Bændablaðið - 12.01.2023, Qupperneq 38
38 Bændablaðið | Fimmtudagur 12. janúar 2023
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
Ásgeir Unnar Sæmundsson,
sérlegur áhugamaður um Ford
Bronco, hefur á undanförnum
árum sett saman gagnagrunn um
jeppa af þessari tegund sem fluttir
voru til landsins.
Ásgeir heldur einnig úti heima-
síðunni Bronco.is, þar sem áhuga-
menn geta skoðað myndir og nálgast
ýmsar upplýsingar. Þegar þetta er
ritað eru 1.898 bílar af árgerðum
1966–1977 skráðir, en Ásgeir veit
að enn vantar upp á.
Áhuginn á Bronco myndaðist eftir
að hann eignaðist svona bíl 17 ára
gamall. Hann hefur alltaf verið með
mikla bíladellu og átt fjölmarga bíla
í gegnum tíðina, þ.á m. fjóra Bronco
jeppa. Þegar Ásgeir fór að eldast
áttaði hann sig á því að hann hafði
oft hlaupið á sig þegar hann seldi
suma bílana sem hann hafði átt. Því
fór hann í rannsóknarvinnu til að geta
fundið gömlu góðu Bronco-ana.
Á Facebook er hópur Ford
Bronco áhugafólks með mjög
virkum umræðum. Reglulega setur
fólk inn myndir af gömlum bílum
í þeirri von að einhver þekki sögu
viðkomandi jeppa. „Þetta kveikti
einhvern blossa í mér um að það væri
rosagaman að geta haldið utan um
söguna fyrir menn og veitt einhverjar
upplýsingar,“ segir Ásgeir.
Fyrst byrjaði verkefnið sem
myndasöfnun. Allar ljósmyndir
af Bronco sem Ásgeir komst yfir
vistaði hann hjá sér og skráði um
leið upplýsingar um viðkomandi
bíl. Ef einhver setti mynd af Bronco
inn í áðurnefndan Facebook-
hóp, þá herjaði Ásgeir á eiganda
ljósmyndarinnar til að fá sögu
hvers bíls. Í gegnum heimasíðu
Samgöngustofu er einnig hægt að fá
talsverð gögn um bifreiðar ef flett er
upp eftir bílnúmeri.
Eins og áður segir eru skráðir í
gagnagrunninn 1.898 Bronco-ar af
fyrstu kynslóð þessara bíla. Líklegast
voru innflutningstölur hærri á þessu
tímabili og viðurkennir Ásgeir að enn
vanti bíla í gagnagrunninn hans. Það
er m.a. vegna þess að gagnagrunnur
Samgöngustofu inniheldur
takmarkaðar upplýsingar fyrir 1980.
Ef bílar voru afskráðir fyrir þann
tíma er oft engar heimildir um þá í
stafræna gagnabankanum. Það sama
á við um eigendasögu jeppanna fyrir
áðurnefnt ártal. Því segir Ásgeir eitt
af næstu skrefunum að leita fanga
á Þjóðskjalasafninu. „Það hljóta
að vera til innflutningsskýrslur og
pappírar um alla þessa bíla.“
Gagnagrunnurinn hans Ásgeirs
gefur möguleika á að leita að bílum
eftir eigendum, skoða númeraferil
og margt fleira. Vinnunni er þó
hvergi nærri lokið, því meðfram
því sem Ásgeir skráir þessar
grunnupplýsingar er hann stöðugt
að bæta við fleiri atriðum. Nú styðst
hann t.a.m við ljósmyndir til að skrá
hvern og einn bíl eftir lit, búnaði og
hvort þeim hafi verið breytt.
Áður en hvítu bílnúmerin, sem
fylgja hverjum bíl, voru kynnt til
sögunnar, var notast við svörtu
númerin, sem oft eru kölluð
steðjaplötur. Þau númer fylgdu
yfirleitt einstaklingum, ekki bílum,
og því gátu jafnvel þrír mismunandi
Bronco-ar verið með sömu
steðjaplötuna á einhverju tímabili.
Ásgeir segir þetta atriði flækja
alla rakningu.
Aðspurður segir Ásgeir erfitt að
átta sig á því hversu margir bílar
séu til enn í dag. Oft eru afskráðir
Bronco-ar í geymslum hingað og
þangað um landið án þess að hann
hafi haft spurnir af þeim. Þeir
bílar sem Ásgeir veit að eru ekki
ónýtir eru sérstaklega merktir í
gagnagrunninum. Við einfalda
uppflettingu sér hann að í hans
gögnum séu minnst 200 Bronco-ar
skráðir heilir eða heillegir.
Af persónuverndarástæðum
er gagnagrunnurinn ekki opinn
almenningi. Ef fólk hefur leitað
til hans með spurningar um sögu
einstakra bíla, þá segist Ásgeir
yfirleitt vera mjög fljótur að svara.
Á vefnum Bronco.is, sem Ásgeir
heldur úti, er viðamikið myndasafn
þar sem allir geta flett upp bílum
eftir bílnúmeri eða árgerð.
Ásgeir hefur ekki unnið einn
að gagnagrunninum. Hann þakkar
því öllum sem hafa lagt honum lið
í gegnum tíðina og hvetur alla sem
eiga myndir af gömlum Bronco til
að senda sér afrit af þeim á netfangið
bronco@bronco.is eða hlaða þeim
upp á Bronco.is. /ÁL
Ásgeir Unnar Sæmundsson vinnur að því að safna saman upplýsingum um
alla Ford Bronco sem fluttir voru til landsins. Hér stendur hann við sinn eigin
jeppa sem, þrátt fyrir sjúskað útlit, er í mjög góðu ástandi og daglegri notkun.
