Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 29.11.1976, Síða 101
KomiS hefur verið á fót Félagsmálaskóla alþýðu, sem nú hefur
haldið fjögur hálfsmánaðarnámskeið í Olfusborgum (þrjár fyrstu
annir, ein 2. önn).
Tímarit MFA og Alþýðusambandsins, Vinnan, hefur nú komið
út í þrjú ár og hafa mörg verkalýðsfélaganna stutt myndarlega að
útgáfu ritsins.
Vísi að Sögusafni verkalýðshreyfingarinnar hefur verið komið á
fót.
Samstarf og tengsl við MFA-samtök Norðurlanda hafa aukist
jafnt og þétt.
Sl. fimm ár hefur MFA stutt 7 manns til námsdvalar á norræna
lýðháskólanum í Genf.
Starfsemi Listasafns ASÍ hefur farið vaxandi síðari ár og samstarf
þess við verkalýðsfélögin út um land með sýningarstarfi og listsýn-
ingum aukist.
Mikil og verðmæt reynsla hefur fengist af starfi undanfarandi ára
og auðveldara er nú að gera sér grein fyrir því, hvar skórinn kreppir
að í fræðslu- og menningarstarfsemi verkalýðshreyfingarinnar.
Rétt er að geta þessa:
Mörg og fögur orð hafa á undanförnum árum verið sögð og
skrifuð um nauðsyn á fullorðinsfræðslu, þar sem allir skyldu standa
jafnt að vígi til menntunar. Skipuð var nefnd til að semja frumvarp
til laga um fullorðinsfræðslu. Flún lauk störfum og hefur frumvarp
hennar verið lagt fram á þrem þingum sem stjórnarfrumvarp, en
ekki hlotið afgreiðslu, og svo til engar umræður hafa átt sér stað
um frumvarpið á Alþingi. Þing ASÍ átelur það dáðleysi, sem lýsir
sér í meðferð þessa máls af hálfu stjórnvalda.
Þá átelur þingið harðlega, að tvö síðustu árin hefur bæði beint
og óbeint verið dregið úr opiriberum fjárstyrk til fræðslustarfsemi
verkalýðshreyfingarinnar. Hér eiga þó í hlut fræðslusamtök stærstu
almannasamtaka í landinu, sem jafnan hafa borið skarðan hlut í
fjárveitingum hins opiribera til fræðslu- og menningarmála.
Þegar litið er til þess fjármagns, sem veitt er til menntunarkerfis
þjóðarinnar, kemur í ljós sú staðreynd, að því fólki, sem öðru frem-
ur stendur undir kostnaðinum við skólakerfið, er að langstærstum
hluta ætlað sjálfu að greiða kostnaðinn við þá mjög svo takmörkuðu
97
7