Rökkur - 01.10.1922, Síða 36

Rökkur - 01.10.1922, Síða 36
hennar höfðu fallið á það. Það vissi hann. Og hann kyssti það — oft, mörgum sinnum. — Og tár hans máðu skriftina: „Ástin mín! Ég þoli ekki að skrifa mikið. Hönd mín er svo óstyrk að skrifa. Og ég á svo bágt með að skrifa á dönsku. En frú Larsen situr hérna hjá mér og segir mér til, hvernig ég á að skrifa hvert orð rétt. En það gerir minna til með það. Ég veit, að ég á ekki langt eftir, Gunnar. Komdu til min, hjartans vinur minn! Komdu til mín — og kysstu mig. Ég vil fara með koss þinn á vörunum inn í eilífðina. — Komdu og kysstu Gösku þína, sem elskar þig alltaf, — allar stundir.“ Jólin eru liðin. Hann hafði þrýst hinzta kossinum á varir hennar. Logn. Eilíft logn. Og hiti um háveturinn. Aldrei frost. Aldrei stormur — og aldrei snjókoma. Og hugur hans flýgur norður í höf, þar sem er stormur, grenj- andi norðanbylur og hörkuhríð. — Stormur, sem æðir yfir haf og hauður, og strýkur allt, — dautt og lifandi, miskunnarlaust. Hann þyrlar upp fimbulháum öldum, slítur akkerisfestar og brýtur skipin í spón, velkir líkum sjómannanna fram og aftur í bárunum. Hann keyrir öldurnar með reginafli að hömrum og klettum, myndar hella og ginnungagöp. Hann sendir freyðandi öldur langt upp eftir söndunum, glettnar og lævísar. Og brimhljóðið hrærir dýpstu strengi sálarinnar, ómar ýmist blítt eða strítt, ýmist sem vægðarlaus drottnari eða sem barn hjali við leikfang sitt. Og stormurinn þyrlar fönnunum í dyngjur, margra mannhæða skafla og grefur menn og dýr í mjúkri, hlýrri mjöllinni. Hjarta hans fyllist eldheitri þrá til landsins kalda, þar sem höfuð- skepnurnar syngja þessi ljós sín yfir fátækri þjóð — frá vöggunni til grafarinnar. En meðan þessar volegu raddir hljóma, fyllist hugurinn hatri, ást, þrá og heift. Mildur blær frá fölnuðum skógarlundum strýkur vanga hans, kemur með hlýja hönd og gerir lundina angurværa og viðkvæma. 36
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Rökkur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.