Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 29.11.1976, Side 92

Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 29.11.1976, Side 92
launastéttanna með viturlegri forustu ríkisvalds og aðila vinnumark- aðarins í efnahagsmálum þjóðarinnar. Lögð var áhersla á, að í þeim efnum væri mikilvægt að gæta hófs í opinberum útgjöldum og skatt- heimtu, aðhalds í verðlagsmálum og að tryggt yrði virkt verðlagseftir- lit. Krafist var heildarstjórnar í fjárfestingarmálum á grundvelli skipulegra áætlanagerða. Krafist var lækkunar skatta á lágar og miðlungstekjur og að skattaeftirlit yrði hert og skattsvik hindruð. Þá var því lýst sem algeru grundvallaratriði, að ekki yrði hróflað við gerðum og gildandi kjarasamningum verkalýðssamtakanna. II. Að liðnu 32. þinginu 1972 tókst verkalýðshreyfingunni um sinn að halda í horfinu í kjaramálum, og náði kaupmáttur tímakaups hámarki á fyrsta ársfjórðungi 1974 að kjarasamningum þá gerðum. En ef kaupmáttur sá, sem þá var um saminn, er hins vegar borinn saman við kaupmátt verkafólks á sama tíma í þeim ríkjum Evrópu, sem sambærileg geta talist vegna svipaðrar þjóðarframleiðslu á mann, svo sem nágrannaríki okkar margra, kemur í ljós, að jafnvel þá var kaupmáttur tímakaups íslensks verkafólks minni en þar gerðist. En á árinu 1974 urðu snögg og mikil umskipti í þróun kjaramálanna samhliða óhagstæðum breytingum á viðskiptakjörum og hröðum verðbólguvexti. Vandamál af þessum toga voru að vísu fyrir hendi á síðari hluta ársins 1974 og á árinu 1975, en stjórnvöld gerðu hins vegar meira úr þeim vanda en efni stóðu til, auk þess sem tíma- bundnum erfiðleikum atvinnurekenda, eins og þeim, sem hér var við að etja, verður aldrei með neinum siðferðilegum rétti velt yfir á herðar launafólks, eins og gert hefur verið. íslenskir atvinnurekendur sýna margir hverjir litla ábyrgð í rekstri fyrirtækja sinna. Þegar vel gengur hirða þeir ómældan arð út úr rekstri þeirra og njóta þá bæði eignarréttar síns og ranglátrar og vilhallrar skattalöggjafar. Sé þessu rekstrarformi viðhaldið á annað borð, verður þó það lágmarkssiðferði jafnframt að gilda, að þeir aðilar í þjóðfélaginu, sem vissulega njóta góðs af eignarrétti sínum á framleiðslutækjunum, þegar vel árar, beri sjálfir ábyrgð á rekstri þeirra, þegar eitthvað á móti blæs. Vísitölubinding kaups var afnumin fyrst með bráðabirgðalögum og síðar til frambúðar og kjarasamningarnir, sem gerðir voru í ársbyrjun til tveggja ára þar með ógildir. Verkafólk og aðrir launþegar voru þar 88
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142

x

Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ...

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ...
https://timarit.is/publication/1793

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.