Rökkur - 01.10.1922, Qupperneq 33

Rökkur - 01.10.1922, Qupperneq 33
Kvíðinn fyrir skilnaðinum við Gösku hafði vaxið hröðum fetum síðustu vikurnar. En hún gat eytt honum að mestu. „Þú mátt ekki vera hryggur, vinur minn,“ sagði hún. „Ég bíð þín — og hugsa til þín hverja stund. Meðan styrjöldin geisar, verðum við að vera þolinmóð. Að henni lokinni kemur þú aftur frá Eng- landi. Svo förum við bæði til Astralíu, „fyrirheitna landsins“ okkar hér á jörðunni.“ Og þau brostu bæði að tilhugsuninni um framtíðina, sem í augum þeirra var björt og fögur, eins og sólargeislarnir. Skilnaðarstundin var liðin. — Elann var lagður af stað, á leið til Englands. Járnbrautarlestin þaut norður Sjáland, á leið til Kaupmannahafnar. Þeir voru sex í járnbrautarklefanum, Gunnar Arnar og fimm Þjóðverjar. Á hvaða ferðalagi þeir voru, vissi hann ekki — og hugs- aði ekki um það. Hann gat ekki annað en hugsað um Gösku, án afláts, fram og aftur. Tveir Þjóðverjanna raula Das LiecL der Deutschen í hálfum hljóð- um. En einn hinna, sem veit að Gunnar er íslendingur, tekur landa- bréf upp úr brjóstvasa sínum. Hann breiðir það út, bendir á París og St. Pétursborg og hvíslar: „Nach Paris! Nach St. Petersburg!" — Og hann brosir út undir eyru. En Gunnar hristir höfuðið og hugsar áfram um Gösku. Hann er kominn til Kaupmannahafnar. Honum bregður við eftir kyrrðina á Hábæ. Allt er á ferð og flugi, og honum finnst, að hann geti hvergi verið í ró með hugsanir sínar. „Því fyrr, sem ég kemst héðan, því betra,“ hugsaði hann. „Úranía“ átti að fara daginn eftir til Englands. Hann ákvarðaði sig þegar og símaði til Hábæjar: „Fer á morgun. Úranía. Beztu kveðjur. Gunnar Arnar.“ — Hann gengur heim, þangað sem hann bjó. Hann er þreyttur á sál og líkama, og kastar sér út af á legubekkinn. Óðara en hann festir blundinn, dreymir hann Gösku. Hún er í hvítum klæðum og svarta, fagra hárið liðast niður um 33 3
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Rökkur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.