalandi.
Brugðið á leik með börnunum í Baldri við Grófina.
Tómas J. Knútsson, foringi Bláa hersins, hefur haft í nógu að snúast í sumar við nokkur hreins-
unarverkefni í fjörum Reykjanesskagans. Tommi hefur verið lengi að og rifjar upp í viðtali við
Víkurfréttir þegar hann og félagar hans tóku að sér að hreinsa rusl undan Berginu áður en ljósin
þar voru kveikt í fyrsta skiptið.
Hvernig varðir þú fyrsta sumar-
fríinu án takmarkana?
„Það var ekkert farið í sumarfrí
þetta sumarið. Það var búið að
skipuleggja nokkur hreinsunar-
verkefni í fjörum Reykjanesskagans
og meðfram Suðurströndinni sam-
kvæmt samningi við yfirvöld og var
bara heilmikið að gera. Ekki hafa þó
stjórnvöld sett neitt fjármagn til
verksins eins og lofað var þannig að
við erum bara róleg núna, kannski
rætist úr haustinu og eitthvert smá
ferðalag sér dagsins ljós út á land.“
Hvað stóð upp úr?
„Fyrsta apríl giftum við okkur og
fórum í brúðkaupsferð til Þorláks-
hafnar, Eyrarbakka og borðuðum
í Mathöllinni í Hveragerði. Óvæn-
tasta atriði ársins. Þetta var ekki
gabb og kom öllum í opna skjöldu.“
Áttu þér uppáhaldsstað til að
sækja heim innanlands?
„Reykjanesskaginn er mitt uppá-
halds svæði landsins. Hér er öll
fegurð landsins sameinuð á einu
svæði.“
Hvað ætlar þú að gera í vetur?
„Hver veit nema að skroppið verði í
sólarlandafrí. Annars eru næg verk-
efni innandyra sem betur fer.“
Hvernig finnst þér Ljósanótt?
„Ljósanótt sem og aðrar bæjar-
hátíðir eru ákaflega skemmtilegar
og fá allt það besta fram hjá mann-
fólkinu, allir ættu að geta notið
sín og haft gaman af. Mér finnst
skemmtilegast að fara um fimmtu-
dagskvöldið á milli sýninganna og
verslanna og hitta fólk, árganga-
gangan er mjög skemmtileg og
einnig er öll tónlistarflóran mögnuð
upplifun.“
Hver er besta minningin þín frá
Ljósanótt?
„Bestu minningar mínar frá Ljósa-
nótt eru tvær. Sú fyrsta var þegar
Steini á Hótel Keflavík bað okkur
strákana í Bláa hernum að hjálpa
sér að gera þessa fyrstu hátíð eins
ánægjulegasta og hægt væri en
auðvitað vissum við ekkert hvernig
til myndi takast, alltaf spilar veðrið
sína rullu og þetta var bara svona
tilraun. Við strákarnir hreinsuðum
allt Bergið og fjöruna af öllu rusli,
kveiktum á rosalega mörgum frið-
arkertum meðfram allri ströndinni
og vorum í allskonar verkefnum út
um allt til að láta þetta ganga sem
best, veðrið var frábært 15 stiga hiti
og allt gekk upp. Ég man alltaf hvað
okkur fannst þetta hafa heppnast
vel og bæjarbúar virtust hafa
skemmt sér konunglega. Síðan er
minningin mjög skemmtileg þegar
ég var með aðsetur í Grófinni 2 og
var alltaf með opið hús hjá Sport-
köfunarskóla Íslands og sjávar-
dýrasýningarnar fyrir börnin. Að
lokum eru bílarnir og hjólin alltaf
augnayndi.“
Hilmar Bragi Bárðarson
hilmar@vf.is
Magga Hrönn
Kjartansdóttir og
Tómas J. Knútsson á
brúðkaupsdaginn.
Frá hreinsunarverkefni við Selvog.
Að afloknu hreinsunarverkefni á Garðskaga.
Með stórfjölskyldunni í Vík í Mýrdal.
56 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM