Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 29.11.1976, Qupperneq 11
ViS flytjum þessum fyrrverandi forsetum ASÍ okkar bestu þakkir
fyrir þau ómetanlegu störf, sem þeir hafa unnið í þágu íslenskrar
verkalýðshreyfingar.
Heiðruðu félagar og ágætu gestir.
Það þing Alþýðusamhands íslands, sem nú er að hefjast, er af-
mælisþing, er við hljótum að minnast þess, að 6 áratugir eru liðnir
frá því er stofnfundur Alþýðusamhands Islands var settur, og haldinn
hinn 12. mars 1916 í Báruhúsinu í Reykjavík, og 19. nóvember
sama ár var fyrsta sambandsþing þess háð á sama stað.
Á slíkum stundum rennum við huganum örskotsstund til braut-
ryðjendanna, sem sátu við langborðið í Bárubúð, og lögðu þar horn-
steinana að því óslitna starfi Alþýðusambands íslands, sem á vegum
þess hefur síðan verið unnið.
Þeir menn, sem þar stóðu að verki, voru hvorki margir né heldur
höfðu þeir lagt undir sig glæsileg salarkynni. Og því var heldur ekki
til að dreifa, að liðsaflinn, sem stóð þeim að baki, væri fjölmennur,
650 manns töldu þau félög innan sinna vébanda, sem stóðu að stofn-
fundinum.
En þessir brautryðjendur með menn eins og Otto N. Þorláksson,
Jón Baldvinsson, Ólaf Friðriksson og Jónas Jónsson frá Hriflu fremsta
í flokki, háru allir í brjósti heitan eld nýrra hugsjóna, samfara reynslu
og raunsæi. Þeir áttu sér og íslenskum erfiðismönnum drauma og
fyrirætlanir, sem einmitt á þessum tíma féllu að aðstæðum í þjóð-
félaginu og nauðþörf verkalýðsstéttarinnar. Þess vegna tókst þeim
einmitt á þessu augnabliki sögunnar og þróunarinnar að leggja grund-
völlinn að því að skapa verkalýðssamtök, sem æ síðan hafa starfað
og hafa átt sinn mikla þátt í mótun íslensks þjóðlífs, allar götur frá
fundi sínum í Bárubúð 1916.
Það, sem hér réð úrslitum, var það, að verkalýðsstétt, fjölmenn á
íslenska vísu, var að myndast bæði í höfuðborginni og í kauptúnum
úti um landið. Þjóðfélagið var að breytast úr þjóðfélagi bændasam-
félags í þjóðfélag stórútgerðar, sem kallaði til sín stétt verkamanna,
sjómanna og handverksmanna, þjóðfélag, þar sem hrein verkalýðsstétt
að nútímaskilningi var í mótun og vexti.
Og þessi nýja stétt bjó við sárustu örbirgð á alla lund. Húsakynni
hennar voru ömurleg hreysi, klæðnaður hennar tötrar, fæðan að
7