Rökkur - 01.10.1922, Page 32
„Rúdolf er dáinn — fyrir mér. Ég ætlaði að segja meira áðan.
Hann lifir. Það er aðeins fyrir mér, sem hann er dáinn. Hann er
líklega giftur nú, rússneskri stúlku. Ástralíudraumurinn minn var
öðruvísi en hans. Rúdolf hugsaði bara um, að þar gætum við orðið
rík. En sleppum því. Þessi stúlka hefir gert svo mikið fyrir hann.
Hún hjúkraði honum dauðvona. Hann segir, að hann eigi henni
lífið að launa.“
„Og svo giftist hann henni af tómri þakklátsemi!“
„Ég get ekki láð honum það. Við vorum ólíkari en ég hélt.
Hversu ólíkar voru ekki skoðanir okkar um Ástralíu, framtíðar-
landið okkar. Aldrei drógu peningarnir mig eða vonin um þá.
Vonir mínar voru hamingjuríkir sólskinsdraumar. Landið steig
upp fyrir hugskotssjónum mínum grænt og skrúðklætt. Það var
friður og hamingja.
Þar var engin harðstjórn. Engin kúgun. En frelsið breiddi faðm-
inn á móti mér.
Þar fannst mér, að ég mundi geta neytt krafta minna, sem voru
bundnir og kúgaðir, auðgað anda minn, drukkið alla andans fegurð
í djúpum teigum. Þar hélt ég, að ég gæti orðið góð og göfug, og
hjálpað öðrum í baráttunni til þess að verða það.
En svo sá ég, að þetta var aðeins táldraumur. Nú er allt svo
breytt. Þegar styrjöldin var komin í algleyming, fannst mér syrta
að úr öllum áttum. Öll dýrðin hvarf. Allt það góða, sem ég hafði
gert mér í hugarlund, að núlifandi kynslóðir myndu leiða til sigurs,
var aðeins táldraumur, sem hugmyndaflug mitt skapaði.“
„Hefirðu þá alveg misst trúna á, að þessir draumar geti rætzt?“
„Nei. Aðrar kynslóðir munu koma, sem leiða göfugustu hug-
sjónir mannanna til sigurs. Trúleysið minnkar hröðum fetum. Og
trúin á annað líf eykst að sama skapi.“
„Ég skil þig, Gaska. Hjá þér finn ég alvöru trúarinnar svo ljós-
lega. Ég trúi, af því ég elska þig, af því að ást þín hefir skapað
trú mína.“
„Segðu það ekki. En í hugum okkar lifa sömu vonir, sömu kennd-
ir og hugsanir. Sálir okkar hafa verið eins og samstilltir strengir.“
Stundin var liðin. — Hlýtt handtak.
Augu þeirra mættust og þau lásu leyndustu hugsanir hvors annars.
Óðum leið að burtfarartíma hans. Hver dagur var sem andartak.
32