Rökkur - 01.10.1922, Page 78

Rökkur - 01.10.1922, Page 78
Lenka var skilin ein eftir við fráfall hans með veikburða son. Öll þrá Lenku var að halda í honum lífinu. Hann var lífsþrá hennar. Hún óf sjálf dúkinn, sem föt hans voru gerð úr. Hún ræktaði sjálf hveitið og ávextina, sem hann nærðist á. Hún baðaði hann úr legi af hnotviðarlaufum úr garðinum og lét hann drekka geitamjólk, til þess að koma tápi í hann. En hann varð aldrei tápmikill. Og er Balkanstyrjöldin hófst 1912 og hermennirnir lögðu af stað og synir Simunar í fararbroddi, var sonur Lenku skilinn eftir, þrátt fyrir einkennisbúninginn, sem móðir hans hafði saumað á hann og sverðið og skammbyssuna, sem hún hafði keypt handa honum. Því sonur hennar var ekki álitinn stríðsfær. En þeir tímar komu seinna, að Serbía þurfti á öllum sínum sonum að halda, hraustum og óhraustum, til þess að halda óvinahernum í skefjum, aftra því að hann væði yfir landið. Þá kom Simun fram sem vinur Lenku. Hann útvegaði syni hennar örugga stöðu í hjúkrunarvagna- deild og sagði sonum sínum að gæta hans, er þeir gætu því við- komið, „vegna vesalings ekkjunnar, móður hans.“ En sonur hennar dó úr kulda og vosbúð árið 1915, þegar serbneski herinn varð að láta undan síga, á undanhaldinu hræðilega yfir Albaníu. Og dag einn bar gest, flóttamann, að kofadyrum Lenku. Og hann færði henni herfrakka, húfu og vopn dáins sonar hennar. Hún grét yfir þessum hlutum og lagði þá til hliðar, varlega, sem dýra minjagripi, sem nokkurs konar heiðurstákn, er hún gæti sýnt, er herinn kæmi heim, þó smá væru samanborin við minjagripi þeirra, er misst höfðu syni í orustu eða áttu sonu, er getið höfðu sér mikla frægð. Og líf hennar var enn einmanalegra en áður og hún kom varla til þorpsins, þar sem nú voru hermenn í alls konar einkennisbún- ingum. Þar voru stórar auglýsingar, á þremur tungumálum, er lögðu fólki lífsreglurnar. Því óvinaherinn hafði setzt að í landinu. En Lenka var ekki læs ... Og hún lifði áfram án samvistar við aðra. Aðeins minjagripirnir virtust gefa hugsununum byr undir vængi... Og hráslagalegan desemberdag nokkurn, er hún vaknaði sem af löngum draumi í kofa sínum, var hún frekar undrandi en hrædd. Og hún leit skammbyssu sonar síns í höndum austurrísks hermanns og hún vaknaði enn betur og sá óvinahermenn allt í kringum sig. Og hún hugsaði aðeins um, hvort þeir myndu ætla að taka þenn- an dýra minjagrip frá henni. Henni datt einu sinni ekki í hug, 78

x

Rökkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.