Bændablaðið - 12.01.2023, Síða 43

Bændablaðið - 12.01.2023, Síða 43
43Bændablaðið | Fimmtudagur 12. janúar 2023 í Bretlandi til að taka ferðavagna í geymslu gegn gjaldi (ekki undir þaki en á vöktuðu svæði). Auk þess hefur hann sett upp sólarsellur til að afla rafmagns, borað fyrir vatni, selt veiðileyfi í manngerðum tjörnum, plantað trjám og safnað hunangi sem hann selur í afgreiðslunni fyrir ferðavagnageymsluna. Þar selur hann líka kjöt beint frá býli. David hefur ræktað mörg sauðfjárkyn í gegnum tíðina en það kyn sem hann ræktar núna er Charmoise, franskt kyn sem hentar til ræktunar á hálendari svæðum Bretlands, t.d. í Wales þar sem stærstu viðskiptavinir hans eru. Ræktunin byrjaði 1995 með tveimur ám og hefur hann svo keypt reglulega gripi frá Frakklandi til að byggja upp ræktunina. Hjörðin telur um 300 ær og ræktunin byggð á kynbótamatsútreikningum, hrútakaupum og frosnu sæði. Fyrstu hrútarnir sem hann notar til framræktunar úr eigin ræktun eru nú 4-5 vetra gamlir. Charmoise-fé er smátt miðað við kjötkyn og því léttara á fóðrum en með ákaflega góða gerð og flest sláturlömb í blendingsrækt undan slíkum hrútum í E og U. David er að selja um 70 lambhrúta á ári og töluvert af gimbrum líka. Meðalverð hrútanna er um 75.000 kr. Ærnar eru góðar mæður og verða gamlar en leggja lítið á sig þar sem meðalfrjósemi við fósturtalningu er ekki meiri en um eitt lamb á kind. Ærnar eru á beit allt árið nema á sauðburði. Það eru lömbin mest líka en fá viðbótarkjarnfóður í kössum sem ærnar komast ekki inn í. Lömbin eru þó tekin inn ef veður eru ekki hagstæð og eins reglulega yfir eldistímann til að fara yfir framfarir og þá eru seld, til áframhaldandi slátureldis, þau sem ekki henta til framræktunar eða líflambasölu. David lagði áherslu á fjölbreytni í rekstri og tekjumöguleikum og eins að vera tilbúinn að aðlaga sauðfjárræktina að þeim kröfum sem viðskiptavinir á hverjum tíma gera. Í heimsókninni til Davids vorum við keyrð um á kerru aftan í buggy-bíl í hellirigningu til þess að skoða féð og ferðavagnagarðinn. Það var nokkuð spaugileg og alveg einstök upplifun. Heimsóknirnar til þessara tveggja sauðfjárbænda drógu vel fram hversu fjölbreytt bresk sauðfjárrækt getur verið. Einnig er umhirða á þessum tveimur bæjum greinilega eins og svart og hvítt. Þó nokkuð er um illgresi í beitilandi á seinni bænum og mikið bitið land sem sást ekki á þeim fyrri. Einnig sáum við margar haltar ær á seinni bænum og skítuga afturenda sem lítið var um á þeim fyrri. Heimsóknir sem þessar eru einkar áhugaverðar og alltaf eitthvað nýtt sem má læra og taka með sér heim. Það er því þakkarvert að fá tækifæri til að taka þátt í slíku í gegnum sitt starf. Guðfinna Harpa Árnadóttir, ráðunautur hjá RML. Aðrir ferðafélagar voru Ívar Ragnarsson, Kristján Óttar Eymundsson, María Svanþrúður Jónsdóttir, Eyjólfur Ingvi Bjarnason og Sigríður Ólafsdóttir. Landsliðið í dælum Eldsneytis- og efnadælur, tunnudælur, mælar, slöngur og fylgihlutir. LANDVÉLAR | SMIÐJUVEGI 66 | 580 5800 | LANDVELAR.IS LAUSNIR Á LAGER Vinnueftirlitið leitar að metnaðarfullum, sjálfstæðum og drífandi einstaklingi með mikla þekkingu og áhuga á vinnuvélum og tækjum til að ganga til liðs við teymi sérfræðinga á vinnuverndarsviði. Viðkomandi mun koma til með að sinna vinnuvélaskoðunum ásamt því að veita leiðbeiningar á sviði vinnuverndar og vinna að sérverkefnum. Um er að ræða 100% starfshlutfall og er starfsstöð annars vegar á Selfossi með skoðunarsvæði frá Þorlákshöfn til Kirkjubæjarklausturs sem skiptist á milli fjögurra eftirlitsmanna og hins vegar á Egilsstöðum með skoðunarsvæði frá Höfn í Hornaf i rði að Vopnaf i rði sem skiptist á milli tveggja eftirlitsmanna. Umsóknarfrestur er til og með 23. janúar næstkomandi. Sótt er um á alfred.is. Allar nánari upplýsingar; meðal annars um helstu verkefni, ábyrgð, menntunar- og hæfniskröfum er að f i nna á vinnueftirlitid.is Hljóma vinnuvernd, vélar og tæki vel? Ungir Charmoise hrútar í inni- aðstöðunni. Ræktunarær af Charmoise kyni á býli David Eglin.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.