Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Blaðsíða 72
70 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 3. tbl. 97. árg. 2021
Mynd 2. Greiningarlíkan
Eins og Telma sagði, maðurinn minn var atvinnulaus og
hlutirnir bara gerast ... lífið er alls konar og allar með
eitthvað í bakpokanum en ég hef alveg lent í depurð og ég
fékk fæðingarþunglyndi með fyrsta barnið mitt og vann
bara ekkert úr því og sat út í horni og skammaðist mín fyrir
að vera ekki nógu góð mamma og bara kunni þetta ekki
og var með rosalega erfitt barn (Telma).
Að ná tökum á kvíðanum og láta hann ekki
stjórna
Annað meginþemað lýsir áhrifum sem þær mátu að
námskeiðið hefði haft á líðan þeirra en það var nefnt; að
ná tökum á kvíðanum og láta hann ekki stjórna. Þar voru
greind sex undirþemu; verkfæri sem þú getur nýtt þér; opnaði
augun fyrir svo mörgu; að tala við sjálfa þig eins og vinkonu
þína; að koma sér upp úr hjólförunum; að heyra reynslusögur;
og það var bara ekki að virka hjá mér. Konurnar sögðu frá
mismunandi reynslu þegar spurt var um upplifun þeirra af
HAM-námskeiðinu. Sjö af átta konum fannst námskeiðið
hjálplegt og gagnlegt og flestum fannst námskeiðið hafa
hjálpað þeim til að verða lausnarmiðaðri og töldu að
námskeiðið nýttist þeim bæði í einkalífinu og í vinnu.
Nokkrar kvennanna lýstu því hvað þeim fannst gott að fá þessi
verkfæri í hendurnar eins og hugsanaskrá en um það fjallaði
fyrsta undirþemað sem var nefnt, verkfæri sem þú getur nýtt
þér. Annað undirþema um upplifunina af námskeiðinu var
að því var lýst sem hjálplegu, gagnlegu og lausnamiðuðu.
Það opnaði augun þeirra fyrir svo mörgu, meðal annars að
átta sig á því að þetta var kvíði sem þær voru að glíma við. Í
heildina fannst konunum námskeiðið hafa haft jákvæð áhrif
á líðan þeirra og margt sem þær lærðu vera góður grunnur
til að halda sér í jafnvægi en margar þurfa að halda áfram og
vinna í sér. „Ég hafði heyrt um HAM og heyrt talað um það sem
meðferð en ég hélt að ég væri búin að tileinka mér þetta, þetta
er frábært tól til að halda manni í jafnvægi“ (Telma).
Þriðja undirþemað var nefnt, að tala við sjálfa þig eins og
vinkona þín. Í þessu þema kom fram að konurnar áttu það
sameiginlegt að geta betur, eftir námskeiðið áttað sig á
neikvæðum niðurrifshugsunum og betur stoppað þær áður en
þeim fór að líða illa. Námskeiðið hjálpaði þeim þannig að átta
sig á bæði jákvæðum og neikvæðum hugsunum, koma reglu
á þær og að reyna að breyta þeim ásamt því að ná að hugsa
hlutina upp á nýtt á jákvæðari og uppbyggilegri hátt.
Ég á að tala við sjálfa mig eins og vinkona þín en ekki
alltaf að brjóta sig niður eins og það sé alltaf þessi
blessaði púki á öxlinni á þér ... það þarf oft bara að hugsa
þessar hugsanir upp á nýtt, þær eru oft ekki raunsæjar og
sérstaklega ekki þegar maður er búin að skrifa þær niður
á blað (Bára).
Að koma sér upp úr hjólförunum var fjórða undirþemað. Þær
sáu loksins tækifæri og voru margar búnar að breyta hegðun
sinni og námskeiðið virkaði hvetjandi. Bara þessu litlu hlutir
í daglegu lífi, þær urðu félagslega virkari og létu kvíðann eða
félagskvíðann ekki stoppa sig.
Þessir litlu hlutir að búa um mig á morgnana, dagurinn
byrjar og bara þessi litla breyting að vakna fyrr og ég er
ein með sjálfri mér með kaffibollan og les blaðið áður en
krakkarnir vakna og bara að koma sér upp úr hjólförunum
sem maður er búin að búa sér til og núna er ég farin að
hugsa okey, hverju get ég bætt við (Bára).
Í fimmta undirþemanu er því lýst hvernig konunum fannst
hjálplegt að heyra ólíkar reynslusögur annarra kvenna, skynja
og skilja að þær væru ekki einar með þessa vanlíðan. Þær
uppgötvuðu hversu mikilvægt það var að geta talað um
tilfinningar sínar og líðan. Að geta speglað sig í reynslunni
í hópnum og talað um hluti eins og fæðingarþunglyndi og
hvað sé eðlilegt eftir fæðinguna eins og grátur og að vera
viðkvæmur eftir fæðinguna.
Að heyra reynslusögur frá konunum á námskeiðinu
... maður er ekki einn með þessa tilfinningu og þetta
er ekkert kjánalegt ... en ég er svolítið smeyk fyrir
fæðingunni, það var rætt á námskeiðinu...hjálplegt að
geta talað um tilfinningarnar mínar og vera sterk og gera
hlutina (Anna).
Sjötta undirþemað það var bara ekki að virka hjá mér lýsir
reynslu einnar konu sem upplifði að námskeiðið nýttist henni
ekki sem skildi. Hún var að glíma við þunglyndi og sagðist vera
framtakslaus og leitaði ekki eftir aðstoð til sálfræðinganna á
stöðinni eða spurði þá um ráðleggingar. Konan lýsti því líka
að hún væri gleymin og hefði lítinn áhuga á öllu. Hún sagði
að hún gæti ekki nýtt sér þau verkfæri sem unnið var með á
námskeiðinu svo sem eins og hugsanaskrá eða ánægjulista.
Allar með eitthvað
í bakpokanum
Vanlíðan síðan í
barnæsku
Að reyna að gera
það besta úr sínum
aðstæðum
Að ná tökum á
kvíðanum og láta
hann ekki stjórna
Að hafa meiri
stjórn á huganum
og líkamanum
Stuðningurinn
og eftirfylgnin
skiptir öllu máli
Bjargráðin
Að nýta sér allskonar
hluti
Verkfæri sem þú
getur nýtt þér
Að koma sér úr
hjólförunum
Opnaði augun
fyrir svo mörgu
Að heyra
reynslusögur
Meira
sjálfstraust
Bara alveg
glötuð
Betri líkamleg
líðan
Líkamsímynd
óléttunnar
Mikilvægt að
spyrja um líðan
Maður hefur þörf
fyrir félagsleg
tengsl
Halda líka sjálfar
áfram þessari
vinnu
Maður er
ekki einn
Að tala
opinskátt
Að tala við sjálfa
þig eins og
vinkona þín
Það var bara
ekki að virka hjá
mér
Að ná tökum á kvíðanum