Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 29.11.1976, Síða 85
33. þing ASÍ. Þingskjal nr. 75.
Atvinnusjúkdómar
33. þing ASl, haldið 29. 11. til 3. 12. 76, fagnar fram kominni
þingsályktunartillögu um skipun nefndar til að kanna eSli og út-
breiðslu atvinnusjúkdóma, sem nú liggur fyrir Alþingi.
Þingið bendir á, að með aukinni vélanotkun og skipulagningu
nýrra atvinnuhátta, eykst notkun hættulegra efna og einhæfra hreyf-
inga viS vinnu í fjölda starfsgreina. Þá hafa rannsóknir vísindamanna
og lækna m. a. sýnt, að heilsuspillandi áhrif ýmissa upplausnarefna
í mannslíkamanum korna oft ekki í Ijós fyrr en að löngum tíma
liðnum.
33. þing ASÍ telur rannsóknir og skilgreiningu á orsökum atvinnu-
sjúkdóma mikilvægan þátt í bætturn lífskjörum alþýðu og skorar á
Alþingi að samþykkja tillöguna.
33. þing ASÍ. Þingskjal nr. 76.
Ályktun allsherjarnefndar um dagvistunarstofnanir,
sbr. þingskjöl 48—53 og ályktun ASB.
Breyttir þjóðfélagshættir hafa valdið því, að konur leita nú í vax
andi mæli út á vinnumarkaSinn, enda er vinna þeirra algjör for-
senda mikilvægra þátta atvinnulífsins og óhjákvæmileg til þess að
sjá mörgum heimilum farborða.
Hið opinbera, ríki og sveitarfélög hafa ekki staðið við þau fyrir-
heit, sem gefin hafa verið með margvíslegri löggjöf um stofnun og
rekstur dagvistunarstofnana, og eru nú horfur á, að alvarleg stöðnun
komi í byggingu nýrra barnaheimila á sama tíma og þörfin er meiri
en nokkru sinni fyrr, svo að langir biðlistar eru við öll barnaheimili.
33. þing ASl beinir því til Alþingis, ríkisstjórnar og byggðastjórna,
að hækka framlög til dagvistunarheimila verulega og felur miðstjórn
að knýja á hið opinbera um úrbætur í þessum efnum, eftir öllum
tiltækum leiðum, sbr. sameiginlega yfirlýsingu verkalýðssamtaka og
atvinnurekenda í fe'brúar 1974, svo hljóðandi:
„Samningsaðilar eru sammála um að beita sér fyrir því, að þjón-
81
6