Rökkur - 01.10.1922, Side 66
A stöðinni
Handtök hinstu,
höfug tár.
„Mundu, minnstu
mín um ár.“
Lestin langa
er löngu á burt.
Gests er ganga
Guð veit hvurt. —
Ár og árin
eigra burt.
Sorg og sárin
sitja um kjurt. —
Elinor Glyn
og amerískar konur.
í vel þekktu amerísku tímariti, sem út kom seinni hluta ársins
1921, er grein eftir frú Clayton Glyn, sem þekkt er undir nafninu
Elinor Glyn. Elinor Glyn er, sem kunnugt er, fræg skáldkona, og
þessi grein hennar hefir vakið mikla eftirtekt. Fyrirsögn greinar-
innar er: „What is the matter with you Ameriian womenV' Elinor
Glyn hefir verið hér vestan hafs fyrr, fyrir tuttugu árum síðan;
síðastliðið ár kom hún aftur. Og hún skrifar um það, sem er efst
á baugi í sál hennar, um það, sem hið glögga gestsauga hennar
lítur. Grein þessi er skrifuð af heimsfrægri skáldkonu, sem ann
öllu því, sem fegurst er í amerísku1) þjóðlífi, amerískri menningu,
1) Hér vestra þegar minnzt er á Ameríkumenn, amerískar konur o. s. frv.,
er átt við Bandaríkjafólk, en ekki kanadiskt fólk. Heima á fslandi er öllu
oft grautað saman svo sem kunnugt er.
66