Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Blaðsíða 75
3. tbl. 97. árg. 2021 | Tímarit hjúkrunarfræðinga 73
o.fl., 2015). Konur sem höfðu verið greindar með þunglyndi á
meðgöngu og tóku þátt í rannsókn Bennett o.fl., (2007) sögðu
að þær hefðu jafnvel haldið líðan sinni leyndri fyrir vinum og
fjölskyldu af því þær skömmuðust sín og voru hræddar við
fordóma. Við teljum því mikilvægt að fylgja konum, mæðrum
og frumbyrjum strax eftir og bjóða upp á HAM-námskeið sem
veitir þeim stuðning frá upphafi meðgöngu og áfram eftir
fæðingu.
Stuðningurinn og eftirfylgnin skiptir öllu máli en í
rannsókninni fannst konunum sem þátt tóku mikil heilun
í því að deila reynslu sinni sín á milli og vita að þær væru
ekki þær einu sem glímdu við kvíða. Í hópnum sem í voru
eingöngu barnshafandi konur, sköpuðust meiri umræður
því þær fundu fyrir stuðningi hver frá annarri en í blandaða
hópnum fundu konurnar fyrir minni stuðningi og fannst
vanta meiri umræður. Áður hafa birst rannsóknarniðurstöður
sem sýna að þátttaka í HAM-hópi reynist dýrmæt fyrir konur.
Þær eru þakklátar fyrir stuðninginn frá hópnum sem hvetur
þær til aukinnar félagslegrar virkni (Cramer, o.fl., 2011).
Rannsóknarniðurstöður okkar ásamt niðurstöðum (Masood
o.fl., 2015) gefa vísbendingar um að mikilvægt sé að hafa
námskeiðin kynjaskipt og einnig að bjóða upp á námskeið
fyrir konur í fæðingarorlofi.
Konunum í okkar rannsókn fannst mikilvægt að vera
spurðar um andlega líðan sína og vera fylgt eftir og það
voru einnig dæmi þess að þær óskuðu eftir því að fá meiri
stuðning og eftirfylgni frá heilsugæslunni, sérstaklega
frá ungbarnaverndinni. Höfundum fannst áberandi að
konurnar töluðu lítið um þann stuðning og eftirfylgd sem
ungbarnaverndin getur veitt. Það er reynsla höfunda að
hjúkrunarfræðingar og ljósmæður á heilsugæslunni geta
haft jákvæð og góð áhrif á konur með andlega vanlíðan í
barneignarferlinu því þau hitta fjölskylduna reglulega og geta
veitt henni stuðningsmeðferð, virka hlustun og ráðleggingar.
Ritrýnd grein | Scientific paper
Niðurstöðurnar gefa hins vegar sterka vísbendingu um að sá
stuðningur þurfi að vera sýnilegri og meira afgerandi en með
HAM gætu hjúkrunarfræðingar og ljósmæður veitt konum sem
þurfa, aukinn stuðning. Í nýlegri kanadískri tilraunarannsókn
þar sem hjúkrunarfræðingar fengu þjálfun og kennslu til að
bjóða mæðrum upp á HAM-námskeið á heilsugæslunni kom
fram að dregið hafði úr andlegri vanlíðan þeirra. Þær voru
líka með minni áhyggjur, tengslamyndun á milli móður og
barns var betri og heimsóknum vegna andlegrar vanlíðanar á
heilsugæsluna fækkaði (Van Lieshout o.fl., 2019).
Rannsóknin okkar veitir innsýn í reynslu kvenna sem hafa sótt
HAM-námskeið á heilsugæslustöðvum, en það efni hefur ekki
verið rannsakað áður hér á landi. Styrkleiki rannsóknarinnar
felst í rannsóknaraðferðinni sem notuð var en einnig að
þátttakendur voru á misjöfnum aldri og bjuggu við ólíkar
aðstæður. Veikleiki rannsóknarinnar er fyrst og fremst
fólginn í því hve fáir þátttakendur eru í rannsókninni og eins
og í öðrum eigindlegum rannsóknum er ekki raunhæft að
alhæfa út frá niðurstöðum. Einnig má nefna sem veikleika
að úrtakshópurinn kom frá tveimur mismunandi hópum.
Sú leið var farin vegna þess hversu erfitt var að nálgast
þátttakendur á rannsóknartímanum en það kann að hafa áhrif
á niðurstöðurnar.
Þakkir
Konurnar sem tóku þátt í rannsókninni fá hrós og þakklæti
fyrir að koma og deila persónulegri reynslu sinni, því án
þeirra hefði rannsóknin ekki verið möguleg. Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins er þakkað fyrir að gefa leyfi fyrir
rannsókninni. Karli Rúnari Þórssyni er þakkað fyrir
yfirlestur og góð ráð. Einnig viljum við þakka fyrir styrki frá
Vísindasjóði Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Fagdeild
heilsugæsluhjúkrunarfræðinga.