Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 29.11.1976, Qupperneq 72
Þá ræddi Snorri Jónsson um efnahagsreikninga ASÍ. Útskýrði
hann þá nánar ásamt innheimtumálum.
Jón Karlsson, Sauðárkróki, taldi ekki óeðlilegt, þó að umræður
væru nokkuð pólitískar. Ræddi hann nokkuð fjármál ASl og MFA.
Hann var ekki sáttur við lélega útbreiÖslu Vinnunnar.
EðvarÖ Sigurðsson tók til máls og svaraði ræðumönnum. Hann
gat um innheimtu skatta til ASl og samsetningu miðstjórnar ASI
og kosningu til hennar.
Að lokum talaði Björn Jónsson, forseti ASÍ. Kvaðst hann vera
ánægður með þann baráttuhug, sem virtist ríkja á þinginu. Hann
sagði, að í félögunum ríkti lýðræði og einnig í miðstjórn ASl, þó
að skoðanir væru skiptar. Hann þakkaði þá gagnrýni, sem komið
hafði fram.
Því næst sleit þingforseti umræðum og har reikninga ASl undir
atkvæði. Þeir voru samþykktir samhljóða.
Einar Ogmundsson fylgdi úr hlaöi fjárhagsáætlun ASÍ á þskj.
57 og ræddi urn fjárhagsmál ASl almennt. Benti hann m. a. á, að
til aukaskattsins væri stofnað til þess að fyrirbyggja að einstök félög
sæju sér hag í því að standa utan landssambandanna. Hann lagöi
áherslu á, að ASÍ þyrfti að geta staðið á eigin fótum fjárhagslega.
Sigfinnur Karlsson hafði af hálfu nefndar framsögu um fjárhags-
áætlun ASl. Engar umræður urðu um fjárhagsáætlunina og var
hún samþykkt samhljóða, svo og tillaga um skatt til sambandssjóös
og um lágmarksfélagsgjöld.
Umræður um kjara-, atvinnu- og efnahagsmál.
Fyrstur framsögumanna var Ásmundur Stefánsson. Hann ræddi
um verðlag og kaup árin 1972—1976: Þingskjal 58. Guðmundur J.
Guðmundsson var annar framsögumaður. Ræddi hann um kjara-,
atvinnu- og efnahagsmál. Þingskjal 13 og 14. Björn Þórhallsson var
þriðji framsögumaður. Hann talaði um skattamál. Þingskjal 15.
Miklar umræður urðu um þessi mál á þinginu, sem ógerningur
er að rekja né gera viðhlítandi skil í stuttri greinargerð. Alls tóku
21 fulltrúi til máls við fyrstu umræðu.
Við aðra umræðu um kjara-, atvinnu- og efnahagsmál var Guð-
mundur J. Guðmundsson framsögumaÖur. Tók hann fyrst fyrir
þingskjal 71, en nefndin hafði lagt til, að þessi tillaga á þingskjali
68