Rökkur - 01.10.1922, Side 94

Rökkur - 01.10.1922, Side 94
áfram eftir að heim kom til íslands það ár. í þessum fyrsta árgangi ritsins voru ljóð, frumsamdar sögur, erindið Silfurhærur, sögur eftir tvo heimskunna erlenda höfunda (Henryk Sienkiewics og Jack London) o. fl. Upplag var 1000 og kom ég heim með leifar þess, 270 eintök. Ýmsir, sem gerðust áskrifendur að Rökkri eftir heimkomuna, og tóku tryggð við það, hafa fyrr og síðar óskað eftir því, að ég endurprentaði I. árg. og hefi ég nú ráðizt í að gefa hann út að nýju, breyttan. Ég hefi t. d. sleppt þremur smá- sögum, frumsömdum, frá tíma síðari heimsstyrjaldar, er hafa komið annars staðar, og eru þær nú síðast í heildarsmásagnasafni mínu frá þeim tíma, sem er nýkomið út, og er það 4. útgáfa smásagnanna, og þeim því verið vel tekið, þótt þær séu kannske „fremur fátæk- legar“. Erindið Silfurhærur vildi ég þó ekki niður fella, þótt það hafi komið annars staðar síðar, svo sem nánara verður getið. Verði þessari breyttu útgáfu I. árg. vel tekið, hefi ég í huga að gefa út í einni bók Rökkur II—VI, með nokkrum breytingum, en þessir árgangar komu í minna broti og minna upplagi en ritið, eftir að það var stækkað (frá VII. árg.), en síðasti árgangurinn af því kom út 1952. í sögu Vestur-íslendinga, V. bindi, höfundur Tryggvi J. Oleson, útgefinni af Bókaútgáfu Menningarsjóðs 1953, fellir höfundurinn eftirfarandi dóm um I. árgang Rökkurs, í yfirliti um blöð og tíma- rit gefin út vestra: Fremur var það fátœklegt. Ekki hafði ég veitt þessum dómi athygli fyrr en fyrir 1—2 árum, er ég gluggaði í bókina, staddur á sveitabæ austur í Hrunamanna- hreppi. Þar sem þessi dómur er upp kveðinn í safnriti, sem merkt útgáfufyrirtæki stóð að, vona ég, að mér verði ekki láð, þótt ég taki fram eftirfarandi: Dómurinn er algerlega órökstuddur og hvort höfundurinn var þarna að túlka einvörðungu sína eigin skoðun eða taldi sig vera að túlka skoðun manna almennt vestra, skal ósagt látið, en vart mun hægt að líta öðruvísi á en svo, að orð hans séu til þess fallin að varpa rýrð á ritið. Ég hefi að sjálfsögðu ekkert við það að athuga, þótt höfundinum hafi þótt lítið til ritsins koma, en get ekki unað því, ef menn ætla, að annað álit hafi ekki komið fram vestra á ritinu en hjá þessum höfundi, og leyfi mér því að benda á skýringar aftast í ritinu varðandi sumt efni þess. Auk þess vil ég geta þess, að meðan ég dvaldist í Winnipeg sendi Björgvin Guðmundsson tónskáld mér lag við ljóðið Bœn, sem í því birtist, en ljóð það sem 94

x

Rökkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.