Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 29.11.1976, Side 105
kvæmt lögunum. Sama á við um Heilbrigðiseftirlit ríkisins og heil-
brigðisnefndir sveitarfélaga. Stofnanirnar beita ekki lagaákvæðum
til þess að fá fram lagfæringar á lélegum aðbúnaði og hættulegum
slysagildrum vinnustaðanna.
Forysta verkalýðsfélaga og verkafólk á vinnustöðum ber einnig
sök á því ástandi, sem ríkir í þessum efnum. Það skortir skilning á
gildi þess, hve vinnustaðurinn og vinnuumhverfið eru áhrifamiklir
þættir í mótun lífs einstaklingsins. í því efni er vinnustaðurinn jafn-
mikilvægur og heimili manna. Verkalýðshreyfingin verður að breyta
hinu almenna, rótgróna viðhorfi, að vinnuumhverfið sé óumbreytan-
legt frá því ástandi, sem ríkir og ríkt hefur. Verkalýðshreyfingin sjálf
verður að hafa það eitt af sínum meginverkefnum, að stórauka
fræðslu urn gildi vinnuumhverfisins og áhrif þess á andlega og
líkamlega heilsu fólks.
Til þess að breyta núverandi á'standi vinnuumhverfis verkafólks
verður verkalýðshreyfingin að bera fram kröfuna um endurbætt
vinnuumhverfi með sama þunga og kröfuna um styttan vinnutíma,
orlof og greiðslur í veikindatilfellum. Verkalýðshreyfingin verður
að vinna að eftirfarandi:
1. AS við gerð kjarasamninga verði vinnuverndarsjónarmiðið meg-
inatriði og eigi látið víkja fyrir sérstökum greiðslum fyrir hættu-
leg og heilsuspillandi störf.
2. Að verkafólk öðlist rétt til fulls á við atvinnurekendur til
ákvörðunar um tilhögun á vinnuumhverfinu.
3. Að verkalýðshreyfingin fái samkvæmt væntanlegum lögum um
vinnuvernd beina aðild að eftirliti með vinnuverndarmálum
vinnustaða og tilnefni umdæmisskoðunarmenn.
Að skýr ákvæði verði sett um, hve oft eftirlitsmönnum samkv.
lögum um vinnuvernd sé skylt að koma á vinnustaði til eftir-
lits. Ennfremur ákvæði um skyldu þeirra til að láta trúnaÖar-
manni í té afrit af skýrslum og athugasemdum, enda séu þær
gerðar í samráði við hann.
4. Að í lög um vinnuvernd komi ákvæði um starfsaöstöðu trún-
aðarmanns, sem gæta skal þess, að lögunum sé framfylgt. Sé
honum ákveðinn tími, sem hann má verja til starfsins og að-
staða (skrifstofa, sími). Ennfremur skulu vera skýr ákvæði í
101