Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Síða 12

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Síða 12
10 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 3. tbl. 97. árg. 2021 Október var mánuður heilsulæsis Heilsulæsi er hugtak sem hefur verið mikið í deiglunni síðustu tvo áratugi. Það var ekki fyrr en með útgáfu Heilbrigðisstefnu – stefnu fyrir íslenska heilbrigðisþjónustu til ársins 2030 sem heilsulæsi var sett á oddinn á Íslandi. Þar segir að unnt sé að efla heilsulæsi með markvissu starfi þeirra sem veita heilbrigðisþjónustu (Heilbrigðisráðuneytið, 2019). Heilsulæsi varðar ekki bara einstaklingana sjálfa heldur hefur athygli manna undanfarið beinst í auknum mæli að heilbrigðiskerfi og stofnunum. Farið er að tala um heilsulæsar stofnanir en markmið slíkra stofnana er að auðvelda fólki að finna, skilja og nota upplýsingar og þjónustu til að sinna heilsu sinni (Brach og Harris, 2021). Margar skilgreiningar eru til á hugtakinu heilsulæsi en flestar eiga þær það sameiginlegt að ná yfir hæfni einstaklinga til að afla sér upplýsinga, skilja þær og nýta til eflingar á eigin heilsu. Með þekktari skilgreiningum sem notaðar eru í dag er skilgreining Sörensen og félaga (2012) sem sjá undir myndinni sem fylgir greininni. Heilsulæsi er mikilvægt fyrir heilsu manna, því sé það takmarkað er hætta á misskilningi og að leiðbeiningum heilbrigðisstarfsfólks sé annaðhvort ekki fylgt eða að þeim sé fylgt á rangan hátt. Lítið er vitað um heilsulæsi einstaklinga og stofnana á Íslandi. COVID-19 faraldurinn hefur þó sýnt okkur hve mikilvægt er að einstaklingar hafi gott heilsulæsi. Þeir hafa þurft að taka margar ákvarðanir varðandi heilsu sína í heimsfaraldrinum og greina á milli áreiðanlegra og villandi upplýsinga sem birtar hafa verið bæði í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum. Höfundar: Björk Bragadóttir, Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins Hildur Einarsdóttir, Landspítali Jóhanna Ó. Eiríksdóttir, Landspítali Jónína Sigurgeirsdóttir, Reykjalundur Katrín Blöndal, Landspítali Margrét Hrönn Svavarsdóttir, Háskólinn Akureyri Nanna Friðriksdóttir, Landspítali, Háskóli Íslands Brynja Ingadóttir, Landspítali, Háskóli Íslands Snemma í sumar veitti Heilbrigðisráðuneytið styrki til gæða- og nýsköpunarverkefna í heilbrigðisþjónustu. Við sem þetta skrifum fengum rausnarlegan styrk til að hanna námskeið fyrir heilbrigðisstarfsfólk um heilsulæsi. Markmið námskeiðsins, sem hægt verður að nota hvar sem er í heilbrigðiskerfinu, er að efla færni þátttakenda í að meta og bæta heilsulæsi sjúklinga og stofnana. Með þessu verkefni viljum við leggja okkar af mörkum til að vinna að innleiðingu Heilbrigðisstefnu til ársins 2030. Hjúkrunarfræðingar munu heyra meira frá okkur í vetur en við stefnum að því að hafa námskeiðið tilbúið og í boði fyrir hjúkrunarfræðinga og aðra heilbrigðisstarfsmenn á haustmánuðum 2022. Áhugasömum er velkomið að senda okkur hugmyndir og ábendingar varðandi innihald námskeiðsins á netföngin bjork.bragadottir@heilsugaeslan.is eða brynjain@landspitali.is Brach, C., & Harris, L. M. ( 2021). Healthy People 2030 health literacy definition tells organizations: make information and services easy to find, understand, and use. Journal of General Internal Medicine, 36(4), 1084-1085. Heilbrigðisráðuneytið (2019). Heilbrigðisstefna - Stefna fyrir íslenska heilbrigðisþjónustu til ársins 2030. Sørensen, K., Van den Broucke, S., Fullam, J. et al. Health literacy and public health: A systematic review and integration of definitions and models. BMC Public Health 12, 80 (2012). https://doi. org/10.1186/1471-2458-12-80 HEIMILDIR Heilsulæsi tengist almennu læsi og felur í sér þekkingu, áhuga og hæfni til að finna, skilja, meta og nýta sér heilbrigðistengdar upplýsingar. Það er nauðsynlegt svo fólk geti tekið ákvarðanir um notkun heilbrigðisþjónustunnar, fyrirbyggingu sjúkdóma og heilsueflingu til að viðhalda eða bæta lífsgæði (Sørensen o.fl., 2012). Margar skilgreiningar eru til á hugtakinu heilsulæsi en flestar eiga þær það sameiginlegt að ná yfir hæfni einstaklinga til að afla sér upplýsinga, skilja þær og nýta til eflingar á eigin heilsu. Heilsulæsi
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.