Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 29.11.1976, Side 109
reynt, hvort núverandi stefna stjórnarflokkanna nýtur fylgis meiri-
hluta þjóðarinnar. Þess vegna krefst 33. þing Alþýðusambands Is-
lands þess, að ríkisstjórnin segi þegar af sér og boði til almennra
þingkosninga, svo að vilji þjóðarinnar komi í ljós og móti stefnu
opinberra aðila. Skorar þingið á launafólk hvarvetna um land að
fylgja þeirri kröfu eftir með markvissri baráttu, sem sanni í verki,
að ríkisstjórnin nýtur ekki lýðræðislegs stuðnings við hina þjóð-
hættulegu láglaunastefnu sína. Varanlegar og raunhæfar kjarabæt-
ur nást því aðeins, að í landinu sé ríkisstjórn, sem hafi eðlilegt og
jákvætt samstarf við verkalýðssamtökin.
Eftirfarandi tillaga var samþykkt með atkvæðum þorra
fundarmanna gegn 4:
„33. þing ASÍ vill beina þeirri áskorun til stjórnar Alþýðusam-
bandsins og verkalýðsfélaganna í landinu, að þau veiti brautargengi
öllu starfi, sem unnið er í tengslum við verkalýðssamtökin að menn-
ingarmálum alþýðu, má þar m. a. nefna Lúðrasveit verkalýðsins,
Kór Trésmiðafélags Reykjavíkur og Alþýðuleikhúsið.
Þá lýsir þingið þeirri von sinni, að verkalýðsfélögin geri allt sem
í þeirra valdi stendur, til að koma á fót fjölþættu menningarstarfi,
hvert á sínu sviði og sameiginlega.“
33. þing ASÍ. Þingskjal 89.
FRÁ FJÁRHAGSNEFND
Tillaga um skatt til sambandssjóðs
„33. þing ASÍ samþykkir, að framvegis skuli skattupphæð sam-
bandssjóðs breytast hálfsárslega m. v. breytingar á meðalkauptaxta
verkamanna, í fyrsta skipti frá og með 1. júlí 1977 m. v. hækkun
framangreinds tímakaups tímabilið 1/1 1977 til 1/7 1977.
Þingið felur fjárhagsnefnd að endurskoða þessa fjárhagsáætlun
og gera breytingar á skattaákvörðun, ef nauðsyn krefur.“
105