Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Blaðsíða 36

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Blaðsíða 36
34 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 3. tbl. 97. árg. 2021 Hjúkrunarfræðineminn HJÚKRU N AR FR Æ ÐINEMINN SITUR FYRIR SVÖRUM Arney Þyrí Guðjónsdóttir ? Ljósmæðurnar á fæðingardeildinni á Akranesi miklar fyrirmyndir Aldur: 27 ára. Hvers vegna valdir þú hjúkrunarfræði? Ég hef unnið við umönnunarstörf síðan ég fór á vinnumarkaðinn sem unglingur. Áhugi minn hefur alltaf verið að vinna með fólki en ég var ekki viss hvort mig langaði meira að fara í hjúkrunarfræði eða þroskaþjálfann fyrr en ég fór að eignast börn sjálf, þá gerðist eitthvað og það var ekki spurning lengur hvað ég vildi læra. Skemmtilegasta fagið? Þessa önnina er það hjúkrunarfræðiáfanginn, það er auðvitað alltaf skemmtilegast að fá að vera í verklegu námi. Annars fannst mér vefja- og frumulíffærafræði mjög skemmtileg fyrstu önnina í skólanum. Eitthvað sem hefur komið á óvart í náminu? Það var ekkert þannig sem kom mér á óvart, en ef ég á að nefna eitthvað þá var það helst að nemendur eru öllum aldri. Ég hugsaði með mér þegar ég skráði mig í hjúkrunarfræði í HA að ég hlyti að vera með þeim eldri sem væri að fara í klásus, en raunin var allt önnur sem var alveg ótrúlega skemmtilegt. Ekki bara vegna þess að ég telst vera nokkuð ung í þessum árgangi heldur er líka bara svo gaman að sjá að það er aldrei of seint að hefja nýjan starfsferil eða elta drauma sína. Hvort sem fólk er 40, 50 eða jafnvel 60 ára. Hvað, ef eitthvað, finnst þér vanta í námið? Stundum langar mig að segja skipulag, en það er ekki alltaf. Ég er svona týpa sem vil helst hafa allt á hreinu og sem lengstan fyrirvara til að geta skipulagt mig, sumir kennarar eru ekki alveg á sama máli. Eftirminnilegasti kennarinn? Ég hef kannski ekki verið nógu lengi í skólanum til að kynnast öllum kennurunum en ég á alveg marga uppáhaldskennara. Börkur er ótrúlega skemmtilegur í kennslu og lætur mann fá áhuga á efninu, en hann er líka svo agalega klár að hann getur komið með nokkuð svakalegar spurningar á prófi. Kennararnir okkar í verklegu kennslunni eru líka allar mjög skemmtilegar. Ég gæti talið upp marga í viðbót, en í rauninni eru allir kennarar sem hafa þennann rosalega áhuga á námsefninu og tala til manns og í kringum efnið þannig að maður fær líka áhuga, þeir eru allir eiginlega eftirminnilegastir og skemmtilegastir. Önnur menntun, lærðir þú eitthvað annað áður en þú ákvaðst að fara í hjúkrun? Ég er ekki mjög menntuð kona, en ég kláraði stúdentspróf frá Menntaskólanum á Ísafirði og fór í Landbúnaðarháskóla Íslands og lærði þar búfræði án þess að klára það nám. Hef samt tekið alls konar námskeið sem tengjast umönnun og er með skotvopnaleyfi og litlu vinnuvélaréttindin. Fyrirmyndir í lífinu og/eða hjúkrun? Þær eru margar, en tengt mínu námi verð ég að segja að þær ljósmæður sem ég hef kynnst á fæðingardeildinni á Akranesi, og þá sérstaklega þær sem voru með mér í mínum fæðingum og í mæðravernd, eru algjörar fyrirmyndir fyrir mér. Umhyggjan, fagmennskan og öryggið sem þær sýna er ótrúlegt. Móðir mín er líka stór fyrirmynd í mínu lífi. Hún byrjaði seint í menntaskóla og í háskóla, eða eftir að hún var byrjuð að eignast börn