Rökkur - 01.10.1922, Page 11

Rökkur - 01.10.1922, Page 11
allt í einu, allur svipurinn hýrnaði og höndin hélt áfram að skrifa. Mér leikur grunur á, að vinnudrýgstu stundir hans hafi oft verið eftir kvöldverð og fram undir miðnætti. — Hann tók í nefið. Og var það almennt meðal reykvískra mennta- manna. Silfurdósir gáfu samkennarar hans honum sjötugum. Og þær bar hann æ eftir það. En birgðir geymdi hann æ í tveim flöskum og var tóbaksbaun í hvorri. Hann reykti venjulega nokkra vindla á dag, en aðeins smávindla. Stóra vindla reykti hann vart. Sígarettur eða pípu aldrei. Vindla sína og ýmislegt annað pantaði hann að jafnaði sjálfur, frá Þýzkalandi. Yfirleitt hefi ég fáa menn þekkt, sem létu sér eins yndi verða að ýmsu, sem í fljótu bragði kann að skipta litlu um. Hann átti það til dæmis til, að panta einhverja nýja frætegund, áður óreynda heima, og það var honum ánægja, að sá henni, bíða eftir, vona, að eitthvað kæmi upp. í garðinum voru um þetta leyti þrjár reyniviðarhríslur. Þær voru á að gizka hálf önnur mannhæð, og gnæfðu því hátt yfir ribs- og sólberjarunnana. Að ráði Scherbecks landlæknis lét hann vökva blóði rætur þessara trjáa. Var það gert í sláturtíðinni á hverju hausti. Var Scherbeck urtagarðsmaður mestur á íslandi lengi vel, og mikill vin blóma og trjáa. En aldrei gleymdi faðir minn heitinn reyniviðarhríslunum sín- um. Það var honum yndi að hlúa að þeim frá því snemma á vorin og á haust fram. Þá tíndi hann fræin, sem hann reyndi að sá til þess að framleiða nýjar plöntur. Allt þetta var honum yndi. Gleðiefni. Oft lét hann hendur sínar leika um börkinn, til þess að ganga úr skugga um, að hann væri heill. Barkarsýki kom í eitt reyniviðartréð og huldi hann eyðurnar með efni, sem er til þess gert, að varna barkar- eyðingu eða koma í veg fyrir hana. Og ég vissi, að honum féll það sárt, er hríslan sú dó út. Og það var margt annað, sem veitti honum yndi og seiddi fram bros á varir hans; Að svara spurningum okkar barnanna, að virða eitthvað fyrir sér í garðinum sínum, að horfa á glampana, sólskinsblettina einkennilegu í Esjunni og margt fleira. Allt þetta og margt fleira veitti honum yndi, ýmislegt, sem margur maðurinn lokar augum sínum fyrir, sem virðist smálegt og þýðingar- lítið mörgum, en samt getur framleitt innri hamingju, sem innri hamingja getur nærst á. Prófessor Haraldur Níelsson segir í Andvara, að hann hafi brosað manna fegurst og að hann minntist ekki, að hafa séð fegurri augu en hans, nema ef vera skyldi í Indverjum. Ég held það sé ekki of mælt að segja, að þrjá f jórðu dags hvers, 11

x

Rökkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.