AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.09.1995, Síða 28

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.09.1995, Síða 28
HARALDUR SIGURÐSSON, SKIPULAGSFRÆÐINGUR EINKABILLINN OG BORGARSKIPULAG Hugleiðingar um stefnu Reykjavíkurborgar í umferðarmálum „Vei, vei yfir hinni föllnu borg! Hvar eru þín stræti, þínir turnar, og Ijóshafið, yndi næturinnar?" (Úr Sorg eftir Jóhann Sigurjónsson) firbragð borga og bæja í hinum vest- ræna heimi hefur tekið algjörum stakka- skiptum á undanförnum áratugum. Aukin bifreiðaeign og bifreiðanotkun eru aóalorsakir þessara breytinga. Borgir einkennast ekki lengur af þéttri byggð, þröngum skjólsælum götum, fjölbreyttum athöfnum og iðandi mannlífi. Þær eru nú dreifðar yfir stærri landsvæðí, þéttleiki byggð- ar er minni, borgarhverfi eru aðskilin með umferðar- þungum hraðbrautum og órafjarlægðir eru milli fbúð- arsvæða og athafnasvæða. Stræti og torg gömlu miðborgarinnar fyrirfinnast ekki í nýju borgarhverf- unum. Hin skjólgóða randbyggð, sem er svo víða innan Hringbrautar í Reykjavík, er horfin en í staðinn eru við götuna flatneskjuleg bílastæði, berskjaldaðir grasblettir, ýmis umferðartákn og klunnaleg auglýs- ingaskilti. Og í fjarska, handan bílastæðanna, sér síðan glitta í rislitla stakstæða steinsteypukumbalda eða skemmur. Gatan er ekki lengur vettvangur fjöl- breyttra athafna og mannlífs heldur fyrst og fremst samgönguæð, farvegur hraðskreiðra einkabíla. Sumir myndu segja að borgarskipulag einkabílsins væri ekki eins aðlaðandi og skipulag gömlu borgar- hlutanna, en aðrir myndu segja að hér væri um eðli- lega og óhjákvæmilega þróun að ræða. Skipulag borga breytist eftir því sem þarfir einstaklinga breyt- ast og það borgarskipulag sem við höfum í dag er nákvæmlega það sem fólk vili. Fólk vill ferðast á einkabíkþurfa aðeins að taka nokkur skref út fyrir eig- ið hús, út í bíl og aka síðan og leggja bílnum helst beint fyrir utan inngang vinnustaðarins eða verslun- arinnar sem verið er að sækja. En er þetta hinn raunverulegi vilji fólks? Eða er þetta einungis vilji fólks vegna þess að ekki er mögulegt með góðu móti að ferðast innan borga með öðrum hætti? Einkabílinn er vissulega dásamlegt tæki sem eykur frelsi einstaklingsins til að ferðast hvenær sem er og nærri hvert sem er; til að fara í sunnudagsbíltúr út fyrir borgina, heimsækja vini og ættingja í öðrum landshlutum eða til að ferðast um landið og njóta óspilltrar náttúru. Þar með er hins vegar ekki sagt að fólk kjósi að nota bílinn til allra sinna ferða, sérstak- lega ef um styttri ferðir er að ræða innan borgar- marka. Eflaust myndu flestir óska þess að þeirra íbúð væri í göngufæri frá stórmarkaði, heilsugæslu, skóla, veitingastöðum og margs konar annarri verslun og þjónustu og þeir þyrftu þvl ekki að nota bílinn til allra hluta. Hlutunum hefur hins vegar verið þannig hagað í nútímaborgarskipulagi að fæstir íbúanna eru í göngufæri við fjölbreytta verslun og þjónustu. Þar af leiðandi verður einkabíllinn óhjákvæmilega fyrsti val- kostur fólks þegar velja á samgöngumáta. STEFNA REYKJAVÍKURBORGAR í UMFERÐAR- MÁLUM Umferðarvandamál einkabílsins hafa verið helsta viðfangsefni skipulagsyfirvalda í Reykjavík frá því í kringum 1960. Einkabílum tók þá mjög að fjölga og fljótlega sköpuðust gífurleg vandamál og umferðar- tappar víða um borgina enda var hún ekki skipulögð 26
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.