Bændablaðið - 12.01.2023, Síða 12
12 Bændablaðið | Fimmtudagur 12. janúar 2023
FRÉTTIR
VEIÐISVÆÐI ÓSKAST
Vegna mikilla eftirspurna þá köllum við eftir nýjum veiðisvæðum í flóru
félagsins. Bæði stöðuvötn og rennandi vatn. Skoðum einnig veiðisvæði
á afskektum stöðum.
Veiðifélagið Fish Partner er í stöðugum vexti og leitast eftir fleiri
samstarfsaðilum um land allt óháð fisktegund og tegund vatnasvæðis.
Vinsamlegast hafið samband við Kristján í síma 898 3946 eða á
netfangið kristjan@fishpartner.com.
Fuglaflensa:
Smitvarnir áréttaðar
Í ljósi útbreiðslu bráðsmitandi
afbrigðis af fuglaflensu H5N1
sá Eigenda- og ræktendafélag
landnámshænsna (ERL) ástæðu
til að senda á félagsmenn sína
tilkynningu um að huga sér-
staklega að smitvörnum.
Í henni kemur m.a. fram að
hænsnaeigendur skuli varast að
ganga um í kringum hænur sínar í
sömu skóm og notast var við í nýlegri
utanlandsferð. Einnig að gæta þess
að villtir fuglar komist ekki í fóður
eða vatn í hænsnahúsunum og ekki
síst að taka ekki óþarfa áhættu með
flutningi á eggjum eða öðrum búnaði
milli landa.
Varúðarráðstafanir
fyrst og fremst
„Undanfarin ár hafa reglulega
komið upp varúðarráðstafanir
vegna fuglaflensu, erlendis og hér
heima. Því fylgja gjarnan ákveðnar
takmarkanir eða varúðarráðstafanir,
sem eru gefnar út af opinberum
aðilum eins og Matvælastofnun. Við
hjá ERL vitum mjög vel að eigendur
hænsna í smáum hópum eiga oft
erfitt með að framfylgja slíkum
reglum í öllum smáatriðum, enda
miðast slíkar reglur við aðbúnað
og aðstæður í alifuglahúsum stórra
alifuglabænda.
Það breytir því þó ekki að alltaf
er gott að staldra við og horfa
gagnrýnum augum á eigið verklag
og aðstöðu. Það er akkúrat það
sem við erum að hvetja eigendur
landnámshænsna til að gera. Horfa
til hvaða atriða þeir geti bætt sig
varðandi smitvarnir og aðbúnað,“
segir Magnús Ingimarsson, ritari í
stjórn ERL.
Sjúkdómastaðan er
almennt mjög góð
Magnús segir að sjúkdómastaða í
alifuglarækt sé almennt mjög góð
á Íslandi. Hér séu fáir sjúkdómar
í samanburði við það sem gerist í
mörgum löndum í kringum okkur.
„Vegna þessarar góðu stöðu á
Íslandi er því til mikils að vinna
fyrir heilbrigði hænsnanna sem
við eigum hér á landi að halda
þessum sjúkdómum í lágmarki.
Bæði fyrir heilbrigði hænsnanna
og okkar sjálfra. Hvort sem um er
að ræða landnámshænur eða stóru
framleiðslustofnana hér á landi. Það er
líka rétt að minnast á að fuglaflensan
hefur lítil áhrif á fólk. Engin hætta er
á neyslu afurða hænsna (egg/kjöt).
Fyrst og fremst hefur hún áhrif á
heilbrigði dýrsins,“ segir Magnús.
