Rökkur - 01.10.1922, Side 13

Rökkur - 01.10.1922, Side 13
sonar, einnig í Skálholti. Er frá honum Finsensnafnið runnið og var Niels Finsen af þeirri ætt. Þeir Árni heitinn landfógeti og faðir minn voru albræður, og áttu þeir það sameiginlegt, að þeir voru báðir urtagarðsmenn og vinir trjáa, blóma og skóga. Var Árni heitinn atorkusamur í þá átt og var garður hans ef til vill fegursti blómagarður í Reykjavík. I æðum föður míns rann því göfugt blóð, en meira er um það vert og vert finnst mér að geta þess, að Þórunn móðir hans hafði verið mesta ágætiskona, sem vildi æ hjálpa bágstöddum. Bjarni amtmaður, afi minn, var og merkismaður að mörgu leyti og sparsemdarmaður mesti. En aldrei mun hann hafa um það fengizt, þó að Þórunn gæfi úr skemmu. Er frá því sagt, að eitt sinn, þá er hann fór í eftirlistferð í skemmu, hafi hann sagt: Ég sé, að hérna hefir hún Þórunn mín verið. En hann hafði sagt það brosandi. — Tel ég víst, að faðir minn, eins og góðir menn meðal allra þjóða, hafi átt móður sinni mikið að þakka. í Landsbókasafninu eru til bréf frá honum ungum dreng. Ber á gamansemi í þeim og þá skrifaði hann sig Steingrím Bjama- son. Móður sinni gleymdi hann ekki, og var yngri systur minni það nafn gefið. Systir mín, er dó í æsku, bar og það nafn. — Faðir minn mundi því langt og gat frá mörgu sagt, sem vitan- legt er, og var oft fyndinn og hafði lag á að segja þannig frá, að sérkennilegt var. Hann mundi svo langt, eins og hann sagði í ræðu, sem haldin var á áttugasta afmælisdegi hans, að aldrei var talað um annað en rentukammer og kancelli. En hann var heldur spar á að segja frá fyrri dögum, enda við börn hans ung þá og spurðum lítið í þá átt á þeim dögum. Hann var maður tvíkvæntur. Fyrri kona hans var dönsk. Þau áttu einn son, Bjarna heitin, er var læknir á Friðriksbergi. Hann var maður heilsutæpur. Hann var mjög intereseraður í sálarrannsóknum síðari tíma og tók þátt í slíkum félagsskap og var varaformaður í þekktu félagi í Höfn, er gaf sig að slíkum málum. Gáfu þeir út fyrirlestra Bjarna heitins, skömmu eftir andlát hans. Þeir feðgarnir skrifuðust æ á, með hverri ferð. Ég man, að þegar hin sorglegu tíðindi um andlát Bjarna heitins bárust, sátum við yfir morgunverði. Bréfberinn barði að dyrum og rétti inn nýkomin Hafnarbréf. Faðir minn tók bréfin og sá, að eitt þeirra var með rithönd unnustu Bjarna heitins. Hann las það bréfið. Ég man, að ég sá litla breytingu á andliti hans, en hann andvarpaði þungan. Ég veit ég man það andvarp til æviloka. 13

x

Rökkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.