Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 29.11.1976, Blaðsíða 86
usta Larna- og skólalieimila verði aukin og Framkvæmd þannig, að
þau nýtist starfsfólki við framleiðslustörf betur en nú er.“
33. þing ASÍ. Þingskjal nr. 77.
í tilefni af tímabærri og ágætri hvatningu frá Verkakvennafélag-
inu Framsókn til stjórnar ASf um dagvistunarheimili barna, viljum
við undirritaðir koma eftirfarandi á framfæri við 33. þing ASÍ.
Ffér á fslandi befur lítilli athygli verið beint að dagvistun fyrir
aldrað fólk, nema á allra síðustu tímum. Er slík starfsemi þó vel
þekkt meðal nágrannaþjóða okkar, og að nokkru hefur starfsemi
þessi verið tekin upp í hinum stærri sveitarfélögum hér á landi. Er
þetta starf þó takmarkað við fáar klukkustundir á viku hverri, og
er frekar í formi tómstundaafþreyingar en þess, sem hugsað er með
hinum eiginlegu dagvistunarheimilum.
Nú er í byggingu í Ffafnarfirði á vegum samtaka sjómanna auk
dvalarheimilis, fullkomið dagvistunarheimili fyrir aldrað fólk. Er til
ætlast, að það sjálft eða með aðstoð ættingja og vina verði flutt
þangað að morgni og verji deginum þar. Það mun fá alla þjónustu,
bæði læknis- og hjúkrunarhjálp alls konar, böð, mat og hvíldarað-
stöðu, ásamt matarpakka til að taka heim með sér að kvöldi. Einnig
er fyrirhugað að fylgjast með hinum öldruðu, ef um veikindi þeirra
er að ræða, senda þeim mat og sjá fyrir annarri nauðsynlegri þjón-
ustu.
Þingið telur að slík þjónusta sé brýn í hinum stærri sem smærri
sveitarfélögum og muni að nokkru létta á hinni miklu þörf, sem nú
ríkir á dvalar- og hjúkrunarheimilum aldraðra.
Um leið og þingið skorar á Alþingi og ríkisstjórn að stuðla að
framgangi þessa máls, styður það eindregið að horfið verði til hins
fyrra ráðs, að ríkissjóður styðji þau sveitarfélög með fjárframlögum,
sem í byggingu dvalar- og hjúkrunarheimila ráðast.
33. þing Alþýðusambands Islands telur, að álit fiskifræðinga
okkar staðfesti það, að ástandi fiskistofnanna umhverfis landið sé
nú þannig komið, að um algera ofveiði margra fisktegunda sé að
ræða.
82