Rökkur - 01.10.1922, Qupperneq 27

Rökkur - 01.10.1922, Qupperneq 27
„Þér munuð hafa tekið eftir því, að Gaska er öðruvísi en allar hinar. Það eru áhrif blóðblöndunar. Faðirinn var danskur."-------- Smámsaman færðist rökkrið yfir. Þeir höfðu talað um alla heima og geima og reykt sig syfjaða. Þeir töluðu um styrjöldina fram og aftur og um blóðblöndun Dana og íslendinga. Þeir töluðu um Albert Thorvaldsen og list hans, og Niels Finsen og Ijóslækningar hans, þessi íslenzk-dönsku mikilmenni og störf þeirra í þarfir mannkynsins. En þegar Gunnar háttaði um kvöldið, þá var hann ekki að hugsa um ljóslækninn mikla, sem hafði tendr- að ljós lífsgleðinnar í sálum fjölda manna. Og ekki hugsaði hann um listamanninn, sem með ódauðlegum listaverkum sínum glæddi ást þjóðanna á hinu fagra og guðdómlega. Hann hugsaði án afláts um Gösku, pólsku stúlkuna, útskúfaða, föðurlausa, — með dökku, dreymandi augun, sem sendu geisla inn í hugskot hans, frá göfugri, líðandi sál. Haustið var komið. Skógurinn var farinn að fella laufið. Og þegar geislar kvöldsólarinnar leiftruðu í hálffölnuðu skógarliminu, þúsundlita, glömpuðu á rúðunum á vesturhlið hússins — hvítmál- aða, með rauða þakinu, — umkringt skógi, þá fylltist hugurinn kyrrð og friði. Og þegar síðustu farfuglarnir sungu kveðjusöngva sína, fylltist hjarta hans söknuði og þrá. Gunnar hafði verið að plægja allan daginn. Og jafnóðum sem plógurinn velti strengnum fæddust nýjar hugs- anir og gamlar dóu. Þann dag talaði hann við Gösku í fyrsta sinni. Hestarnir höfðu staðnæmst allt í einu. Hann reiddi svipuna. „Ekki að berja“, var sagt með þýðri rödd. Gaska var komin með miðaftanskaffið handa Gunnari. Hann barði ekki hestana. Tók hafrapokana og lét þá fara að éta. Síðan settist hann á plóginn. Og um leið og hann drakk kaffið, virti hann Gösku fyrir sér og hugsaði um hana. Aldrei höfðu þau talazt við, aldrei verið ein saman fyrr. Og þó vissu þau, að þau skildu hvort annað og voru vinir, betri vinir en flestir aðrir, sem því nafni nefnast. Og þau þekktu hvort annað, eins og hann þekkti sjálfan sig — og hún sig. 27
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Rökkur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.