Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Page 39
3. tbl. 97. árg. 2021 | Tímarit hjúkrunarfræðinga 37
,, ... rannsóknir sýna að áföll
sem fóstur verður fyrir á
meðgöngu; í gegnum áfall
sem móðir upplifir, getur
til að mynda haft áhrif á
heilaþroska fóstursins sem
getur svo verið rót margs
konar vandamála seinna á
lífsleiðinni.”
Símenntun HA,“ segir Sigrún og bætir við að hún hafi
auk þess verið með styttri námskeið, meðal annars hjá
Endurmenntun og Fræðslumiðstöð Vestfjarða. „Tvo
síðustu vetur hef ég svo verið með fræðslu fyrir alla
níundu bekkinga á Akureyri um áföll og ofbeldi.“
Hvers vegna mikilvægt er að vinna úr áföllum
sem fólk upplifir á lífsleiðinni?
„Það er gríðarlega mikilvægt að fólk vinni úr áföllum.
Rannsóknir sína að áföll geta haft áhrif á ónæmiskerfið,
þroska heilans, heilastarfsemina, hormóna- og
taugakerfið og þar af leiðandi öll hin kerfin því þau
eru ein órjúfanleg heild. Þá geta komið fram líkamleg
og sálræn heilsufarsvandamál og sjúkdómar í kjölfar
sálrænna áfalla sem getur verið mjög dýrt fyrir
heilbrigðiskerfið ef ekki er tekið mið af þeim. Þetta er allt
spurning um forgangsröðun en mikilvægt er að grípa eins
snemma inn í og hægt er.“
Geta áföll í frumbernsku haft áhrif á líf okkar á
fullorðinsárum?
„Já algjörlega og meðgangan skiptir líka máli því
rannsóknir sýna að áföll sem fóstur verður fyrir á
meðgöngu; í gegnum áfall sem móðir upplifir, getur til
að mynda haft áhrif á heilaþroska fóstursins sem getur
svo verið rót margs konar vandamála seinna á lífsleiðinni.
Þetta getur haft áhrif á heilsufar og náms- hegðunar
og félagslega stöðu einstaklingsins sem upplifði áfall á
fósturstigi,“ segir Sigrún um þau miklu áhrif sem sálræn
áföll geta haft á líf okkar.
Hverjar eru helstu birtingarmyndir eða
afleiðingar sálrænna áfalla í heilbrigðiskerfinu?
„Helstu birtingar geta verið líkamlegar, s.s.
stoðkerfisvandamál, langvinnir verkir, hjartasjúkdómar,
öndunarfærasjúkdómar og nýjustu rannsóknir
benta til að sumar tegundir krabbameins geti verið
ein birtingarmyndin. Einnig geðræn vandamál, s.s.
þunglyndi, kvíði, áfallastreituröskun, persónuleikaröskun
og fíknivandi. Í raun má segja að birtingarmyndir
geti komið fram í þeim líkamshluta eða -kerfi þar sem
einstaklingurinn er veikastur fyrir. Þetta bendir til þess
að áföllin geti verið „triggerar“ eða kveikja og sett af
stað ferli, sem tengist þá umhverfisþáttum, ættarsögu
eða erfðaþáttum einstaklingsins. Þannig spilar þetta allt
saman, áföll, umhverfi, erfðir og lífsstíll.“
Viðtal