ERL var stofnað í nóvember
2003. Félagið er fyrir alla þá sem
áhuga hafa á varðveislu íslensku
landnámshænunnar og hænsnahaldi
yfirleitt. Félagsskapurinn er góður
vettvangur fyrir þá sem áhuga hafa á
varðveislu íslensku búfjárkynjanna
eða varðveislu gamalla norrænna
búfjárstofna. Félagsmenn eru um
200 talsins. /mhh
Magnús segir að ERL hvetji félagsmenn sína og aðra sem halda hænsni að
vera sérstaklega meðvitaða um klæðnað sinn eftir utanlandsferðir. Þá sé
handþvottur mikilvægur. Mynd / Aðsend
Coda Terminal:
Byggja kolefnismóttöku- og
förgunarstöð í Straumsvík
Carbfix, Coda Terminal,
Hafnarfjarðarbær og Rio Tinto
á Íslandi undirrituðu fyrir
skömmu viljayfirlýsingu um
uppbyggingu kolefnismóttöku-
og förgunarstöðvar í Straumsvík
undir heitinu Coda Terminal.
Edda Aradóttir, framkvæmdastjóri
Carbfix, segir að með verkefninu sé
lagður grunnur að nýrri atvinnugrein
hérlendis, sem byggir á íslensku
hugviti sem geti með tímanum orðið
að útflutningsgrein.
„Ráðgert er að fyrsti áfangi
stöðvarinnar taki til starfa 2026 og
að hún nái fullum afköstum árið 2031.
Fullbyggð mun stöðin geta tekið á
móti og bundið um þremur milljónir
tonna af CO2 árlega, sem samsvarar
meira en helmingi af árlegri losun
Íslands,“ segir Edda.
Eitt vænlegasta stóra
loftslagsverkefni Evrópu
Edda segir að markmiðið um að
hemja hlýnun jarðar við 1,5 gráður
munu vart nást án umfangsmikillar
föngunar og förgunar á CO2. „Carbfix
hefur þróað tækni sem hermir eftir
og flýtir náttúrulegum ferlum til
bindingar á CO2 í jarðlögum, sem
felur í sér að því er blandað í vatn
og kolsýrðu vatninu dælt niður í
basaltberglög, þar sem CO2 gengur í
efnasamband við málma í berginu og
breytist varanlega í steindir.
Aðferðinni hefur verið beitt með
góðum árangri á Hellisheiði allt
frá árinu 2012 og hefur hún vakið
heimsathygli.“
16 milljarða styrkur
Coda Terminal stöðin verður sú
fyrsta sinnar tegundar í heiminum
og verkefnið hlaut fyrr á árinu
viðurkenningu sem eitt vænlegasta
stóra loftslagsverkefni í Evrópu með
úthlutun á um 16 milljarða króna
styrk úr Nýsköpunarsjóði Evrópu,
eftir ítarlega rýni á vegum sjóðsins.
Það er tæplega þriðjungur af
áætluðum heildarkostnaði við
verkefnið.
„Í verkefninu felst að þróa
skilvirkar flutningsleiðir fyrir
CO2 allt frá föngun í Evrópu til
niðurdælingar í Straumsvík. Á Íslandi
eru kjöraðstæður til varanlegrar,
umhverfisvænnar, hagkvæmrar
og öruggrar kolefnisförgunar með
aðferðinni, en helstu forsendur hennar
eru að til staðar séu CO2, vatn og
hentug jarðlög.“
Hagkvæm leið til að minnka
kolefnisfótspor
Að sögn Eddu verður stöðin
hagkvæm leið fyrir íslenska aðila til
að minnka kolefnisfótspor sitt. Rio
Tinto á Íslandi er í þessum hópi og
mun vinna að því að fanga CO2 frá
álverinu til förgunar á staðnum.
„Yrði það í fyrsta skipti sem tækist
að farga varanlega CO2 frá álveri og
yrði það mikilvægt skref í átt að
kolefnishlutleysi 2040.
