Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 29.11.1976, Page 83
Þingið leggur ríka áherslu á, að orlof og frístundir verkafólks eru
snar þáttur vinnuverndar og almennrar heilsugæslu.
Það er eindregin skoðun þingsins, að Alþýðuorlof eigi og beri að
hafa forustu um framgang þessara mikilsverðu hagsmunamála verka-
fólks í nánu samráði við heildarsamtökin og aðildarfélögin.
Fyrir því skorar þingið á öll aðildarfélög Alþýðusamhandsins að
taka virkan þátt í starfi orlofssamtakanna og stuðla þannig að því,
að þeim verði unnt að sinna þýðingarmiklu hlutverki sínu og eflingu
félagslegra viðhorfa í orlofs- og ferðamálum.
Þingið beinir sérstaklega þeim tilmælum til aðildarfélaga Alþýðu-
sambandsins, að þau láti ferðaskrifstofu samtakanna njóta viðskipta
sinna og að þau hvetji félagsmenn sína til hins sama.
33. þing ASl. Þingskjal nr. 71.
Viðhald flugvéla
33. þing ASI samþykkir, að beina því til stjórnvalda og viðkom-
andi flugfélaga, að viðhald og viðgerðir íslenskra flugvéla verði
framkvæmdar hér á landi eins og framast er unnt, í stað þess að
greiða útlendingum hundruð milljóna árlega í dýrmætum erlendum
gjaldeyri og veita með því í það minnsta 200 atvinnutækifærum til
útlanda og minnka þar með bæði beinar og óbeinar tekjur íslenska
ríkisins og íslenskra flugfélaga.
Til að gera þetta mögulegt, þarf að auðvelda og aðstoða flugfélög-
in við endurbyggingu flugskýla og flugvélaverkstæða.
33. þing ASÍ. Þingskjal 72.
Ályktun allsherjarnefndar um mjólkurbúðamólið,
33. þing Alþýðusambands Islands lýsir yfir samstöðu og stuðningi
við baráttu stúlkna í mjólkurbúðum gegn þeirri einhliða ákvörðun
Mjólkursamsölunnar að loka öllum mjólkurbúðum sínum fyrirvara-
lítið á örstuttum tíma.
Þingið telur að það hljóti að vera grundvallaratriði í starfsemi
79