Rökkur - 01.10.1922, Qupperneq 38
Vitavörðurinn
Eftir Henryk Sienkiewirz.
I.
Þau undur gerðust eitt sinn, að vitavörðurinn í Aspinwall, sem
er skammt frá Panama, hvarf með öllu. Hann hvarf með öllu, og
menn gátu sér þess til, að hann hefði verið staddur á slæmum stað
á skerbrúninni og hann hefði tekið út. Vitinn stendur sem sagt á
dálítilli eyju eða kletti, þar sem illt er um fótfestu á öllum brúnum
og allra veðra von. Það var því enginn vitavörður í Aspinwall í
svip og það varð að fá annan vitavörð undir eins og nokkur tök
voru á. Staðan var þýðingarmikil, því smáskipaumferð var mikil á
þessum slóðum. Og stóru skipin, sem fara milli Panama og New
York, fara þar fram hjá líka. Og framundan Nývík er firn af skerja-
hryggjum og sandrifjum. Á milli þeirra er vandsiglt, þó á degi sé.
En enn vera er það þó að næturlagi. Og á þessum slóðum er þoku-
samt mjög, því þetta er í hitabeltinu, svo sem kunnugt er og sólar-
hitinn afskaplegur og uppgufun sjávarins eftir því. Að næturlagi
eru því vitaljósin nær einu leiðbeiningar sjómannanna. — Það er
hlutverk ræðismanns Bandaríkjanna í Panama, að útvega nýjan
vitavörð. Og það er hlutverk, sem erfitt er að inna af hendi. í fyrsta
lagi er það þýðingarmikið að fá hæfan mann innan tólf tíma. í
öðru lagi mátti ekki veita slíka stöðu nema framúrskarandi gætnum
og ráðvöndum manni, og því ekki hægt að taka þann, sem fyrst
bauðst af handahófi.
Og í þriðja lagi var úr fáum eða engum að velja. Líf í vitaturni
er tilbreytingarlaust. Og slíkar stöður eiga vart við fólk suður þar.
Þar unna menn frjálsu lífi, áhyggjulausu letilífi. Vitavörður í Aspin-
wall er nokkurs konar fangi. Aðeins á sunnudögum má hann fara
inn til Aspinwall-þorps. Bátur frá þorpinu kemur að vísu til vitans
daglega með mat og vatn, en fer jafnharðan til sama lands aftur.
Á skerinu eða klettinum, sem er ein ekra að stærð, býr enginn nema
vitavörðurinn. Hann býr í vitanum. Hann sér um, að allt sé þar
í lagi. Á daginn dregur hann upp alls konar flögg, sem tákn þeirra
38