Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Blaðsíða 88
Rannsóknir hafa sýnt fram á ýmsa erfiðleika með
smokkanotkun hjá ungum íslenskum karlmönnum.
Tilgangur þessarar eigindlegu rannsóknar er að skyggnast
inn í reynsluheim ungra karlmanna varðandi smokkanotkun
og skoða sjónarmið þeirra gagnvart notkuninni.
Rannsóknin byggist á eigindlegri aðferð, fyrirbærafræðilegri
nálgun. Einstaklingsviðtöl voru tekin við 13 íslenska unga
karlmenn á aldrinum 18-25 ára. Viðtölin voru þemagreind
eftir rammaaðferð.
Greind voru þrjú þemu, Óöryggi og öryggi, Athöfnin
sterkari en orðin og Óttast að allt fari til fjandans. Fram
komu margir áhrifaþættir á þá ákvörðun að nota smokka.
Sumir þátttakenda voru óöruggir að nota smokka, aðrir
voru öruggir en þeir gátu jafnframt verið á báðum áttum.
Samskipti við kynlífsfélaga um smokkanotkun reyndust
sumum auðveld en öðrum ekki, sem lýsti þeirra óvissu. Það
var auðveldara að sleppa þeim og ganga beint til verks. Sjálf
smokkanotkunin gat verið flókin og valdið þeim áhyggjum
og ótta við neikvæðar afleiðingar. Sú athöfn að rjúfa
augnablikið til að sækja smokkinn, setja hann á og viðhalda
kynferðislegri reisn með smokk gat verið áhyggjuvaldandi
og spennuþrungin. Sumir höfðu þó öðlast öryggi við
smokkanotkun og lýstu jákvæðri reynslu.
Rannsóknin sýndi fram á að upplifunin af smokkanotkuninni
gat reynst erfið og skapað ótta gagnvart því að allt mundi
klúðrast. Með aukinni vitneskju um upplifun ungra
karlmanna af smokkanotkun má betur sníða kynfræðslu að
þeirra þörfum, efla sjálfsöryggi þeirra varðandi þá notkun,
auka þannig smokkanotkun sem mögulega gæti lækkað tíðni
kynsjúkdóma.
Tilgangur
ÚTDRÁTTUR
Aðferð
Niðurstöður
Lykilorð:
Ungir karlmenn, smokkanotkun, eigindleg
rannsókn, kynheilbrigði, áhættuhegðun.
Ályktun
HAGNÝTING
RANNSÓKNARNIÐURSTAÐNA
„Hvers vegna ættir þú að lesa þessa grein?“
Nýjungar: Frásagnir ungu karlmannanna gefa
dýpri skilning en magnbundnar rannsóknir
hafa gefið um reynsluheim þeirra hvað varðar
smokkanotkun, hvað reyndist þeim erfitt og
hvaða bjargráð þeir höfðu.
Hagnýting: Unnt er að nýta niðurstöður í
fræðslu- og ráðgjöf um kynheilbrigði.
Þekking: Það er ákveðinn hópur ungra
karlmanna sem á í meiri erfiðleikum með notkun
smokka. Þá vantar meiri þekkingu á smokkum,
þjálfun í að tjá sig um smokka og hvernig skuli
vinna með erfiðar aðstæður þegar nota þarf
smokkinn.
Áhrif á störf hjúkrunarfræðinga:
Niðurstöður geta nýst við kynfræðslu
ungra karlmanna um þessi mál en einnig
þegar hjúkrunarfræðingar í skólum eða
á heilsugæslunni eru að veita ráðgjöf um
getnaðarvarnir og við upplýsingagjöf um
kynsjúkdóma.
Smokkanotkun ungra karlmanna