Rökkur - 01.10.1922, Page 27
„Þér munuð hafa tekið eftir því, að Gaska er öðruvísi en allar
hinar. Það eru áhrif blóðblöndunar. Faðirinn var danskur."--------
Smámsaman færðist rökkrið yfir. Þeir höfðu talað um alla heima
og geima og reykt sig syfjaða. Þeir töluðu um styrjöldina fram og
aftur og um blóðblöndun Dana og íslendinga.
Þeir töluðu um Albert Thorvaldsen og list hans, og Niels Finsen
og Ijóslækningar hans, þessi íslenzk-dönsku mikilmenni og störf
þeirra í þarfir mannkynsins. En þegar Gunnar háttaði um kvöldið,
þá var hann ekki að hugsa um ljóslækninn mikla, sem hafði tendr-
að ljós lífsgleðinnar í sálum fjölda manna. Og ekki hugsaði hann
um listamanninn, sem með ódauðlegum listaverkum sínum glæddi
ást þjóðanna á hinu fagra og guðdómlega.
Hann hugsaði án afláts um Gösku, pólsku stúlkuna, útskúfaða,
föðurlausa, — með dökku, dreymandi augun, sem sendu geisla inn
í hugskot hans, frá göfugri, líðandi sál.
Haustið var komið. Skógurinn var farinn að fella laufið. Og
þegar geislar kvöldsólarinnar leiftruðu í hálffölnuðu skógarliminu,
þúsundlita, glömpuðu á rúðunum á vesturhlið hússins — hvítmál-
aða, með rauða þakinu, — umkringt skógi, þá fylltist hugurinn
kyrrð og friði. Og þegar síðustu farfuglarnir sungu kveðjusöngva
sína, fylltist hjarta hans söknuði og þrá.
Gunnar hafði verið að plægja allan daginn.
Og jafnóðum sem plógurinn velti strengnum fæddust nýjar hugs-
anir og gamlar dóu.
Þann dag talaði hann við Gösku í fyrsta sinni.
Hestarnir höfðu staðnæmst allt í einu. Hann reiddi svipuna.
„Ekki að berja“, var sagt með þýðri rödd.
Gaska var komin með miðaftanskaffið handa Gunnari. Hann
barði ekki hestana. Tók hafrapokana og lét þá fara að éta.
Síðan settist hann á plóginn. Og um leið og hann drakk kaffið,
virti hann Gösku fyrir sér og hugsaði um hana. Aldrei höfðu þau
talazt við, aldrei verið ein saman fyrr. Og þó vissu þau, að þau
skildu hvort annað og voru vinir, betri vinir en flestir aðrir, sem
því nafni nefnast. Og þau þekktu hvort annað, eins og hann þekkti
sjálfan sig — og hún sig.
27