Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Blaðsíða 50

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Blaðsíða 50
48 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 3. tbl. 97. árg. 2021 Hjúkrunarmeðferð Mikilvægasta meðferðin er að aflétta þrýstingi. Meðferð er einstaklingsmiðuð og byggist á teymisvinnu hjúkrunarfræðinga, sjúkraliða, iðjuþjálfa, sjúkraþjálfara og lækna. Hver íbúi í áhættuhópi fær vandlega unnið hjúkrunarferli þar sem viðeigandi hjúkrunargreining og meðferð er sett fram. Þrýstingssár af stigi eitt og tvö munu í flestum tilfellum gróa vel ef hugsað er vandlega um þau. Stig þrjú og fjögur eru erfiðari viðfangs og getur tekið langan tíma að græða (MedlinePlus, 2016). Mælt er með að sjúklingur liggi á þrýstingsdreifandi undirlagi, loftskiptadýnum (ef <12 á Bradenkvarða) og sé á snúningstöflu (ef <18 á Bradenkvarða), eftir þörfum. Einnig er mælt með að varast að hreyfa sjúkling þannig í rúmi að húðin dragist eftir yfirborðinu. Gott getur verið að púðra létt yfir lakið, það dregur úr núningi (MedlinePlus, 2016). Sjálfráðar og ósjálfráðar hreyfingar geta leitt til áverka vegna núnings, sérstaklega á hælum og olnbogum. Með því að nota hjálparbúnað, svo sem spelkur á fætur, má draga úr snertingu við undirlag og þannig flýta gróanda, til dæmis á hælum. Forðast skal að nudda viðkvæma staði yfir beinum vegna minnkaðs blóðflæðis til húðar (MedlinePlus, 2016). Mælt er með að notaður sé hjálparbúnaður til að auðvelda sjúklingi að hagræða sér, lyfta sér og færa á milli staða, svo sem gálga og rúmgrindur. Einnig er mælt með að skipta um stellingar á tveggja tíma fresti eða eftir þörfum og að fólk sitji ekki í stól lengur en 15 mínútur án þess að hreyfa sig örlítið (Mayo Clinic, 2014). Iðjuþjálfar útvega hjólastólasessur við hæfi hvers og eins. Þegar hagrætt er í rúmi er mælt með að nota kodda við bak og á milli fóta til að forðast að útstæð bein núist saman. Svampfleyga má nota undir dýnur til að breyta álagspunktum í rúmi. Einnig er gott að lágmarka álag á mjaðmir með því að rétta ekki of mikið úr fótum. Markmiðið með hagræðingu og snúningi rúmliggjandi sjúklinga og þeirra sem háðir eru hjólastól er að draga úr þrýstingi á þeim stöðum sem mest mæðir á og tryggja þannig nægilegt blóðflæði til vefja. Ráðlagt er að nota ekki leguhringi því þeir geta valdið þrýstingi á öðrum svæðum (Mayo Clinic, 2014). Tryggja ætti næga vökvaneyslu til að viðhalda raka húðarinnar. Þurr húð hefur minni teygjanleika og þannig getur hætta á afrifum aukist. Góð næring er alltaf mikilvæg, ekki síst til að fyrirbyggja og græða þrýstingssár (Anna Birna Jensdóttir, 1990). Allt hrumt eða veikt eldra fólk ætti að fá orku- og prótínþétt fæði. Rannsóknir hafa sýnt að viðbótarnæring bætir næringarástand hjá veikum öldruðum (Landspítali, 2008; RHLÖ, 2018). Næringardrykkir og prótínduft geta bætt næringarástand þeirra. Húð þarf að halda hreinni með mildri sápu og baði eftir þörfum. Raka er viðhaldið með því að bera á húðina rakakrem. Mælt er með að nota rakadrægar umbúðir, bleiur og undirbreiðslur þegar þess er þörf. Hreinsa á húð varlega eftir þvag- og hægðalosun með hreinsiefnum og mjúkum klútum. Rakri húð er hætt við ertingu, afrifum og sýkingum. Skipta ætti um bleiur þegar þær eru orðnar blautar fremur en að bíða þangað til þær eru mettaðar hjá viðkvæmum einstaklingum (MedlinePlus, 2016). Handhreinsun er þýðingarmesta einstaka atriði til að hindra dreifingu sýkla. Rétt framkvæmdur handþvottur fjarlægir mestan hluta þeirra flökkusýkla sem koma á hendur við ýmis störf. Handskart kemur í veg fyrir fullnægjandi handþvott og skal því fólk, sem sinnir sjúkum, ekki bera slíkt við störf sín. Íbúar, ættingjar og gestir eru jafnframt hvattir til að spritta hendur. Sáramynd eru af hæl. Þetta sár á hæl tókst að græða á innan við 10 vikum með því að nota rennandi volgt kranavatn og milda sápu, oftast gert í sturtunni. Það var þerrað og látið lofta um það í 30 til 60 mínútur. Síðan var borið á sárið „intrasite“-gel (rakagel), Biatain ag (silfur), Allevyn (svampur sílíkon snertilagi), fest með vafningi og silkiplástri. Þetta var gert annan hvern dag eða oftar eftir þörfum. Spelka var notuð til að halda hæl á lofti. Gæta þarf þess að loft leiki um húð, eftir hreinsun og þerrun sára og hjá þeim sem nota umbúðir og bleiur að staðaldri. Sjúkraþjálfarar geta veitt meðferð með leysigeislum sem örva blóðstreymi til sárasvæðis. Sérstaklega þarf að huga að samspili verkjameðferðar við legu- og setstöður hjá íbúum með verki. Mikilvægur þáttur í sárameðferð er að vernda sárið fyrir hvers kyns hnjaski. Gæta þarf að því að búa þannig um sárið að umbúðir þrengi ekki að eða festist ofan í sárinu. Meðferð sára beinist að þremur þáttum: hemja bakteríuvöxt, hreinsa burt óæskilegan vef úr sári og tempra raka (Guðbjörg Pálsdóttir, 2010) þannig að sárið sé rakt án þess að vera baðað Þrýstingssár
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.