Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Side 32
30 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 3. tbl. 97. árg. 2021
Dætur Jordans
í 30 ár
Þær eru á öllum aldri og ömmubörnin þeirra fá líka stundum
að fljóta með á æfingar enda Dætur Jordans ekkert venjulegt
körfuboltalið. Ævintýrið hófst fyrir um 30 árum, haustið 1990
þegar nokkrir hjúkrunarfræðingar ákváðu að fara að æfa
saman körfubolta til þess að reyna að komast
á sjúkrahúsleika sem haldnir eru annað hvert ár milli
starfsfólks sjúkrahúsa á Norðurlöndum.
Ritstýran fékk að kíkja á körfuboltaæfingu hjá
Dætrum Jordans og náði Önnu Soffíu, sem er ein
af þeim sem hefur verið með hópnum frá upphafi, í
smáspjall eftir æfinguna.
„Við fórum á leikana árið 1992 en þá var ekki keppt í körfu-
bolta þannig að við kepptum í staðinn í keilu og hlaupi,“
segir Anna Soffía og hlær. Hún segir að þarna hafi verið
keppt í fótbolta og blaki og fleiru en ekki körfubolta því
körfubolti hafi á þessum tíma ekki verið vinsæll annars
staðar á Norðurlöndunum. „Við héldum samt áfram að æfa
körfubolta saman en á þessum tíma þegar við vorum að byrja
að æfa voru karlarnir á Landspítalanum með tvo fría tíma
á viku hjá starfmannafélaginu, við höfðum þá æft saman í
tvö ár og borguðum sjálfar fyrir notkun á þeim sal sem við
vorum með. Þegar við fréttum að þeir fengu tvo tíma á viku
fría sögðumst við vilja fá einn tíma frían og þeir þá einn
og ég ákvað á sama tíma að bjóða mig fram sem formann
íþróttafélags Landspítala. Við fengum þessa tillögu samþykkta
en þarna voru karlarnir í fótbolta og handbolta og við æfðum
körfubolta en frá 1992 hefur líka verið hópur sem æfir keilu
saman,“ segir hún hress í bragði og bætir við að hún mæti líka
á keiluæfingar.
Texti og myndir: Sigríður Elín
Dætur Jordans
Hvar og hvenær fara körfuboltaæfingar Dætra Jordans
fram?
Við höfum æft óslitið í íþróttasal Verslunarskóla Íslands
frá árinu 1990 þar til núna, við misstum salinn í Verslunar-
skólanum og þetta er fyrsta æfingin okkar hérna í sal
grunnskólans í Norðlingaholti. Við höfum síðustu tuttugu
ár alltaf hist seinni partinn á föstudögum, klukkan fimm, og
spilað körfubolta saman.
Hvað gefur þessi samvera ykkur?
„Félagsskapurinn er númer eitt en það er líka gott að hittast
á föstudögum í lok vinnuviku og fá útrás með því að spila
saman körfubolta. Við sem mætum erum ekki allar að
vinna á Landspítalnum sjálfum, við komum frá nokkrum
starfsstöðvum, ein er til dæmis að vinna á Grensás. Þær sem
mæta eru ekki allar hjúkrunarfræðingar, ein er geislafræðingur
en með þessum móti hittumst við reglulega sem við myndum
ekki endilega gera annars.“
Nú hafið þið verið í rúm 30 ár saman í boltanum, hittist
þið líka utan æfingatíma?
„Já, það hefur myndast góður vinskapur með okkur á þessum
árum og ein úr hópnum, Hallveig, sem hefur verið með frá