Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Blaðsíða 97
3. tbl. 97. árg. 2021 | Tímarit hjúkrunarfræðinga 95
Ritrýnd grein | Scientific paper
,,Breytingaskeiðið þarf svo sannarlega ekki að vera alslæmt
með réttri meðhöndlun, skilningi í samfélaginu og skilningi hjá
konum á því hvað er að gerast í líkamanum þegar tímabilið
gengur í garð.‘‘ Halldóra Skúladóttir
Halldóra Skúladóttir er sannar-
lega kjarnakona en breyt-
ingaskeið kvenna er henni
hugleika og þykir henni mikilvægt
að breyta hugsunargangi og útrýma
fordómum gagnvart þessu tímabili í
lífi kvenna, enda um eðlilegt skeið að
ræða sem allar konur ganga í gegnum.
Halldóra Skúladóttir er 4 barna
móðir, markþjálfi og með dimplómu
í NLP ásamt lausnamiðaðri dáleiðslu-
og sálmeðferð. Halldóra hefur hjálpað
fólki að bæta lífsstíl sinn í meira en tvo
áratugi og hefur mikla ástríðu fyrir
breytingaskeiði kvenna og áhrifum
þess á konur, andlega sem líkamlega.
„Fyrst var það mest tengt næringu
og hreyfingu en fljótlega fór ég að
sjá að ef að hugarfarið var ekki á
réttum stað var lífsstíllinn fljótur að
fara aftur í sama gamla farið. Ég fór
því að einbeita mér meira að því að
hjálpa fólki að breyta hugarfarinu
sínu gagnvart lífsstílsbreytingum.‘‘
segir Halldóra en í dag einblínir
hún mest að því að hjálpa konum á
breytingaskeiðinu og hvernig best sé
að vinna sig í gegnum það tímabil,
sem getur reynst mörgum afar erfitt.
Estrógen framleiðsla
minnkar
Breytingaskeið kvenna er náttúrulegt
ferli og hluti af æviskeiði kvenna. Á
þessu tímabili hætta eggjastokkarnir
að framleiða kvenhormónin estrógen
sem veldur því að blæðingar stöðvast
og breytingaskeið hefst. Breytinga-
skeiðið leggst þó mismunandi á
konur en stór hluti kvenna finnur
fyrir neikvæðum og hamlandi
áhrifum á líf sitt þar með talið vinnu,
áhugamál og sambönd. Helstu
einkenni þessara hormónabreytinga
eru skyndileg hitakóf en köstin
koma óháð aðstæðum og geta komið
hvenær sem er sólarhrings á byrjun
breytingaskeiðs. Konur geta að auki
glímt við skapsveiflur, minni orku,
þreytu, pirring og minni kynlöngun
en að auki eru þær mun útsettari
fyrir ýmsum kvillum, svo sem bein-
þynningu.
Konur þjást í hljóði
Breytingaskeiðið er Halldóru mjög
ofarlega í huga en ástæðan fyrir því
er að hún sjálf hefur verið að glíma
við einkenni og vissi lítið sem ekkert
þegar hormónabreytingar gerðu
vart við sig. Konur eru helmingur
mannkynsins og fara allar í gegnum
þetta tímabil breytingaskeiðs. ,,Það
er engin fræðsla og helst ekkert talað
um þetta í samfélaginu en það liggur
einhver skömm yfir þessu tímabili.
Konur eru að þjást í hljóði af ótta
við að það sé gert grín að þeim, en
það versta er að mjög margir læknar
eru illa upplýstir um þetta skeið í
lífi kvenna. Algengt er að konur séu
settar á allskyns lyf í stað þess að
hormónaskorturinn í líkamanum
sé meðhöndlaður.‘‘ segir Halldóra
sem vill að talað verði opinskátt um
breytingaskeið kvenna en hún heldur
úti vefsíðu og instagram aðgangi sem
ber heitið kvennarad.is. Á tilteknum
miðlum er má nálgast ýmsan fróðleik
varðandi breytingaskeið kvenna.
Hvað er hægt að gera til að
fræða konur frekar?
,,Í fyrsta lagi þurfum við konur sem
erum á þessum stað að tala um þetta,
hætta að þagga niður í þessu, hætta
að gera þetta að einhverju tabúi, fatta
að það er ekkert til að skammast sín
fyrir. Við förum allar í gegnum þetta
tímabil á lífsleiðinni og lífið
er alls ekki búið þegar
maður er kominn á
b r e y t i n g a s k e i ð i ð ,
heldur er hægt að
líta á þetta sem
nýjan kafla í lífinu.‘‘
segir Halldóra. Að
auki þykir Halldóru
mikilvægt að fræða þurfi
samfélagið, allar konur ættu
að ræða þetta við einhvern þar sem
tímabilið getur reynt gífurlega á
sambönd og samskipti. ,,Allir þurfa
þó fræðslu en með aukinni fræðslu, til
bæði kvenna, heilbrigðisstéttarinnar
og samfélagsins þá vonandi verður
litið á breytingaskeiðið sem eðlilegt
ferli í lífi kvenna og þannig myndast
vonandi betri skilningur allstaðar í
samfélaginu.
Femarelle á tímum
breytingaskeiðs
Femarelle nýtur mikilla vinsælda
hjá konum allt frá 35 ára aldri
og ekki að ástæðulausu. Þarna er
um náttúrulega lausn að ræða en
vörurnar eru hannaðar fyrir konur á
mismunandi stigum tíðarhvarfa sem
hefjast yfirleitt upp úr þrítugu þó
svo að einkenna verði ekki
vart strax. Breytingarnar
sem konur upplifa eru
ekki allar eins og því
er Femarelle frábær
fyrsta úrræði áður en
konur prófa hormóna.
Femarelle getur slegið
á fjölmörg einkenni sem
tengja má hormónabreytingum
en vörurnar innihalda einkaleyfisvarið
efnasamband, DT56a, sem unnið er
úr óerfðabreyttu soya, ásamt hörfræi
og B vítamínum sem stuðlar að því að
halda reglu á hormónastarfsemi.
Femarelle fæst í öllum
stórmörkuðum, apótekum og
heilsuverslunum
Breytingarskeiðið
þarf ekki að
vera tabú
Halldóra Skúladóttir er sannarlega kjarnakona en
breytingaskeið kvenna er henni hugleikið og þykir henni
mikilvægt að breyta hugsunargangi og útrýma fordómum
gagnvart þessu tímabili í lífi kvenna, enda um eðlilegt skeið
að ræða sem allar konur ganga í gegnum.
Femarelle Rejuvenate
Hentar konum sem eru
að upplifa fyrstu einkenni
hormónabreytinga og áður
en óregla kemst á blæðingar.
Femarelle Recharge
Fyrir konur sem
eru komnar á
breytingarskeiðið og
blæðingar óreglulegar
eða hættar.
Femarelle Unstoppable
Fyrir konur sem eru komnar
yfir breytingaskeiðið og vilja
viðhalda kraftmiklum lífsstíl
og vernda beinin þegar árin
færast yfir.
af hverjum seldum
pakka
í október rennur
til Bleiku
slaufunnar
300 kr.
Halldóra Skúladóttir hvetur konur til að líta á breytingarnar sem nýjan kafla í lífinu.