Carbfix hóf í nóvember rann
sóknar boranir á lóð álversins við
Straumsvík með það fyrir augum að
auka þekkingu á jarðlögum á svæðinu
og fá nákvæmari upplýsingar um
aðstæður til varanlegrar bindingar á
CO2 í jarðlögum. Matsáætlun vegna
umhverfismats framkvæmdarinnar
var nýlega skilað inn til Skipulags
stofnunar.“ /VH
Viljayfirlýsing var undirrituð í Ráðhúsi Hafnarfjarðar. Rannveig Rist, Rósa
Guðbjartsdóttir, Grettir Haraldsson og Edda Aradóttir. Mynd / Aðsend
Sauðfjárrækt:
Möguleikar á að
auka árstekjur sínar
Forsíða bæklings um sviðsmynd framleiðslukerfis sauðamjalta samhliða
kjötframleiðslu.
Nýlega lauk formlega verkefni
Ráðgjafarmiðstöðvar land-
búnaðarins (RML) sem heitir
Fundið fé og gengur út á að skoða
möguleikana á því að koma á nýju
framleiðslukerfi í sauðfjárrækt,
meðal annars með fjölgun burða
yfir árið og nýtingu sauðamjólkur.
Verkefnið hófst fyrir tæpum
tveimur árum og var stutt af
Matvælasjóði. Markmið þess var
að skoða möguleika sauðfjárbænda
á að auka árstekjur sínar eftir
hverja vetrarfóðraða kind, meðal
annars með skilvirkari framleiðslu
í sauðfjárrækt og bættari nýtingu
aðfanga. Tilefnið er lágt afurðaverð
og erfiðleikar á markaði, meðal
annars vegna einhæfrar framleiðslu
þar sem slátrað er nær eingöngu að
hausti og stærstur hluti kjötsins
frystur. Það er síðan selt þannig
næstu 11 mánuðina í samkeppni við
aðrar ferskar kjötafurðir.
Þrjár sviðsmyndir að nýjum
framleiðslukerfum
Í niðurstöðum skýrslu sem gefin
var út eftir að verkefninu lauk,
kemur fram að möguleikar séu
til staðar til að auka fjölbreytni
í íslenskri sauðfjárframleiðslu,
með vöruframboði á ferskum
afurðum í mun lengri tíma en úr
hefðbundinni haustslátrun. Þessi
aukna fjölbreytni getur stuðlað að
aukinni heimavinnslu, bæði á kjöti
og sauðamjólk.
Ýmsir óvissuþættir séu þó til
staðar, einkum varðandi mögulega
verðlagningu afurðanna.
Til að meta möguleikana á að
breyta að hluta um framleiðsluaðferð
voru settar upp þrjár mögulegar
sviðsmyndir til hliðar við núverandi
ráðandi framleiðsluaðferð. Síðan
var reynt að bera þær saman við
niðurstöður úr afkomuverkefni
sauðfjárbænda sem RML hefur
staðið fyrir undanfarin ár.
Í fyrstu sviðsmyndinni er miðað
við að láta ær bera á átta mánaða
fresti, þrisvar á tveimur árum. Í
annarri sviðsmyndinni var gert
ráð fyrir sauðamjöltum samhliða
kjötframleiðslunni. Í þeirri þriðju var
dreifður burðartími skoðaður, með
því að nýta eðlislægan fengitíma
eins og kostur er.
Bú með 500 fullorðnar kindur
og 500 ærgilda greiðslumark
var notað sem grunnviðmið.
Niðurstöður benda til þess að
fyrstu tvær sviðsmyndirnar gefi
hagstæðustu framleiðslukerfin,
með rekstrarafgangi nálægt 24
prósentum.
Verulegir möguleikar til
fjármögnunar
Í skýrslunni kemur enn fremur
fram, í umfjöllun um aðgengi að
fjármagni fyrir sauðfjárbændur til að
breyta sínum framleiðslukerfum, að
verulegir möguleikar séu til staðar
í að sækja fjármagn til nýsköpunar
og atvinnuuppbyggingar á lands
byggðinni.
Samhliða útgáfu RML á skýrslu
um verkefnið voru útbúnir rafrænir
bæklingar um þær þrjár sviðsmyndir
sem skoðaðar voru. /smh
Bændablaðið kemur næst út
26. janúar