Mynd / Aðsend
Allir Ford Bronco í gagnagrunni
– Upplýsingum safnað saman á einn stað
Þórunn Wolfram tók við stöðu
framkvæmdastjóra Loftslags-
ráðs um áramótin en síðustu
20 ár hefur hún unnið hjá
Landgræðslunni.
Þar gegndi hún ýmsum störfum,
bæði rannsóknum og öðrum
sérfræðistörfum, en frá árinu 2019
var hún sviðsstjóri og staðgengill
forstjóra. Þórunn brennur fyrir
öllu sem snýr að umhverfis- og
loftslagsmálum, ekki síst hvernig
megi ná aftur jafnvægi í samspili
manns og náttúru.
„Staðan í dag er þannig að
mannkynið hefur gengið alvarlega
á auðlindir jarðar, til dæmis með
gegndarlausri vinnslu og bruna á
jarðefnaeldsneyti, skógareyðingu,
hnignun náttúrulegra vistkerfa og
gríðarlegri jarðvegseyðingu svo
eitthvað sé nefnt. Þar að auki höfum
við mengað bæði haf, ferskvatn
og land og gengið freklega á
líffræðilega fjölbreytni, eina af
meginundirstöðum tilveru okkar
og annars lífs. Loftslagsváin hangir
yfir, að mestu vegna ofnýtingar
okkar á jarðefnaeldsneyti og öðrum
mannlegum gjörðum sem auka á
magn gróðurhúsalofttegunda í
andrúmslofti, langt umfram það
sem jörðin ræður við að halda í
jafnvægi innan sinna hringrása,“
segir Þórunn.
Veitir stjórnvöldum aðhald
Þórunn segir að Loftslagsráð
sinni fjölbreyttum verkefnum
sem öll miða að því að fjalla um
loftslagsvána á heildrænan hátt
og veita stjórnvöldum aðhald og
ráðgjöf um áætlanir þeirra og
framkvæmdir sem miða að því að
draga úr, en einnig aðlagast áhrifum
loftslagsbreytinga. Þá er hlutverk
ráðsins einnig að hafa yfirsýn yfir
fræðslu og miðlun upplýsinga um
loftslagsmál til almennings.
Í ráðinu, sem var stofnað
2018, sitja 15 manns, fulltrúar
atvinnulífsins, háskólasam-
félagsins, sveitarfélaga, neytenda-
samtaka og umhverfisverndar-
samtaka, auk annarra fulltrúa sem
nauðsynlegt er talið að eigi sæti í
ráðinu á hverjum tíma. Ráðherra
skipar auk þess formann og
varaformann Loftslagsráðs, auk
fulltrúa unga fólksins.
Hugsum stórt
Þegar Þórunn er innt eftir því hvað
almenningur, fyrirtæki og stofnanir
á Íslandi geti gert til að sporna við
áhrifum loftslagsbreytinga er hún
fljót til svars.
„Við bæði getum og verðum að
temja okkur breytt viðhorf og nýja
hegðun til að draga úr áhrifum og
afleiðingum loftslagsbreytinga.
Engin getur gert allt en allir
geta gert eitthvað á vel við í
þessu samhengi. Í okkar íslenska
veruleika er staðan sú að ég ber
ábyrgð á minni kauphegðun, til
að mynda hvað ég borða, hverju
ég klæðist, hvernig ég ferðast,
hvort ég kaupi notaða hluti eða
nýja, umhverfisvænni vörur og
hvort ég fylgist með kolefnis-
eða vistspori mínu og reyni að
lágmarka það af fremsta megni.
Það sama á við um þig og alla
aðra hérlendis, bæði einstaklinga,
fyrirtæki og stjórnvöld. Við
þurfum að hugsa stórt, stjórnvöld
þurfa að vera hugrökk og ráðast
hratt í allar þær samfélagslegu
og hagrænu kerfisbreytingar sem
þarf að fara í til að fasa út notkun
jarðefnaeldsneytis en samhliða
vernda og efla líffræðilega
fjölbreytni vistkerfa Íslands,“ segir
Þórunn.
Skilgreinir sig sem Vestur-
Skaftfelling
Þórunn er fædd og uppalin í
Garðabænum en sem barn dvaldi
hún öll sumur og alla páska í
sveitinni hjá ömmusystkinum
sínum í Mörtungu á Síðu og
hefur því alltaf skilgreint sig
sem Vestur-Skaftfelling. Þórunn
býr í dag á Gömlu Borg í
Grímsnesi ásamt Mumma sínum,
kettinum Dimmalimm og yngsta
syninum, sem stundar nám við
Menntaskólann á Laugarvatni.
Þórunn og Mummi eiga samtals
10 börn og 12 afkomendur og eru
alsæl með lífið og tilveruna frá
degi til dags.
Þórunn er eini starfsmaður
ráðsins en ráðið er til húsa hjá
Umhverfisstofnun að Suður-
landsbraut 24 í Reykjavík.
/MHH
Loftslagsráð:
Verðum að temja
okkur breytt viðhorf
Þórunn Wolfram, nýr framkvæmdastjóri Loftslagsráðs. Áður starfaði hún í
um 20 ár hjá Landgræðslunni. Mynd / Aðsend
...Loftslagsráð
sinni fjölbreyttum
verkefnum sem öll
miða að því að fjalla um
loftslagsvána á heild-
rænan hátt ...“
LÍF&STARF