en hún rúllaði upp sínu námi með miklum metnað og áhuga. Það var alveg dásamlegt að heyra hana tuða yfir einkunum sem voru undir 8,5-9. Þannig ég hef reynt að smita mig af þeim metnað sem hún hafði gagnvart sínu námi og hefur gagnvart sinni atvinnu núna. Draumastarfið? Einn daginn ætla ég mér að verða ljósmóðir, það er draumurinn, toppurinn. Hvað heillar þig mest við hjúkrunarfræði? Að vinna með fólk og hjálpa því, ég elska að vera í kringum fólk og að geta fengið að hjálpa því. Mælirðu með þessu námi? Ég held ég geti alveg fullyrt það að þetta er alveg frábært nám, þvílíkt sem maður lærir fyrir utan hvað maður kynnist skemmtilegu fólki. Besta nestið? Eldfjallaskyrið frá MS og sviðasultusneið er gott kombó, en annars er ég líka mikil kjúklingasalats týpa. Hvernig slakar þú á eftir erfiðan dag? Set eitthvað skemmtilegt í sjónvarpið og tek upp prjónana, það er held ég ekkert sem getur látið mig slaka eins vel á eins og að prjóna, hvað þá ef maður er með eitt glas af rauðvíni með því. Uppáhaldshreyfingin? Ég væri að ljúga heldur harkalega ef ég segðist vera einhver íþróttaálfur og gæti ekki valið á milli æfinga. Góður göngutúr er besta hreyfingin að mínu mati. Þrjú stærstu afrek þín í lífinu hingað til? Drengirnir mínir tveir að sjálfsögðu, að komast í gegnum klausus er líka stórt afrek og fasteignakaup, þetta er svona það sem mér dettur fyrst í hug. Hvað gerir þú fyrir umhverfið? Ég reyni eins vel og ég get að flokka rusl og ég kaupi mikið notað, bæði hluti og föt, í stað þess að kaupa nýtt. Hvað gleður þig mest? Það þarf frekar lítið til að gleðja mig. Falleg augnablik, samvera með vinum og fjölskyldum þeirra og þegar vinkonur og vinir senda mér myndir af börnunum sínum, það gleður mig sérstaklega að fá myndir af þeim í fötum sem ég hef prjónað. Ég elska þegar fjölskyldan mín nær að koma öll saman, það gerist orðið svo sjaldan. Þegar strákarnir mínir leika fallega saman án þess að rífast og sína hvor öðrum umhyggju og sanngirni. Góðar einkunnir eftir mikla vinnu gleðja mig líka og svo margt, margt, annað. Hvað hryggir þig helst? Óréttlæti og vanvirðing í garð náungans, lélegt heilbrigðiskerfi og ósanngjörn laun leikskólakennara, kennara og svo margra aðra sem sinna mikilvægum störfum í samfélaginu. Uppáhaldsveitingastaður? Tjöruhúsið á Ísafirði, steiktu gellurnar, steinbíturinn og fiskisúpan hans Magga Hauks er eitt mesta sælgæti sem hægt er að fá. Fallegasta borg sem þú hefur heimsótt? Ég hef ekki ferðast mjög víða en Les Sable d´Olonne í Frakkalandi er mjög falleg. Besti bar fyrir hamingjustundir? Það er enginn bar þar sem ég bý og ég fer skammarlega sjaldan á bari. Ætli ég færi ekki á bar á Akureyri ef ég væri í lotu í skólanum ef ég ætlaði að fara á happy hour. Dýrmætasti hlutur sem þú átt? Held ég að ég verði að segja flestir kjólarnir mínir, ég er með kjólablæti og get ekki lýst því með orðum hvað ég held mikið upp á kjólana mína. Ef ekki hjúkrunarfræðingur hvað þá? Ég hugsa að ég hefði farið í þroskaþjálfann ef ég hefði ekki farið í hjúkrunarfræði. Hvernig myndir þú lýsa þér í einni setningu? Ég brosmild og jákvæð og ég er góður bakari og elska að hafa sem mest að fólki í kringum mig og helst að hafa alla í mat eða kaffi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.