Bændablaðið - 12.01.2023, Page 47
47Bændablaðið | Fimmtudagur 12. janúar 2023
byggist upp aukin frjósemi jarðvegs,
ekki síst ef um er að ræða árlega eða
nær árlega notkun á búfjáráburði.
Með tímanum ætti því áburðarþörf
þeirra að minnka. Hafa þarf í
huga að uppsöfnun næringarefna
í jarðvegi er mest í efstu u.þ.b. 5
sm jarðvegsins svo að þegar tún
eru plægð verður þessi forði ekki
aðgengilegur sáðgresinu í nýræktum
fyrstu árin nema að litlu leiti.
Áburðaráætlanir ættu að taka
mið af notkun búfjáráburðar og
annarra lífrænna áburðargjafa. Til
að það sé hægt þarf að vera ljóst
hve mikið var borið á af honum,
en einnig þarf að taka mið af
dreifingartíma til að meta nýtingu
einstakra næringarefna. Nýting á
köfnunarefni í búfjáráburði er mjög
háð dreifingartíma og aðstæðum við
dreifingu og nýting á kalí einnig en
þó minna. Notkun á töflugildum
um efnainnihald búfjáráburðar
getur gefið ranga mynd af því hvað
er borið á því efnagreiningar á
búfjáráburði sýna ólíkar niðurstöður
milli búa um magn og hlutföll af N,
P og K. Einnig er mikilvægt að vita
hvert þurrefni búfjáráburðarins er
við dreifingu, einkum þó þegar um
mykju er að ræða.
Niðurstöður jarðvegs- og
heysýna hjálpa til við að meta
áburðarþarfir. Jarðvegssýni segja til
um aðgengilegt magn næringarefna
í jarðvegi en heysýnaniðurstöður
hvernig áburðargjöfin hefur skilað
sér í heyin. Lágt innihald einstakra
efna í heyjum getur gefið til kynna
að viðkomandi næringarefni
takmarki magn uppskeru. Það getur
gerst þó svo að plönturnar sýni ekki
einkenni um skort. Að sama skapi
geta heysýni sýnt óhóf í notkun
einstakra næringarefna í áburði.
Með óbeinum hætti má segja
að dreifing áburðar hafi áhrif á
áburðarþörfina því góð dreifing gerir
það að verkum að áburðurinn nýtist
betur. Að áburðardreifarinn sé í lagi
og rétt stilltur, skörun dreififerða sé
rétt og veðurskilyrði við dreifingu
hagstæð eru þættir sem skipta máli.
Einnig ætti að nýta jaðardreifingu
á áburðardreifurum sem bjóða upp
á þann möguleika og gps búnaður
hefur sannað gildi sitt til að bil milli
ferða á túninu verði sem jafnast.
Árferði og veðurfar hefur áhrif á
sprettu og nýtingu áburðar, en einnig
og stundum ekki síður þættir er
varða ástand jarðvegs. Þar má nefna
of blautan jarðveg t.d. þegar viðhaldi
framræslu er áfátt eða þurrlend tún
sem skortir vatn og eru gjörn á að
spretta lítið eða ekki í þurrkatíð.
Sýrustig jarðvegs hefur einnig
áhrif á nýtingu næringarefna og
kölkun jarðvegs því mikilvæg þar
sem sýrustig hans er of lágt. Til
að ná sem bestri nýtingu helstu
næringarefna þarf sýrustig jarðvegs
(pH-gildi mælt i vatni) að vera 6-7.
Til að hækka sýrustig (pH-gildi) sem
er of lágt þarf að kalka. Kalkgjafar
sem notaðir hafa verið í þessu skyni
eru ólíkir að gerð og efnainnihaldi
og virkni þeirra hraðari þegar
kornastærðin er lítil s.s. duft eða
kornað kalk.
Eftir því sem við höfum meiri
og betri upplýsingar um þá þætti
sem hér hafa verið nefndir að ofan
því betur erum við í stakk búin að
setja réttar áburðaþarfir fyrir einstök
tún. Bændur sem hafa hug á að fá
áburðaráætlun gerða hjá RML eru
hvattir til að hafa samband sem fyrst.
Eiríkur Loftsson,
ráðunautur í jarðrækt hjá RML.
Varahlu�r í Bobcat
Úrval af
þægilegum og
endingagóðum
sokkum.
Erum með 50 sölustaði
um allt land.
info@socks2go.eu
s.831-8400
www.socks2go.is
Sokka Kompaníið ehf.
Kíktu á heimasíðuna
okkar eða hafðu samband við
okkur með upplýsingar um
sölustað í þínu nágrenni.
TIMBUR EININGAHÚS
Sími: 893 3022 einingar@einingar.is
www.einingar.is
KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10
104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is
LOFTPRESSUR
Í HÆSTA GÆÐAFLOKKI
Gerðu kröfur - hafðu samband við Gunnar
í síma 590 5135 og kynntu þér þína möguleika.
Við bjóðum upp á allar stærðir
og gerðir af Ingersoll Rand loftpressum.
Mjög hjóðlátar og einfaldar í viðhaldi.
Bjóðum upp á þjónustusamninga og leggjum mikla áherslu
á að veita góða viðgerðar- og varahlutaþjónustu.